FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

myndaalbúm

by Agnar Benónýsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Vefsíðan › myndaalbúm

This topic contains 27 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Jón Tómas Erlendsson Jón Tómas Erlendsson 20 years, 1 month ago.

  • Creator
    Topic
  • 21.04.2005 at 16:27 #195861
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant

    Fari það í þrefaldar og þrálátlega þrívíðar marglyttur og fjandinn og andskotinn sjálfur og grábölvaður andskoti því til viðbótar …..

    Nú er ég búinn að fá smá útrás fyrir pirringinn og get því spurt eftirfarandi spurningar:

    Af hverju dett ég alltaf út þegar ég er að hlaða myndum inn í nýtt albúm?

    Var búinn að eyða smá tíma í að búa til albúm og setja inn myndir með texta en eftir smá stund datt ég út (eins og ég væri ekki lengur loggaður inn) og því vistaðist ekki albúmið með myndunum í og albúmið finn ég ekki í myndaalbúminu mínu. Myndirnar sjást þó í myndaalbúmi síðunnar en þó er ekki hægt að opna þær.

    ég sit því upp með fullt albúm (allt plássið kláraðist við þetta) en engar nýjar myndir og enga nýja möppu. Félagsmenn geta séð thumbnail en ekki opnað myndirnar til að sjá textann þar sem albúmið er ekki til …….

    er verið að vinna í þessu eða eru menn bara í próflestri þarna fyrir norðan??

    kv
    AB

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 21 through 27 (of 27 total)
← 1 2
  • Author
    Replies
  • 22.04.2005 at 14:32 #521620
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þetta með hebresku röðina var tilvitnun í annan þráð, en rangt hjá mér að sú hugmynd hafi komið frá Glowe þó hann hafi að vísu tekið undir það. Það leiðréttist hérmeð. En væri hún tekin upp væri ég vís með að enda hverja ræðu á að leggja til að sú uppsetning yrði aflögð, líkt og Kató gamli. Þetta með tilvísun neðst á þráðunum líkt og var í gamla spjallinu er örugglega ágæt hugmynd. Ég reyndar notaði það ekki á gömlu síðunni því það vísaði manni eiginlega á vitlausan stað, nefnilega upphafssíðu í þeim efnisflokki sem þráðurinn tilheyrði. Efst var hins vegar vísun í upphafssíðu spjallsvæðisins, en hér hefur maður alltaf slíkan link efst, sem er kostur.

    Með að skipta upp þráðum. Ég dett stundum inn á Landrover forum sem er með svona fyrirkomulag og það finnst mér frekar leiðingjarnt. Vill bara sjá þetta allt strax, enda sjaldan sem þræðirnir verða svo langir. Rétt eik, ég var með modem og var frekar latur við að fara inn heima þó það kæmi fyrir. Það var þó ekki langir spjallþræðir sem voru hindrun, nema hvað ég forðast tækniþráðinn um Pajero (enda ekkert áhugavert í honum) og þráðinn um "sjálfstætt fjöðrunarsvið" (eða var það ósjálfrátt fjöðrunarsvið?). Að öðru leiti voru svona hreinir textaþræðir fljótir upp, svo fremur sem menn hafi ekki verið að troða myndum inn í þá. Aðallega er bara svo leiðinlegt að þurfa að standa í að hringja inn!





    22.04.2005 at 14:50 #521622
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Ég er ekki, endurtek, EKKI meðmæltur Hebrezku röðuninni enda kemur það illa út þegar til lengdar lætur.

    Ráðlegg mönnum að skoða Pajero tækniþráðinn sem er kominn eitthvað vel yfir 300 svör ef ég man rétt. Tekur sinn tíma að skrolla niður hann allann og svo upp aftur ef menn detta út úr skráningunni.

    Hvernig væri að miða við 50 pósta á hverja blaðsíðu? Vera svo með blaðsíðunúmerin eins og á gömlu síðunni og tengil beint á aðalsíðu spjallsins, ekki flokksins og svo tengil efst á síðu?

    Held að það komi vel út og það er að auki notendavænt.





    22.04.2005 at 15:30 #521624
    Profile photo of Rangur
    Rangur
    Participant
    • Umræður: 3
    • Svör: 376

    Mörg spjallkerfi eins og t.d. það sem er notað hér http://www.lrenthusiastforum.com/ubbthr … oard=UBB10 bjóða upp á fara beint inn á ákveðna síðu eða fá allan bunkann í einu. Þá geta allir verið kátir.

    kv.

    ÞÞ





    22.04.2005 at 16:21 #521626
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þorsteinn þetta er náttúrulega snilld, en n.b. þetta er LAND ROVER spjall og við náttúrulega vitum að þeir eiginleikar sem tilheyra Rovernum eru kannski ekki allra.
    Kv – Skúli





    22.04.2005 at 20:54 #521628
    Profile photo of Sigurlaugur Þorsteinsson
    Sigurlaugur Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 1915

    Væri ekki ráð að henda þessu síðudæmi út í hafsauga og byrja bara aftur það getur varla tekið lengri tíma en það sem eftir er í að klára þennann ekki síst ef vefarinn er farinn í fýlu
    Kv Klakinn





    22.04.2005 at 21:29 #521630
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Tilbúnir í smá tilraun? Ef svo er, þá er ég til í að setja upp tilraunasvæði á servernum hjá mér með fréttakerfi, auglýsingum, myndaalbúmi og spjallsvæði og sjáum hvort það væri einhver grundvöllur fyrir þannig fyrirkomulagi.

    Kveðja. Keli.





    23.04.2005 at 00:34 #521632
    Profile photo of Jón Tómas Erlendsson
    Jón Tómas Erlendsson
    Member
    • Umræður: 10
    • Svör: 98

    Varðandi deildar meiningar um ágæti þess að hafa spjallið í hebreskri röð mætti hafa það sem valkost!
    Þannig mætti setja takka efst í spjallþráðin sem vixlaði á milli röðunaraðferðar.

    En hvað er að frétta af lagfæringu á myndaalbúminu?? Maður er hættur að nenna að skoða myndir hér á vefnum. Ég er sammála því að ég vil ekki gamla vefinn aftur, en myndaalbúmið þar var mun aðgengilegra. Væri ekki hægt að taka upp gamla albúmið með notendum í stafrófsröð eða í röð á dagsetningu.

    Jón Erlendsson





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 21 through 27 (of 27 total)
← 1 2

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.