FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

NIÐURSTÖÐUR RÝNIHÓPS V/STJÓRNLAGAÞINGS

by Sveinbjörn Halldórsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › NIÐURSTÖÐUR RÝNIHÓPS V/STJÓRNLAGAÞINGS

This topic contains 11 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Valur Sveinbjörnsson Valur Sveinbjörnsson 14 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 26.11.2010 at 11:48 #216076
    Profile photo of Sveinbjörn Halldórsson
    Sveinbjörn Halldórsson
    Keymaster

    Sæl
    Nú er búið að lesa úr innsendum póstum frá frambjóðendum og greina svörin eins og hægt er .
    Þetta er niðurstaða rýnihópsins og er hún birt hér að neðan.

    Endilega ef þið hafið einhverjar athugasemdir eða einhverjar nánari upplýsingar látið þá vita.

    Ef þið hafið ekki skrifaðgang að vefnum þá má líka senda póst á ferdafrelsi@f4x4.is eða stjorn@f4x4.is.

    Kveðja
    Sveinbjörn

    A – mjög góðir kostir

    Guðmundur R Lúðvíksson 5229 Góður rökstuðningur og vill umferðarrétt um allt land utan ræktarlanda. Hinsvegar fjallar hann ekki beint um vélknúna umferð.
    Jón Gunnar Benjamínsson 7385 Stutt hnitmiðað svar er fatlaður og treystir á fjórhjól til að geta stundað veiðar og ferðalög. Mun ótvírætt leggja þessu málefni lið nái hann kjöri.
    Lambi – Jón Einar Haraldsson 2182 Er landeigandi og eigandi að stórum hluta hálendisins, vill að þeir slóðar sem fyrir eru séu opnir almenningi, gagnrýnir landeigendur sem loka jörðum sínum með „Einkavegur“
    Þórður Már Jónsson 7594 Góður rökstuðningur og vill tryggja almannarétt. Talar um lokanir landeigenda, er veiðimaður, útivistarmaður og jeppamaður.
    Þorsteinn V Sigurðsson frambjóðandi 2798
    Guðmar Ragnar Stefánsson 2985
    Kjartan Þór Ragnarsson frambjóðandi 6802

    B – mjög frambærilegir

    Alfa Eymars (er ekki skráð undir þessu nafni, nr. Óþekkt) Þokkalega rökstutt, telur aðgang um eignarland og ekki megi hindra aðgang almennings nema nauðsyn beri til og það rökstutt.
    Ásgeir G Bjarnason 5504 Svarar játandi er áhugamaður um veiðar og ferðalög ljúft og skylt að vinna að því að ákvæðið komi í stjórnarskrá.
    Gísli Tryggvason 3249 Vel rökstutt svar. Telur að sumir landeigendur hafi ekki virt núverandi lagaákvæði er varða almannarétt. Fyrirvarar hans og fyrri skrif um náttúruvernd valda því að hann er B en ekki A
    Guðlaugur Orri Gíslason 7803 Stutt hnitmiðað svar er hlynntur umhverfisvernd en vill ekki loka fyrir umferð almennings um hálendið og landið allt.
    Ólafur Árni Halldórsson 5273 Góður rökstuðningur, er ósáttur við lög um Vatnajökulsþjóðgarð en setur fyrirvara við nýtingarhlutann, gæti hafa misskilið spurninguna.
    Pétur Kristjánsson 6714 Vísar í sænsku grunnlögin og telur að sambærilegt ákvæði eigi heima í íslensku stj.skr.

