FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

NMT Kerfi

by Víðir Lundi

Forsíða › Forums › Spjallið › Fjarskiptamál › NMT Kerfi

This topic contains 12 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Guðjón Engilbertsson Guðjón Engilbertsson 18 years ago.

  • Creator
    Topic
  • 07.05.2007 at 12:17 #200278
    Profile photo of Víðir Lundi
    Víðir Lundi
    Participant

    Rakst á þetta á mbl nuna í háeiginu…………………………Innlent | mbl.is | 7.5.2007 | 12:00
    Eitt fyrirtæki bauð í tíðniheimild fyrir NMT farsíma

    Eitt fyrirtæki, Nordisk Mobil Ísland ehf., lagði fram tilboð í tíðniheimild til starfrækslu farsímanets á núverandi NMT tíðnisviði. Tilboðið var opnað að viðstöddum fulltrúum bjóðenda og fulltrúum fjölmiðla.

    Þýðir þetta að Nmt kerfið sé ekki að lognast útaf??????

    Víðir L
    Þ412

    Gambri4x4

  • Creator
    Topic
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)
  • Author
    Replies
  • 07.05.2007 at 12:28 #590542
    Profile photo of Guðmundur Sveinbjörn Ingimarsson
    Guðmundur Sveinbjörn Ingimarsson
    Participant
    • Umræður: 18
    • Svör: 178

    Þá er bara spurningin, framleiðir einhver síma fyrir þetta kerfi í dag?





    07.05.2007 at 12:50 #590544
    Profile photo of Arnór Árnason
    Arnór Árnason
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 430

    Nei, er ekki bara verið að bjóða í að starfrækja kerfi á þessu tíðnisviði. Það þarf ekki að hafa neitt með NMT að gera.
    Það þætti mér allavega mjög ótrúlegt.

    En ætlaði Síminn ekki að byggja upp kerfi á þessu tíðnisviði í stað NMT eða var það á annari tíðni ?





    07.05.2007 at 12:57 #590546
    Profile photo of Guðmundur Sveinbjörn Ingimarsson
    Guðmundur Sveinbjörn Ingimarsson
    Participant
    • Umræður: 18
    • Svör: 178

    Þeir eru að fara af stað með CDMA-450 kerfi að ég held. Sama tíðni held ég.





    07.05.2007 at 13:12 #590548
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það eru nánari upplýsingar [b:d5am3no6][url=http://www.pta.is/default.asp?cat_id=112&module_id=220&element_id=1404:d5am3no6]á vef Póst og Fjar[/url:d5am3no6][/b:d5am3no6]
    Þarna eru tenglar á útboðslýsinguna. Þar er m.a. áskilið að útbreyðsla á landi verði ekki lakari en nú er í NMT kerfinu, þeir lofa að dekka 91% af flatarmáli landsins.
    Það kemur ekki fram, en væntanlega er hér um CDMA-450 kerfi að ræða.

    -Einar





    07.05.2007 at 20:19 #590550
    Profile photo of Ásgeir Bjarnason
    Ásgeir Bjarnason
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 340

    Þar sem ég er nú svo lítið tæknilega þenkjandi langar mig að spyrja, eru gömlu NMT símarnir orðnir gulls ígildi eða eru þeir áfram ruslahaugamatur?

    Kv.
    Ásgeir
    Sem á tvo NMT uppí hillu.





    07.05.2007 at 21:00 #590552
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    " dag kl. 11:00 voru opnuð tilboð í tíðniheimild til starfrækslu farsímanets á núverandi NMT tíðnisviði

    Eitt fyrirtæki lagði fram tilboð, Nordisk Mobil Ísland ehf

    Tilboðið var opnað að viðstöddum fulltrúum bjóðenda og fulltrúum fjölmiðla. Útboðið var auglýst 7. mars 2007.

    Tíðniheimildin gildir fyrir allt landið og felur í sér eftirfarandi tíðnisvið:

    452,9875 – 457,4875 MHz / 462,9875 – 467,4875 MHz (2 x 4,5 MHz)"

    Fékk þetta lánað á heimasíðu póst og fjar. Þarna kemur fram að verið er að tala um tíðnisvið núverandi NMT kerfis, svo NMT símar urðu enn meiri haugamatur í dag. Svo er bara að sjá hvernig þetta CDMA 450 á eftir að byggjast upp.

