FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

NMT eftir áramót

by Einar Kjartansson

Forsíða › Forums › Spjallið › Fjarskiptamál › NMT eftir áramót

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Snorri Ingimarsson Snorri Ingimarsson 16 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 18.12.2008 at 23:27 #203383
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant

    Í þessari frétt kemur fram að Síminn hafi óskað eftir að fá að reka NMT kerfið í tvö ár í viðbót. Enn fremur að Fjarskiptaeftirlitið hyggist veita leyfið til 1 septermber 2009, en óski eftir athugasemdum frá hagsmunaðilum. Frestur er gefinn til 31 þessa mánaðar.

    Ætti klúbburinn ekki láta í sér heyra um þetta?.
    Það er ljóst að það er ekkert kerfi í augsýn sem getur dekkað hálendið jafnvel og NMT.

    -Einar

    PDF-skrá Samráðsskjal um notkun NMT-450 kerfisins

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 19.12.2008 at 02:26 #634952
    Profile photo of Jóhann Kristján Kristjáns
    Jóhann Kristján Kristjáns
    Participant
    • Umræður: 11
    • Svör: 213

    Jú þetta er mikilvægt mál.

    Ekkert kerfi, enn sem komið er, dekkar betur hálendið (nema hugsanlega VHF) og þrátt fyrir sífellt gloppóttara NMT samband þá er yfirleitt hægt að finna eitthvað samband t.d. að fjallabaki. Nú þarf maður reyndar að stoppa bílinn á meðan verið er að hringja, en það er bara til bóta.

    Varð oftar en einu sinni vitni af því í sumar er Tetra og jafnvel Tetra með VHF link hjá björgunarsveitum datt út – þá hékk NMT inni.

    Þetta kerfi má ekki leggjast af.

    Kv.
    JKK





    19.12.2008 at 04:53 #634954
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    NMT-kerfið er mikið öryggistæki og brýnt að hægt verði að láta það hanga inni sem lengst, en það má auðvitað ekki kosta hvað sem er. Það sem er helst að bögga mann núna er, að ef símar bila, er örðugt að fá varahluti og viðgerðir.





    19.12.2008 at 09:01 #634956
    Profile photo of Ingi Björnsson
    Ingi Björnsson
    Participant
    • Umræður: 73
    • Svör: 1022

    Það er reyndar eitt. Að langstærsti notendahóurinn af NMT er að detta út. Skipaflotinn okkar er orðinn netvæddur gegnum gervihnött þannig að notkun á NMT hjá þeim hríðfellur. Ég hef alltaf haft NMT í bílnum hjá mér og finnst það góður öryggisbúnaður og vill alls ekki að þetta hætti.





    19.12.2008 at 09:02 #634958
    Profile photo of Ingi Björnsson
    Ingi Björnsson
    Participant
    • Umræður: 73
    • Svör: 1022

    Það er reyndar eitt. Að langstærsti notendahóurinn af NMT er að detta út. Skipaflotinn okkar er orðinn netvæddur gegnum gervihnött þannig að notkun á NMT hjá þeim hríðfellur. Ég hef alltaf haft NMT í bílnum hjá mér og finnst það góður öryggisbúnaður og vill alls ekki að þetta hætti.





    19.12.2008 at 10:01 #634960
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    NMT kerfið er ekki eins mikið og gott öryggiskerfi og það var. Það er búið að ala okkur óafvitandi á að NMT detti með reglulegu millibili út og að sambandið sé lélegt nokkuð víða. Þetta er afturför vegna þess að NMT kerfið var býsna gott landsdekkandi kerfi.

    Mér fannst Jóhann halda því fram í sínu svari að það væri óeðlilegt að Tetra dytti fyrr út en NMT en það er hið eðlilegasta mál. Tetra er drasl sem verður aldrei nýtt sem landsdekkandi fjarskiptakerfi fyrir almenning. Hinsvegar á þessi gátta-bull alveg að virka en systemið er svo flókið til samanburðar við önnur kerfi að þar gætu mannfólkið staðið tækninni fyrir dyrum. Jafnvel björgunarmenn.

