Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Mótmæli….róttækari aðgerðir
This topic contains 43 replies, has 1 voice, and was last updated by Karl Guðnason 16 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
02.04.2008 at 23:18 #202230
Sælir félagar. Hvernig væri ef við myndum taka olíufélögin og ríkisstjórnina sérstaklega fyrir í þessum mótmælum.
Vörubílstjórar gætu til dæmis tekið rúnt yfir einhverja nóttina og sturta malarhlössum kringum bensíndælur og í innkeyrsur ráðherrana þannig að þeir kæmust hvorki lönd né strönd.
Það væri líka hægt að nota steyptu vegatálmana eða bara eitthvað sem hægt er að fjarlægja síðar.Það væri líka geggjað fyndið að mæta með traktor og skítadreyfara og láta vaða á alþingishúsið.
En svona í alvöru talað, ef allir myndu setja ímyndunaraflið á fullt þá fynndust örugglega nokkrar sniðugar og árangusríkar aðferðir.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
02.04.2008 at 23:44 #61909003.04.2008 at 00:45 #619092
það þarf að passa sig að gera hlutina á þann hátt að það sé ekki hægt að láta okkur líta út fyrir að vera vondafólkið eins og er alltaf gert
Örygginu óttað með að koma í veg fyrir aðgang sjúkrabíla og flr
sem mér finst vera bara klausa sem þeir nota til að halda mótmælum í skefjumen ef einhverjir eru til í að taka afleiðingum þeim sem svona róttækar aðgerðir geta leitt af sér verði þeim að því
það væri kanski gaman að komast að því hvað þessir kallar sem hafa einhver tök á þessu séu með í laun og hvað mikin ökutækjastyrk þeir séu með
03.04.2008 at 00:50 #619094ég er alveg fylgjandi í því sem þú skrifar hér að ofan en svo kemur hugsunin um ofga, ég sem og fleyri eflaust, er með flottar hugmyndir í mótmæli og mundu gera annaðhvort ráðherra reiða og ekkert mundi gera eða vekja þá til lífsinns og eitthvað yrði gert í þessum málum, en svo er spurningin um að ganga út í öfgar með hlutina. mér t,d líður svoldið eins og í teiknimynd þar sem engillinn er á annari öxlinni og skrattinn á hinni:D málið er bara að halda mótmælum áfram EKKI hætta fyrr en það er BÚIÐ að breyta hlutunum svona "nammidagur" eins og esso var með í dag er ekki neitt og engin breyting!! ég veit að það verða fleiri mótmæli en svo er bara málið að halda þeim við hvort sem að það eru félagasamtök eða bara almenningurinn sem stendur fyrir þeim skiptir engu bara taka þátt og láta í sér heyra, en fyrir þá sem hafa hugmyndir að mótmælum um að gera að segja sínar hugmyndir t,d inná þennan þráð því það er alltaf gott að eiga fleiri hugmyndir en færri:D en bíðum með inkeyrslur ráðherrana aðeins lengur og sjáum hvernig fer.
Eins og hún Lella segir með sóma Vér Mótmælum!
Kv Davíð K
03.04.2008 at 10:05 #619096Ég hef aðeins verið að [url=http://glanni.blog.is:1ldxhttc][b:1ldxhttc]blogga[/b:1ldxhttc][/url:1ldxhttc] hér skoðið það og dritið pósti á alla sem ykkur dettur í hug, ég er búinn að senda á nokkra.
Kv.
Glanni
ps. hafið svo samband við Lellu ef þið viljið taka þátt í frekari og áhrifaríkum aðgerðum.
03.04.2008 at 11:33 #619098í dag er síðasti dagur til að hafa samband við mig til að vera með í næstu aðgerð………..
sem er ekki á mínum vegum, ég er bara sendiboði
vér mótmælum allir
Lella
03.04.2008 at 11:36 #619100góð mótmæli, og ég styð áframhaldandi mótmæli.
En hvers vegna ekki að mótmæla því sem skiptir meira máli, okurvöxtum. Þá verð ég með!Kv. Gunnar
03.04.2008 at 11:39 #619102ja til dæmis hefur eldsneytisverð áhfif á vexti og verðbólgu…….