    C – Gætu þarfnast frekari skoðunar

    Birgir Loftsson 3557 Svarar jákvætt, en vill skýrar reglur um umgengni, erum með landið að láni.
    Birna G Konráðsdóttir 4195 Landeigandi og bóndi – telur upp litla prósentið sem ætti að halda sig heima en ekki vera úti í náttúrunni.
    Elíast Pétursson 7726 Er mjög fylgjandi ferðafrelsinu, jeppamaður og vélsleðamaður en vill ekki fá þetta ákvæði inn í stjórnarskrá sérstaklega.
    Eva Sigurbjörnsdóttir 2754 Kosningalegt froðusnakk um málefnið – í raun skoðanalaus nema að náttúran sé falleg og allir eigi að fá að njóta hennar.
    Eyþór Jóvinsson 3029 Setur fyrirvara við að setja þurfi skýrar reglur um hvar skuli ferðast um landið
    Gunnar Grímsson 5878 Telur að við eigum að geta ferðast um landið án annarra takmarkana er sem lúta að náttúruvernd eða nýtingarrétti eigenda.
    Hans Gústafsson 6835 Svarar báðum sp. Játandi en ekki djúpur rökstuðningur.
    Haraldur Árnason 9662 Setur fyrirvara varðandi skynsamlega náttúruvernd
    Hjalti Hugason 7132 Vill útvíkkun á ferðafrelsinu en er ekki viss um að hann muni beita sér fyrir því að ákvæði komi inn í stj.skr. Er Jeppamaður og útivistarmaður.
    Jóhanna Heiðdal. 3425 Svarar báðum sp. Játandi. Er í skotveiði en vill betri skilgreiningar á hvað er eignarland og hvað er almenningur.
    Jónas Tryggvason 4129 Tekur spurningunum jákvætt hefur náttúruverndarsjónarmið hátt uppi og ábyrgð í umgengni.
    Karl Hjaltested 2523 Vill ekki loka af landsvæðum fyrir þröngan hóp og að verndun eigi að vera með aðgengi. Telur þetta eiga heima í stj.skr.
    Katrín Fjelsted 7715 Engin skýr afstaða – telur að almenningur muni aldrei sætta sig við annað en að mega ferðast um landið.
    Kjartan Jónsson 9387 Setur fyrirvara við nýtingu.
    Kjartan T. Hjörvar 4272 Svarar báðum sp. Játandi í ljósi þróunar undanfarinna ára.
    Kolbrún Baldursdóttir 4712 Svarar báðum sp. Játandi og telur það falla undir mannréttindi. (hef samt smá efasemdir en læt hana í C flokk)
    Kristín Elfa Guðnadóttir 6934 Svarar jákvætt og er mikil ferðakona, vill hafa kafla í stj.skr er fjallar um náttúruna og samband okkar við hana. Þ.m.t. Almannaréttur.
    Maríanna Bergsteinsdóttir 3953 Svarar ekki efnislega spurningunum en setur fyrirvara um að það eigi að vera ferðafrelsi ef umhverfið hlýtur ekki skaða af.
    Ragnhildur Sigurðardóttir 9893 Svara báðum sp. Játandi. Er ökuleiðsögumaður og jeppaeigandi, áhugamanneskja um hálendið en setur fyrirvara um náttúruspjöll vegna almennrar umferðar.
    Sigurvin Jónsson 9805 Svarar báðum sp. Játandi en ekki djúpur rökstuðningur.
    Steinar Immanúel Sörensson 7561 Hafði ekki velt þessu fyrir sér áður en telur það jafnræðismál að allir geti ferðast um landið.
    Svanur Sigurbjörnssson 4096 Svarar játandi en er með fyrirvara varðandi nýtingu. Telur málið mikilvægt og vill skynsamleg ákvæði um málefnið í stj.skr.
    Tryggvi M þ’orðarson 7121 Telur að hlúa eigi að náttúrunni en það sama eigi að gilda um alla er ferðast um landið, óháð ferðamáta og lokun landsvæða sé úr takti við sjálfbæra notkun,.
    Vignir Bjarnason 6505 Svarar báðum sp. Játandi en ekki djúpur rökstuðningur. Er jeppamaður.
    Þorsteinn 5746 Svarar ekki efnislega spurningunum en er veiðimaður og vill rétt til að ferðast um landið hvort sem er fótgangandi eða í bíl.
    Þórir Jökull Þorsteinsson 5218 Setur fyrirvara vegna náttúruverndar, eignarréttar ofl.

