FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Mýrdalsjökull – smá pælingar

by Benedikt Magnússon

Forsíða › Forums › Spjallið › GPS og leiðir › Mýrdalsjökull – smá pælingar

This topic contains 4 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Árni Alfreðsson Árni Alfreðsson 17 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 06.01.2008 at 01:45 #201542
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant

    Ég var að skoða gömul trökk og rútur af Mýrdalsjökli o.fl. sem ég hef einhverstaðar komist yfir og fann þar rútu niður Sandfellsjökul. Eru dæmi um að menn hafi farið þar um á jeppum og ætli þetta sé fært bílum í dag ?

    Hvað með aðra staði á Mýrdalsjökli, t.d. Kötlujökul og Entujökul ? Er hægt að aka upp/niður þessa skriðjökla ? (ég á track upp í miðjan Entujökul og hef sjálfur keyrt aðeins niður hann og eins fram á brún Merkurjökuls og þar langar mig ekki niður)

    Eða einhverjir aðrir staðir – ég þekki bara leiðir frá Fimmvörðuhálsi, Sólheimajökli og Sléttjökli.

    Benni

  • Creator
    Topic
Viewing 4 replies - 1 through 4 (of 4 total)
  • Author
    Replies
  • 06.01.2008 at 15:19 #609270
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Hvaða bjáni hefur keyrt upp miðja Entujökul, en ekki alla leið. Jökultungan í Sandfellsjökli nær niður fyrir 300 metra og er eflaust snjólaus og slæm yfirferðar, en á snjóavetri er þetta eflaust lítið mál, en ég hef ekki farið þarna sjálfur.

    Góðar stundir





    06.01.2008 at 21:09 #609272
    Profile photo of Árni Alfreðsson
    Árni Alfreðsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 280

    Suðurjöklahringur nefnist ferð sem liggur milli innstu bæja í Fljótshlíð og Eyjafjöllum, sitthvoru megin Markarfljóts. Frá Fljótsdal í Fljótshlíð, um Tindfjalla-, Mýrdals- og Eyjafjallajökul að Stóru-Merkur undir Eyjafjöllum -eða öfugt. Fyrst fórum við þetta fyrst 1983 og nú síðast 2004. Að mínu mati er þetta ein magnaðasta skíðaleið sem hægt er að finna.

    Farið er upp Entujökul þegar farið er upp á Mýrdalsjökul. Neðri hluti jökulsins er að mestu marflatur og vel fólksbílafær. Ég man að 2004 var snjólaust upp í 1000 m hæð og skíðað á ís. Það eru hins vegar verulega stórar sprungur sem lokast illa eða ekki ofarlega þar sem ísfallið slitnar frá meginjöklinum. Ég held að þetta sé ekki skynsamleg ökuleið svona almennt séð. Mjög gott skyggni er meginforsenda og samt er verið að tefla á tæpt vað.

    Kv. Árni Alf.





    06.01.2008 at 23:17 #609274
    Profile photo of Einar Bárðarson
    Einar Bárðarson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 88

    Þetta eru allt spurningar. Ég hef farið nokkrum sinnum niður í Entu jökulinn bæði í snjó og snjóleysum, þ.e á ís. Þar eru helv. stórir gígar. Sléttjökull er sjálfsagt allt í lagi fór hann eittsinn í mælingarskini 2001 ca og þá voru settir niður mælar í Apríl,um páska og sóttir um sumarið, þar var snjórinn svei mér þá ca 4 m þykkur um páska og ís um miðjan júlí, Sandfellsjökull er sennilega fær í snjó en Kötlujökullinn er það varla, hann er svo fjandi grófur. Einnig hef ég farið í Goðaland og þangað held eg nú að enginn ætti að fara nema að vel athuguðu máli.

    kv.

    Einar B





    07.01.2008 at 01:30 #609276
    Profile photo of Árni Alfreðsson
    Árni Alfreðsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 280

    Væri séns að fá upp mynd af jöklinum og leiðirnar sem menn hafa verið að fara? Örnefni er dálítið á reiki og ég er ekki alveg viss um að við séum að tala um sama svæði. Allavega þá væri fróðlegt að fá að sjá hvar menn hafa verið að dóla sér.

    Kv. Árni Alf.





  • Author
    Replies
Viewing 4 replies - 1 through 4 (of 4 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.