Vér mótmælum allir
Lella
03.04.2008 at 11:44 #619104Það verður að hamra járnið á meðan það er heitt.
Eitt í einu.Kv.
Glanni
03.04.2008 at 13:56 #619106Eitt sem hef doldið tekið eftir í umfjöllunum um þessar aðgerðir atvinnubílstjóra er m.a. að það er alltaf talað um að þeir séu að stofna umferðaröryggi í hættu. Það þarf að beina þessum spjótum að stjórninni. Atvinnubílstjórar eru búnir að lýsa því yfir að aðgerðum verði ekki hætt fyrr en ríkisstjórnin bregst við, þessvegna verður ríkisstjórnin að fara að bregðast við svo að það verði hætt að stofna umferðaröryggi í hættu.
03.04.2008 at 16:22 #619108það er nú annað sem mætti mótmæla það er að við fáum ekki að kaupa litað bensín á sláturvelar báta vélsleða og fl mér finst ríkið í rauninni vera að ræna okkur og komast upp með það annað en þeir sem ræna ríkið
03.04.2008 at 17:34 #619110Ég gef ekkert voðalega mikið fyrir að þetta stofni umferðaröryggi í hættu. Með því að stöðva umferð verður hún jú talsvert öruggari! Vissulega skaðar þetta afkastagetu umferðarmannvirkja (sem við borgum fyrir) en í þessum skilningi er það ekki öryggismál.
Svo er lögreglan nú með fína TETRA kerfið (sem við borgum fyrir) og allt svo þeir ættu nú að geta komið skilaboðum til þeirra sem eru að snæða vöfflur og drekka kaffi með mótmælendum ef forgangs/neyðarakstur þarf að komast í gegn.
En það dugar greinilega ekki nálægt hinu háa alþingi því ekki má keyra stóra bíla þar og kannski ekki heldur á þeim götum sem eru á leið forsætisráðherra frá heimili hans til alþingis? Eða frá heimili forsætisráðherra út á flugvöll þar sem hann tekur einkaþotu (sem við borgum fyrir).
03.04.2008 at 18:36 #619112Ég mótmæli því að þessum mótmælum sé beint að Lögreglumönnum og öðrum löndu. Lögreglan er bara að sinna sinni vinnu sem er jú að halda umferð gangandi og í lagi.
Einnig segir einhver að umferð sem sé stopp sé örugg en þar er farið með vitlaus mál, því ef einhver fær aðsvif eða hjartatruflanir þá er ekki auðvelt að komast að þeim bíl, eða hús á bíl. Á morgnana er einn algengasti tíminn sem fólk fær hjartaáfall en þá er ekki sniðugt ef einhver myndi láta lífið vegna mótmæla.Snúum mótmælunum gegn olíufélögunum og eigendum þess, um 80% innkoma þeirra kemur frá sjoppurekstri og ættu þeir að geta minkað mikið álögur sýnar á eldsneyti.
Vaskurinn sem ríkið fær er hinsvegar oft notað til þessa að byggja upp samfélagið og rennur því til okkar aftur þar sem við myndum jú ríkið.Kv. Biggi
03.04.2008 at 18:50 #619114Vissulega rétt hjá þér að beina ekki mótmælunum að lögreglunni en lögreglan þarf nú aðeins að fara að passa sig. Upp eru komnar ásakanir að þeir elti orðið trukkara og sendibílstjóra út um allan bæ og séu að stöðva þá fyrir hina ýmsu hluti bæði til að sekta og bara til að trufla þá… þetta eru lögregluofsóknir ef satt er og það er ekki lítið alvarlegt.
03.04.2008 at 19:19 #619116Ríkisvaldið hefur úr hærri upphæð að spila í heildareldsneytisverði til að koma á móts við landsmenn en olíufélögin. Ríkið er að taka a.m.k. tvöfalt meira til sín af hverjum lítra. Niðurfelling eða tilfærsla á eldsneyti í VSK flokkun myndi t.d. skila meiru en alger niðurfelling álagningar olíufélaganna á eldsneyti.