    D – einföld já og miklir fyrirvarar

    Anna Kolbrún Árnadóttir 3073 Tvö einföld Já án rökstuðnings.
    Auður Sigr. Kristinsdóttir 4965 Tvö einföld Já án rökstuðnings.
    Ágústa Sigrún Ágústsdóttir 3623 Svarar játandi en vill gjaldtöku við ferðamannastaði.
    Benedikt Garðar Stefánsson 6098 Tvö einföld Já án rökstuðnings.
    Birna Kristbjörg Björnsdóttir 4184 Svarar nokkuð einfalt já, en er „landeigendasinnuð“
    Björn Ingi Jónsson 8705 Tekur ekki hreina afstöðu en telur að almannaréttur sé eðlilegur.
    Björn Vernharðsson 8793 Setur marga fyrirvara varðandi eftirlit, kostnað og skilgreiningar á nýtingu. Svarar ekki afdráttarlaust,
    Dögg Harðardóttir 7572 Vill ferðafrelsi en ekki binda það í stjórnarskrá.
    Elías Gíslason 5383 Tvö einföld Já án rökstuðnings.
    Eygló Svla Arnarsdóttir 3854 Svara játandi en hafði ekki hugsað neitt út í þessi mál. Vill að náttúran haldist að mestu óspillt og það hafi forgang.
    Friðrik Hansen Guðmundsson 9156 Tvö einföld Já án rökstuðnings.
    Friðrik Þór Guðmundsson 7814 Telur ákvæði um ferðafrelsi eiga heima með náttúruvernd og ekki verði ferðast nema náttúrunni að skaðlausu.
    Guðjón Sigurbjartsson 7473 Mun fjalla um málið en hefur ekki skýra afstöðu, ætlar að setja sig inn í málið.
    Guðmundur Ágústsson 9629 Einfalt já með tillögu að ákvæði er fjallar mestmegnis um verndun náttúrunnar en almenningur hafi eðlilegan rétt sem fjallað verði nánar um í almennum lögum.
    Guðmundur Vignir Óskarsson 7913 Tvö einföld Já án rökstuðnings.
    Halldór N. Lárusson 7539 Tvö einföld Já án rökstuðnings.
    Hjörtur Hjartarson 3304 Tvö einföld Já án rökstuðnings.
    Jökull Guðmundsson 2578 Telur að almennt ákvæði í stjórnarskrá er tryggi þjóðareign á auðlindum til lands og sjávar með sjálfbæra nýtingu að leiðarljósi sé nóg til að verja ferðafrelsið.
    Kolbrún 4756 Er ekki ákveðin hvort hún vilji ákvæði inn í stj.skr. Er hlynnt almannarétti en vill ekki malbika allt né að allir geti farið hvert sem er.
    Lárus Elíasson 3447 Tekur ekki hreina afstöðu en telur að það sem við erum að biðja um eigi ekki heima í stj.skr. en segist vera félagi í 4×4
    Lýður Árnason 3876 Tvö einföld Já án rökstuðnings.
    Ólafur Jakobsson 4558 Er ekki líklegur til að vilja þetta ákvæði inn í stjskr. Setur fyrirvara t.d. Varðandi eignarrétt.
    Ólafur Már Vilhjálmsson 4745 Svarar játandi en tekur í raun ekki afstöðu til ferðamennsku heldur einungis náttúru Íslands og auðlinir séu nýttar í almannaþágu.
    Sigrún Kapitóla Guðrúnardóttir 2688 Tvö einföld Já án rökstuðnings.
    Sigurður Aðalsteinsson 5582 Tvö einföld Já án rökstuðnings.
    Sigurjón Árnason 8056 Tvö einföld Já án rökstuðnings.
    Sigurjón Jónasson 4437 Telur ákvæði ekki eiga heima í stj.skr. En mun taka umræðuna, vill ekki að allir hafi rétt til að ferðast á hvaða farartæki sem er vegna utanvegaaksturs.
    Sigurlaug Þ. Ragnarsdóttir 6054 Tvö einföld Já án rökstuðnings.
    Soffía Sigurðardóttir 9178 Svarar játandi en hefur mjög marga fyrirvara um umferðarstýringu og óþarfa eða skaðlegan átroðning á náttúruna.
    Sturla Már Jónsson 9398 Tvö einföld Já án rökstuðnings.
    Sveinbjörn Fjölnir Pétursson 4723 Tvö einföld Já án rökstuðnings.
    Sæunn Þorsteinsdóttir 4690 Svarar játandi en hefur greinilega ekki þekkingu né skilning á málefninu.
    Þórunn MJH Óafsdóttir 8694 Tvö einföld Já án rökstuðnings.
    Örn Bárður Jónsson 8353 Setur fyrirvara og að ekkert frelsi geti verið ótakmarkað. Telur að útfærslur eigi að vera í almennum lögum.

