FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

mótmæli

by Valdimar Oddur jensson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › mótmæli

This topic contains 47 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Einar Elí Magnússon Einar Elí Magnússon 20 years, 1 month ago.

  • Creator
    Topic
  • 14.03.2005 at 18:37 #195671
    Profile photo of Valdimar Oddur jensson
    Valdimar Oddur jensson
    Member

    Hverjir eru til i að mótmæla þungaskattsbreytingu? Ef það eru einhverjir til i það þá bara að taka sig saman og áhveða dag og eitthvað svoleis.
    Kv: Oddur

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 41 through 47 (of 47 total)
← 1 2 3
  • Author
    Replies
  • 18.03.2005 at 13:56 #518940
    Profile photo of Bjarni Gunnarsson
    Bjarni Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 78
    • Svör: 1462

    Ég hafði nú eðlilegt innan gæsalappa. Auðvitað er ekki eðlilegt að borga 100 kall fyrir lítrann af hvort sem er bensíni eða dísel. En eins og bent er á þá væri lang sanngjarnast að sama gjald væri lagt á bensín og dísel. Innkaupsverðið myndi þá ráða verðmuninum.

    Bjarni G.





    18.03.2005 at 21:40 #518942
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Jæja, loksins eru menn búnir að sjá þetta sem ég – og reyndar örfáir fleiri – hef verið að benda á í tengslum við umræður um nýtt skattlagningarkerfi á dieselvélaeldsneyti. Þjóðverjar, svo dæmi sé tekið, hafa það sjónarmið, að vegna þess að það sé þjóðhagslega hagkvæmt að sem flestir aki á diesel knúnum bifreiðum, vegna þess að dieselvél eyðri færri lítrum pr. ekinn km en bensínrokkur, jafnvel þótt ultra sparneytinn sé, þá eigi að ýta undir það með því að skattleggja dieseleldsneyti minna en bensín. Þetta viðhorf mun vera uppi í fleiri löndum Evrópu. Þar af leiðir að diesel fuel er ódýrara í flestum löndum Evrópusambandsins en regular gasoline. Nú, hinsvegar mun það sjónarmið uppi í fjármálaráðuneytinu hér, eins og ég hef ansi oft getið um hér, að eigendur dieselknúinna ökutækja eigi ekki að njóta þess hagræðis, sem af því hlýst að diesel vélar nota færri lítra pr. orkueiningu/ekinn km eða hvaða viðmið menn kjósa að nota, heldur eigi að jafna þennan mun með því að skattleggja diesel fuel hærra. Eins og kemur fram hér hjá nokkrum ágætum félögum hér litlu ofar er alveg ljóst, að diesel fuel verður dýrara pr. lítra en regular gasoline en líklega nær 98 octane. Ég er hinsvegar dreifari og þarf því að borga ansi mikið hærra verð pr. lítrann en þið flest, en ég geri mér ljóst að það hefur enginn beðið mig að búa á einhverju krummaskuði svo það er mitt vandamál. Verðið pr. lítra var hér á næstu stöð við mig í kvöld kr. 47,60 pr. lítra í sjálfsafgreiðslu, en verður líklega komið í 50 kallinn í fyrramálið skv. nýjustu fréttum. Hvað sem því líður, þá er verðhlutfallið milli eldsneytistegunda eitthvað svipað og syðra og það er jú það sem þessi umræða snýst um.





    18.03.2005 at 22:27 #518944
    Profile photo of Bragi Guðnason
    Bragi Guðnason
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 276

    Ég er sko ekki til í að borga 100 kall fyrir líterinn af eldsneyti hvort sem það er bensín eða dísell, þetta er örugglega hæsta eldsneytisverð í heiminum.

    Ég legg til að við sameinumst bandaríkjunum bara sem the 53rd state eða eitthvað. Láta bensínið kosta þetta 45 kall eins og er þar, þó að við þyrftum að þola hriðjuverkaárás á 5 ára fresti þá væri mér alveg sama ef ég gæti þá rekið mína V8 big block með bros á vör.

    Jeppakveðjur,

    Bragi G





    19.03.2005 at 00:18 #518946
    Profile photo of Guðmundur
    Guðmundur
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 118

    Er að mig minnir núna um $2 á gallon..
    Hér er það uppfært reglulega (AAA)
    http://www.fuelgaugereport.com/MDavg.asp

    Verðið í USA ræðst aðallega af stefnu stjórnvalda, þar eru fjarlægðir langar og til að halda hagkerfinu gangandi (selja dýra stóra bíla t.d. ) þá er verðinu haldið niðri.. dollarinn fellur ef verðið fer upp. Bandaríkin halda líka miklum umframbirgðum til að tryggja sig.

    Annað sem er áhugavert, dáldið tengt þessu og stefnu þeirra. Í stjórnartíð Bush, hefur verið komið á skattafslætti fyrir kaup á stórum bíl (VAN, SUV, Trucks.. ofl) skattafsláttur upp að $20.000 að mig minnir… Þetta er gert með markmiði að efla efnahag USA og auka sölu þessara bíla.

    Þetta var gert á sama tíma og þeir eru að styðja þróun á öðrum orkugjöfum ofl.. umhverfisvernd . . .

    Hinsvegar þá er Bush með stefnu sinni að koma dollarnum niður í sögulegar lægðir.. sem er reyndar ágætt fyrir okkur verslunarglaða íslendinga. En dæmi hver fyrir sig.





    19.03.2005 at 13:27 #518948
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    ég skal bara fara í það mál að flytja inn alvöru bensínvélar fyrir ykkur :) Patrol með 454 bbc er TÖFF!

    Kveðja Einar Kristjánsson





    25.03.2005 at 01:40 #518950
    Profile photo of Valdimar Oddur jensson
    Valdimar Oddur jensson
    Member
    • Umræður: 25
    • Svör: 198

    jaha





    14.04.2005 at 18:51 #518952
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 942

    Ég styð heilshugar vel hugsuð og ígrunduð mótmæli. Eggjakast er síður vænlegt til árangurs en bjúrókratískar leiðir. Sorglegt (og leiðinlegt) en svoleiðis fara víst kaupin fram á eyrinni okkar.

    Hins vegar legg ég til að við munum öll eftir þessu í næstu alþingiskosningum. Þjóðin fær það sem hún á skilið og ef þessi hækkun nær fram að ganga geta kjósendur sjálfstæðis- og Framsóknarflokks sjálfum sér um kennt.

    Og við hin getum líka kennt þeim um það :-)

    Legg því til að fólk muni eftir kjörtímabilinu þegar kemur að kosningum.

    Kv.
    EE.





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 41 through 47 (of 47 total)
← 1 2 3

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.