    NMT síminn minn er búinn að vera ónýtur í nokkur ár og ég ætla ekki að kaupa nýjann. Á meðan NMT kerfið verður rekið get ég verið öruggur með að ekkert annnað kerfi verði landsdekkandi og þess vegna myndi ég kjósa með því að kerfið verði aflagt hið fyrsta.

    GSM kerfið er í dag að verða stabílla og öruggara á fjölsóttum ferðamannastöðum. Ég keyri mikið um þjóðvegina hér eystra og sé að gloppum er að fækka mikið en það verður alltaf stórir auðir blettir á hálendinu utan fjölsóttustu leiðanna. GSM kerfið er að verða meira dekkandi en NMT og það er ekki bara vegna uppsetninga senda í GSM kerfinu heldur að verulegu leyti vegna þess að NMT sendarnir eru að týna tölunni.

    Kv Jón Garðar





    19.12.2008 at 11:08 #634962
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Í fyrsta lagi; Gerfihnattasamband fiskveiðiflotans á fyrst og fremst við stærri skipin, þ.e. togara og nótaveiðiskip. Strandveiðiflotinn er sáralítið kominn í þetta enn sem komið er. En vonandi kemur verðið til með að lækka og fyrirferðin og rafmagnsþörfin á móttökubúnaðinum þar með. Hinsvegar kemur Izan með athyglisverðan punkt í þessa umræðu, þ.e. að NMT-stöðvar hafa verið að detta út vegna þess að Síminn hefur annað hvort ekki séð ástæðu til að viðhalda kerfinu eða ekki fengið varahluti. Þetta veit ég reyndar að er hárrétt og ekki bara austanlands. Ég var að ýja að því hér í fyrra innslagi mínu að það þyrfti að hyggja að kostnaði. Það er best að orða það bara beint út; Mann uggir að þarna séu eigendur Símans (Skipti ehf./Exista/Bakkavör) að finna sér mótiv fyrir að hækka verðið á þjónustunni.





    19.12.2008 at 14:33 #634964
    Profile photo of Snorri Ingimarsson
    Snorri Ingimarsson
    Participant
    • Umræður: 68
    • Svör: 971

    Fyrir hönd fjarskiptanefndar vil ég biðja menn að gæta hófs í orðavali og sletta ekki fram fullyrðingum um að eitthvað sé "drasl" án þess að rökstyðja það frekar. Svona fullyrðingar færa okkur ekki nær því að finna hvað hentar okkur best.

    Svo má alltaf velta fyrir sér hvað orðið "landsdekkandi" þýðir í raun. Í mínum huga er fjarskiptakerfi landsdekkandi þegar það nær til landsins alls (utan hella og bygginga). NMT hefur aldrei verið landsdekkandi samkvæmt þessum skilningi. NMT var þokkalega markaðsdekkandi þegar það var uppá sitt besta.

    Ekkert fjarskiptakerfi er landsdekkandi á Íslandi nema gerfihnattasímar (Iridium).

    Gott er að NMT verði rekið eitthvað áfram, áskrift að því kostar um 250 kr á mánuði svo að það ætti ekki að vera vandamál.

    Hægt er að ná með HF fjarskiptum hvar sem er á landinu en þá gæti þurft að bíða eftir heppilegum skilyrðum sem koma oftast einhvern tíma sólarhringsins, helst á kvöldin og fyrri hluta nætur. HF má því á vissan hátt kalla landsdekkandi.

    Svo vil ég vekja athygli á því að VHF kerfið okkar er orðið mjög útbreitt og með því má ná til endurvarpa mjög víða. Hvet alla til að sækja kort fyrir endurvarpana á vef Sigga Harðar [url=http://www.radioehf.is:39x9vd2r][b:39x9vd2r]www.radioehf.is[/b:39x9vd2r][/url:39x9vd2r] og hafa í bílunum. Prófa svo á ferðum að lykla næstu endurvarpa og kynnast kerfinu af eigin raun.

    Snorri
    fjarskiptanefnd





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.