    E – Fallistar fallistanna

    Axel Kolbeinsson 2336 Telur að ákvæði um ferðafrelsi eigi ekki að vera í stj.skr heldur almennum lögum. Mun ekki beita sér fyrir því að ákvæðið komi í stj.skr.
    Ásgeir Baldursson 5064 Er ólíklegur til að vinna að hagsmunum okkar, fjallar um utanvegaakstur og landspjöll.
    Gísli Már Gíslason 4327 Mun ekki vinna að því að koma ákvæðum í stj.skr. Skrifaði skítapóst vegna samskipta sinna við Jón Snæland. Ekki hliðhollur jeppamönnum í það minnsta miðað við fyrri skrif hans.
    Guðjón Ingvi Stefánsson 8386 Telur að ákvæði um ferðafrelsi eigi ekki að vera í stj.skr heldur almennum lögum. Mun ekki beita sér fyrir því að ákvæðið komi í stj.skr.
    Guðmundur Gíslason 7792 Svara neitandi en vill að allir sem vilja og geta eigi að fá að nýta sér þjóðgarða en verði að ganga vel um.
    Guðrún Helgadóttir 2721 Hlynnt almannarétti en ferðafrelsi geti aldrei verið án skilyrða um náttúruvernd og rétt fólks til einkalífs. Svarar ekki spurningunum.Anna
    Hjörvar Pétursson 3502 Svarar báðum spurningum neitandi og rétturinn verði alltaf náttúrunnar.
    Hrefna B Jónsdóttir 4074 Finnst málið athyglisvert en telur eignarréttinn sterkann og hún mun sem landsbyggðakona verja eignarréttinn. Mun líklega ekki vinna að okkar hagsmunum.
    Indro Indriði Candi 3964 Svarar já og kannski. Vill taka umræðuna fyrst og fá rök með og á móti. Ekki líklegur til stórræða.
    Jón Steindór 2314 Telur ekki líklegt að hann muni beita sér fyrir þessu.
    Kristófer Már 2941 Telur útilokað að setja inn í stjórnarskrá leikreglur og telur að við eigum nú þegar umgengnisrétt um landið með eðlilegum takmörkunum.
    Reynir Antonsson 4657 Setja verður í lög ákvæði sem takmarka það að menn leiki sér blindfullir inni á öræfum á milljóna jeppunum sínum.
    Svavar Kjarrval 5086 Telur að ferðafrelsið sé nú þegar tryggt í 66. gr. stjórnarskrá með orðunum „Allir, sem dveljast löglega í landinu, skulu ráða búsetu sinni og vera frjálsir ferða sinna með þeim takmörkunum sem eru settar með lögum.“ Ekki líklegur til stórræða.
    Sæmurndur Sigurðsson 2996 Svarar neitandi vegna eignarréttar landeigenda, friðlýstra svæða og þjóðgarða.
    Viktor Orri Valgarðsson 2831 Er alveg úti á túni. Áttar sig ekki á því í hverju þetta felst og veltir upp hvort þá sé komin skylda á ríkið að ferja menn um landið.
    Þórgnýr Thoroddsen 7836 Telur að ákvæði um ferðafrelsi eigi ekki að vera í stj.skr heldur almennum lögum. Mun ekki beita sér fyrir því að ákvæðið komi í stj.skr.