Ég er með þessu ekki að verja olíufélögin á neinn hátt en business er business, einkaþotur á minn kostnað fyrir einhverja ráðherra er hins vegar allt annað mál.Vér mótmælum allir! (og seldum díselbílinn og spörum með því að kaupa v12 bensínsleggju!)
03.04.2008 at 19:24 #619118Eru ekki til vörubílar sem eru aðeins eyðslugrennri ?? allavega voru þeir til þegar ég var í þessum geira eyðsla 50-70 lítrar….. mér fannst mikið þegar þegar bíllinn hjá mér eyddi 50 lítrum, þurfa þessir menn að vera á 600+ hestafla bílum til að keyra ofan úr Lambafelli ??
Ps. en ég er sammála að olíu/bensín verð sé orðið of hátt.
Kv Bubbi
03.04.2008 at 19:43 #619120Jú ég las um daginn ágætis rök fyrir því að sú stærð bíla sem er verið að nota á Íslandi í dag væri ekki sú hagkvæmasta (finn það því miður ekki núna) en sama má auðvitað segja um okkur, við gætum keyrt um á Yaris. En meðan staðgengilsvara er ekki til staðar (alvöru almenningssamgöngur fyrir almenning og m.a. sjó/flug-flutningar fyrir vöruflutninga) þá er eldsneytisverð talsvert heitara mál en það kannski "þarf" að vera.
Auðvitað mætti hagræða með að velja réttu flutningsleiðina (sjó,flug,land) eftir þörfum en þegar húsið brennur þá er oft seint að kaupa reykskynjara, það þarf að hringja í slökkviliðið.
03.04.2008 at 19:52 #619122Ég held að flutningafyrirtækin hafi verið að fá sér hagkvæmari bíla í þessa landflutninga (Landflutningar/Samskip og Flytjandi) á síðustu árum. Hvers vegna ætli það heyrist ekki neitt frá þeim í þessum mótmælum ? þeir hljóta að hafa mikill hagsmuna að gæta og eins bílstjórarnir í sambandi við vökulögin ? eða er einvher leið hérna á Íslandi sem er það Löng sem þarf svona hvíldarplan ? Hvar eru ferðaþjónustufyrirtækin ? Því miður þá stórefast ég um að það náist neitt fram í þessum mótmælum.
v Bubbi
03.04.2008 at 20:05 #619124Ég er algjörlega sammála því að berjast fyrir lituðu bensíni.
Lituð olía en ekki litað bensín er svo mikil heimska og rán um hábjartan dag að það nær ekki nokkurri átt
03.04.2008 at 20:23 #619126Það er mín skoðun að lítið hjálpi að ríkið lækki sínar álögur á oliu og bensín. Ég álít að oliu félögin myndu stela þeim afslætti nánast samdægurs. Svona rétt eins og þegar kaupmenn stálu matarskattinum nú fyrir ekki löng.
Semsagt, ef ríkið gefur eftir álögur sínar flytjast þeir peningar úr ríkissjóði vasa oliufurstana.Kveðja SBA
03.04.2008 at 21:04 #619128Það er alltaf verið að tönnlast á því hjá ríkisstjórninni að álagning á eldsneyti á íslandi er með því lægsta sem að gerist í evrópulöndunum.
En hey…Það eru þó ökuhæfir vegir í þeim löndum annað en hérna á íslandi. Utan höfuðborgasvæðisins þá ertu bara komin á hörmulega vegi, getur ekki átt flottan bíl og farið í ferðalag útá land án þess að koma með hann stórskemmdan til baka.
Væri alveg sáttur með að borga þetta gjald og kannski aðeins meira ef að vegirnir hérna á landi yrði ökuhæfir. En eins og staðan er í dag þá mættu þeir alveg lækka það.Síðan er verið að tala um á hverjum mótmælin bitna.. Auðvitað þeim sem að kusu þessa ríkisstjórn og kjósendur sjá nú hversu fljótt ríkisstjórnin bregst við athugasemdum almennings og hugsa sig þá eflaust 2svar um í næstu kostningum.
Síðan finnst manni svoldið súrt að þegar heimsmarkaðsverð á eldsneyti hækkar þá eru olíufélögin búin að hækka á sömu sekúndunni, en þegar það lækkar þá eru þeir í margar vikur að því.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.