    Hlynur





    08.05.2007 at 01:27 #590554
    Profile photo of Arnór Árnason
    Arnór Árnason
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 430

    Ok – ef þetta er CDMA 450 – var það ekki Síminn sem var að boða það á sínum tíma að byggja það upp ?

    Af hverju sækja þeir ekki um þessa tíðni þá ?

    Og hverjir eru Nordisk Mobil ehf ??
    Fyrirtækjaskrá(skra.is) segir þá vera stofnaða 2006 og eru með heimilisfang á Stórhöfða 23.

    Ef flett er upp á Stórhöfða 23 í símaskránni, þá kemur bara upp Deloitte hf.
    Er þetta bara skúffufyrirtæki og hver er þá á bak við það ?

    …ég held við verðum að fá einkaspæjara í þetta mál 😉





    08.05.2007 at 07:52 #590556
    Profile photo of Arnaldur Sigurðsson
    Arnaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 86

    Þetta er allt saman eitt stórkostlegt norskt PLOTT !!!!
    Heræfingar og fjarskiptakerfi og ég veit ekki hvað.

    Við sjáumst síðar………………….(kannski)





    08.05.2007 at 09:31 #590558
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Samkvæmt [url=http://www.450world.org/?enc=uwZQrgDFBS/rOUnmp9bl7e8aaeea635ffdb0e5a1f40e9331128e&tid=0#190:2id0ttai]þessari síðu[/url:2id0ttai] er fyrirtæki með þessu nafni sem rekur CDMA 450 þjónustu í Noregi og undirbýr rekstur í Svíþjóð, Danmörku, Írlandi og Póllandi.
    Þannig að það lítur út fyrir að menn geti valið milli þess að nota Tetra kerfið sem byggt er upp í krafti samnings Björns Bjarnasonar og Bush, eða Norsks kerfis. Fyrrnefnda kerfið er með innbyggðu GPS, þannig að þar má búast við sjálvirkri ferlun til NSA, Bush menn hafa forskot að því leiti. En norðmennirnir lofa betri dekkun heldur en Þórhallur og co.

    Þeir sem ekki vilja setja Ísland á útsölu geta svo bara notað HF, og þar með sloppið að borga mánaðar og mínútugjöld.

    -Einar TF3EK

    ps: Síminn er meðal eigenda Nordisk Mobiltelfon. Sjá [url=http://www.projektnytt.se/Artikel.aspx?type=1&id=1296:2id0ttai]hér[/url:2id0ttai]





    25.05.2007 at 14:39 #590560
    Profile photo of Guðmundur Löve
    Guðmundur Löve
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 30

    Í dag tilkynnti P&F um úthlutun tíðniheimildar fyrir Nordisk Mobil Ísland "fyrir langdrægt stafrænt farsímakerfi á 450 MHz tíðnisviði sem þjóni landinu öllu og miðunum".

    Sjá tilkynningu frá P&F: http://pfs.is/displayer.asp?cat_id=112& … nt_id=1440

    Uppbyggingu skal vera lokið um það leyti sem NMT-þjónustan leggst af, og sá hluti kerfisins sem þjóna mun miðhálendinu kemur í fúnksjón kringum áramót 2008-2009.

    Tæknin sem notast er við er CDMA2000 (þriðjukynslóðar) og mun einnig bjóða upp á gagnaflutninga. Þetta hljóta að teljast góðar fréttir fyrir ferðamenn á fjöllum, en eftir stendur hvort útbreiðslan verður í reynd jafn götótt eða götóttari en NMT er í dag.

    Fjarskiptakveðjur,
    Guðmundur
    R3535 og TF3GL





    25.05.2007 at 16:28 #590562
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    í þessu [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=fjarskiptamal/9919:1gwzlvdf][b:1gwzlvdf]spjalli[/b:1gwzlvdf][/url:1gwzlvdf] er sagt frá þessu CDMA 450.
    Síminn segir að kerfið dragi 100km, en prófanir segja allt að 50 km við bestu aðstoður með stefnuvirkum loftnetum og lágmarks álagi.
    kveðja Dagur R-1698 TF3DB





    25.05.2007 at 19:04 #590564
    Profile photo of Guðjón Engilbertsson
    Guðjón Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 56

    Þið sem eruð með ónotaða nmt síma upp í hillu væruð kanski til í að láta mig fá svo sem einn gegn vægu gjaldi ef þeir eru hvort sem er á leiðina á haugana

    Kveðja Guðjón sem vantar NMT síma

    Uppl. síma 897-1162





  • Author
    Replies
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.