  • Creator
    Topic
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)
  • Author
    Replies
  • 26.11.2010 at 13:54 #711714
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Ég sé að einn sem að svaraði og að því er mér fannst mjög vel er ekki þarna á listanum. Hann svaraði reyndar seint.

    Hann heitir[b:4ijc1mdq] Gísli Kr. Björnsson # 6978 [/b:4ijc1mdq]og er eini lögfræðingurinn sem að ég ætla að veita undanþágu og kjósa.
    Svar hans er hér fyrir neðan:
    —————————————————-
    [i:4ijc1mdq]Kæru 4×4, það gleður mig að þið hafið sýnt stjórnlagaþinginu þennan áhuga. Sem gamall stuðningsmaður 4×4 sendi ég glaður svör mín, en biðst um leið afsökunar á að þau hafi borist of seint. Vinsamlega staðfestið móttöku póstsins.

    1. Finnst þér rétt að binda í stjórnarskrá ákvæði um almannarétt almennings til ferðalaga og nýtingar?
    Almannaréttur byggir á fornu

    Ákvæði af þessum toga hafa verið í mörgum stjórnarskrám annarra ríkja um langt skeið, s.s. þeirri finnsku og sænsku. Í stjórnarskrá USA er að finna ákvæði um almannarétt að vatni og veiðisvæðum. Það sem menn hafa óttast eru þessi mörk milli almannaréttar og eignaréttar einstaklinga, en eignaréttur er sennilega betur varinn hér á landi en í flestum öðrum vestrænum ríkjum. Ákvæði um almannarétt var að finna í Jónsbók, en með nýjum lagasöfnum í gegnum tíðina virðsist vera eins og réttur almennings hafi farið forgörðum að þessu leyti. Umferðarákvæði og ákvæði um almannarétt tel ég nauðsynlegt að sé í nýrri stjórnarskrá, og tel að það sé skylda stjórnlagaþings að nálgast setningu ákvæðisins með þeim hætti að þessi sjónarmið almannaréttar og eignaréttar séu sett ásættanleg mörk þannig að réttur manna til ferðar sé tryggður.
    2. Munt þú beita þér fyrir því að ákvæði um almannarétt almennings til ferðalaga og nýtingar verði sett í stjórnarskrá?

    Já ég mun gera það, það er öruggt.
    [/i:4ijc1mdq]—————————————————-

    Annað sem vekur athygli mína er að frambjóðandi[b:4ijc1mdq] 7924 – Ólafur Örn Haraldsson forseti Ferðafélags Íslands[/b:4ijc1mdq] hirti ekki um að svara þessari fyrirspurn 4×4. Það þykir mér nokkuð athyglivert þar sem að skósveinar Ferðafélags Íslands hafa undanfarið verið hvað ötulastir í að berjast fyrir skertu ferðafrelsi allra annarra en hörðustu göngugarpa. Það hefði verið gott að sjá hans sjónarmið.

    Benni





    26.11.2010 at 16:38 #711716
    Profile photo of Sigurbjörn H. Magnússon
    Sigurbjörn H. Magnússon
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 207

    Takk fyrir.

    Það var fínt að fá þetta yfirlit, sem verður örugglega til þess að ég geri mér ferð á kjörstað í stað þess að sitja heima með valkvíða.

