FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

mýrdalsjökull

by Ólafur H Ómarsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › mýrdalsjökull

This topic contains 9 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Friðfinnur Guðmundsson Friðfinnur Guðmundsson 15 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 12.04.2010 at 08:37 #212051
    Profile photo of Ólafur H Ómarsson
    Ólafur H Ómarsson
    Participant

    góðan dagin hér,eru einhverjir að fara uppað gosi í dag ,langar að fara en myndi vilja vera í samfloti var þá að hugsa um seinnipartin símin hjá mér ér 8470126 ef einhver er að fara og vantar ferðafélaga á þessum slóðum.

  • Creator
    Topic
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)
  • Author
    Replies
  • 13.04.2010 at 01:35 #690398
    Profile photo of Hjörtur Sævar Steinason
    Hjörtur Sævar Steinason
    Participant
    • Umræður: 89
    • Svör: 1242

    Fórst þú að gosstöðvum og hvernig var? Er gosið að fjara út eða segðu frá og helst mynd með ef þú fórst.
    Kveðja Hjörtur og JAKINN sem ætlar í dag (kannski)





    13.04.2010 at 12:06 #690400
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Við fórum nokkrir uppeftir í gær til að líta á gosið, það er skemmst frá því að segja að það er búið. Það sást hvergi í glóð að neinu viti en hiti í öllu þarna. Þeir sem voru þarna á ferðinni fóru allir eða flestir niður þegar fór að rökkva enda ekkert að sjá en samt var mjög gaman að ganga þarna um og skoða ummerkin.

    kv. vals





    13.04.2010 at 12:16 #690402
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Valur, gastu ekki búið til nýja sprungu ?

    kv. Óli





    13.04.2010 at 14:23 #690404
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Óli, það var nú tilgangur ferðarinnar þar sem við höfðum heyrt að gosið væri að verða lokið, ég ætlaði að espa það upp eða búa til nýja gossprungu eins og síðast, þannig að við fengjum lengri tíma til að virða fyrir okkur þessi náttúruspjöll, til öryggis hafði ég með mér tvo 46" Forda ef þörf væri á að draga mig upp úr nýrri gossprungu. Ég varð bara fyrir því óláni að gott og gamalt púst gaf sig sem er ekki til frásögu færandi nema fyrir þær sakir að beint fyrir aftan gatið var loftpúðinn. Þegar ég var kominn upp að snjó kom smá Hvellur og þegar ég leit undir jeppann sá ég að loftpúðinn, sem áður var í fullkonu lagi, var steiktur það var komið brunagat á honum. Þannig að við sem vorum í Pajero hoppuðum uppí Fordana og renndum inn að gosstöðvunum. En þér að segja þá treysti ég ekki þeim til að stuðla að áframhaldi á gosinu, það er eingöngu Pajeroum treystandi til svona stórverka en ég treysti því að þú segir þeim ekki frá þessu þar sem þeir verða örugglega ekki sammála mér.

    kv. vals.





    13.04.2010 at 20:39 #690406
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Já nú skil ég. Kannski líka ágætt að láta þessa blessuðu rannsóknarskýrslu fá fókus í nokkra daga áður en þú opnar nýja sprungu :-)

    kv. Óli





    14.04.2010 at 00:24 #690408
    Profile photo of Hjörtur Sævar Steinason
    Hjörtur Sævar Steinason
    Participant
    • Umræður: 89
    • Svör: 1242

    Komuð þið eitthvað nálægt Hámundi. Ég held að þið hafið gert honum eitthvað því hann er illur nú.
    Kveðja Hjörtur og JAKINN.is





    14.04.2010 at 13:10 #690410
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Valur, ef það þurfti tvo 46" forda til að setja Eyjafjallajökul af stað, hvað ætli þurfi til að stríða Kötlu … maður spyr sig ….

    kv. Óli





    14.04.2010 at 13:10 #690412
    Profile photo of Þröstur Þór Ólafsson
    Þröstur Þór Ólafsson
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 137

    Munið að hafa snorkel á bílunum og vara ykkur á úrrenslinu við Markarfljótsbrúnna. :-)
    Kv
    Þröstur





    14.04.2010 at 13:40 #690414
    Profile photo of Friðfinnur Guðmundsson
    Friðfinnur Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 10
    • Svör: 218

    [quote="Þröstur":37cu6vmi]Munið að hafa snorkel á bílunum og vara ykkur á úrrenslinu við Markarfljótsbrúnna. :-)
    Kv
    Þröstur[/quote:37cu6vmi]

    Góður





  • Author
    Replies
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.