    Kv. Sigurbjörn.





    26.11.2010 at 16:50 #711718
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Þetta er til að auðvelda manni hlutina, bestu þakkir fyrir vinnuna sem þið hafið lagt í þetta. L.





    26.11.2010 at 18:10 #711720
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Hjá mér verður kosið eftir listanum. Takk fyrir fórnfúsa vinnu.

    Kv. SBS.





    26.11.2010 at 21:08 #711722
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Ég held að þakkir til stjórnar og þeirra sem að þessu verkefni hafa staðið verði seint þakkað nægjanlega, flott framtak. Ég var eiginlega alveg ákveðinn í að nenna ekki á kjörstað en þegar ég sé hvað þessir gæjar/gæjur hafa fært okkur þá er ég ákveðinn að fara yfir listann og mæta á morgun og sulla nokkrum tölum á blað. Takk Sveinbjörn, Ofsi, Benni og þeir sem lagt hafa hönd á plóginn, nú verður kosið.

    kv. vals.





    26.11.2010 at 23:36 #711724
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Nú vil ég glugga aðeins í orðasambandið rýnihópur. Það þykir mér vera hugtak yfir gamlan karl og kerlingu sem eru mjög sjóndöpur eða nánast blind með þykk og sterk gleraugu. Þau eiga mikla reynslu og visku að baki en eiga erfitt að tjá sig í nútímanum. Að rýna finnst mér verð skylt orðinu raun. Mér finnst að menn ættu að finna annað orðasamband yfir hópinn eða hópana sem viðhefur frekari virðingu á verkum viðkomandi einstaklinga.

    Kveðja SBS. Þetta eru aðeins hugrenningar sem eiga ekki að vera til þess gerðar að stela þessum frábæra þræði.





    27.11.2010 at 17:38 #711726
    Profile photo of Sveinbjörn Halldórsson
    Sveinbjörn Halldórsson
    Keymaster
    • Umræður: 87
    • Svör: 859

    Sjá hér er félagsmaður í klúbbnum sem ætti klárlega heima í A hóp

    [b:1xnss0wy]Guðmar Ragnar Stefánsson (#2985)[/b:1xnss0wy] heiti ég og er meðlimur í Austurlandsdeild 4×4 með númerið U-194. Ég er búinn að vera meðlimur í fjöldamörg ár og líkar félagsskapurinn vel. Ég tel að afar mikilvægt er að sett verði í stjórnaskránna ákvæði um almannarétt almennings til ferðalaga og nýtingar. Ég sé t.d. fyrir mér grein sem gæti hljóðað á þennan veg (í norsku og sænsku stjórnaskránni er ákvæði um þetta, í þeirri þýsku má eingöngu hamla ferðafrelsi manna þegar um t.d. hættu á útbreiðslu faraldar er að ræða): frjálst skal vera hverjum manni að ferðast um landið á merktum slóðum og jörðum/löndum sem ekki eru í einkaeign. Einnig skal hverjum manni vera frjálst að ferðast á sama svæði og er lýst hér framar að vetrarlagi á frosnu landi og/eða hjardni og tryggt sé að engin landsspjöll verði. Ferðamátinn innifelur öll hugsanleg ökutæki.

    Og einn annar álitlegur

    [b:1xnss0wy]Kjartan Þór Ragnarsson frambjóðandi til stjórnlagaþings. Nr. 6802[/b:1xnss0wy]
    Réttarvernd almannaréttar er á stefnuskrá minni sbr. 27. lið og er það mér og öðrum þeim sem vilja tryggja frjálsa för um landið og nýtingu landsgæða mikið hagsmunamál. Hef bent á það að almannaréttur er afgangsstærð í réttarkerfinu og stjórnvöld geta skv. núverandi skipan laga þrengt þann rétt og einfaldlega afnumið með öllu án þess að lagasetning komi til. Tók því sérstaklega á þessu atriði og er brýn þörf á að koma þessu málefni á framfæri til sem flestra. Því er svarið hiklaust já við að tryggja réttarvernd almannaréttar að því marki að þessum rétti yrði aðeins breytt með lögum. Í ljósi annarra tillagna minna um beint lýðræði rétt þar sem m.a. er lagt til að þjóðin geti beitt neitunarvaldi gagnvart öllum nýjum lögum frá Alþingi og þar með hindrað að þessi réttur yrði þrengdur með lögum án fullnægjandi raka og hagsmuna þjóðarinnar allrar. Sjá hér 27.lið stefnuskrár minnar:

    Réttarvernd almannaréttar
    27. Almannarétti verði veitt réttarvernd að íslenskum lögum. Réttarvernd almannaréttar fæli það í sér að almenningi yrði veitt aðild að dómsmálum og öllum stjórnvaldsákvörðunum er varða almannarétt og hvers kyns takmarkanir á honum. Til hagræðingar yrði aðild almennings bundin við frjáls félagasamtök sem hafa hagsmuni af þessum málum, s.s. útivistarfélög og skotveiðifélög.
    Til skýringar að þá felur almannaréttur í sér tiltekin takmörkuð réttindi almennings til nýtingar landsgæða og athafna utan eignarlanda t.d. veiðar á villtum dýrum, söfnun jurta og frjálsra ferða um landið. Nú er unnt að takmarka þennan rétt með einhliða stjórnvaldsákvörðunum. Almenningur getur ekki haldið uppi neinum vörnum fyrir dómstólum í þeim málum sökum aðildaskorts. Almannaréttur yrði þó eftir sem áður háður takmörkunum löggjafans og unnt að auka hann eða takmarka með lögum.





    27.11.2010 at 17:50 #711728
    Profile photo of Sveinbjörn Halldórsson
    Sveinbjörn Halldórsson
    Keymaster
    • Umræður: 87
    • Svör: 859

    Þennan lýst mér mjög vel á..

    [b:2gsi9zs1]Þorsteinn V Sigurðsson frambjóðandi # 2798[/b:2gsi9zs1]

    Ágætu ferðamenn

    Ég hef verið fylgjandi því frá unga aldri að landsmenn geti óhindrað ferðast um landið sitt, hvort sem það er gangandi, ríðandi eða akandi svo fremi sem það er gert af virðingu fyrir náttúrunni sem ég efast ekki um að þið félagar í 4×4 gerið.

    1. Finnst þér rétt að binda í stjórnarskrá ákvæði um almannarétt almennings til ferðalaga og nýtingar? Já alveg tvímælalaust.

    2. Munt þú beita þér fyrir því að ákvæði um almannarétt almennings til ferðalaga og nýtingar verði sett í stjórnarskrá? Já, ég mun gera það.
    Með þökk fyrir fyrirspurnina.
    [b:2gsi9zs1]
    Þorsteinn V Sigurðsson
    frambjóðandi # 2798[/b:2gsi9zs1]





    27.11.2010 at 18:29 #711730
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Einn galli við þennan síðasta. Hann gerir allt á síðustu stund. Slæmir eiginleikar að gera á morgun það sem hægt er að gera í dag.





    27.11.2010 at 18:32 #711732
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Það verður spennandi að sjá hvernig þeim 5 þingmönnum sem bjóða sig fram gengur gegn nýjum andlitum eða hvernig stjórnarmönnunum tveim úr FÍ gengur





    30.11.2010 at 16:38 #711734
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Ha, ha, ha, ha, ha, við erum búinn að vera. Af öllum þeim sem klúbburinn valdi til að yfirfara skánna þá komst einn af þeim inn. Er þetta þjóðarsálin eða voru félagsmenn 4×4 svona lélegir í að mæta á kjörstað.

    kv. vals.





  • Author
    Replies
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.