This topic contains 42 replies, has 1 voice, and was last updated by Baldur Hauksson 18 years, 8 months ago.
-
Topic
-
You must be logged in to reply to this topic.
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
||||
Menu |
This topic contains 42 replies, has 1 voice, and was last updated by Baldur Hauksson 18 years, 8 months ago.
Ég verð með ef að 4×4 standa fyrir signámskeiði, tel ég það vera hið besta mál.
kv:Kalli hífaslaka
Hvernig væri það nú að stjórn 4×4 myndi fá einhverja frá aðildarsveitum Landsbjargar til að koma og kenna nokkur grunnatriði í línu meðhöndlun, bara einföldustu útgáfu á því hvernig á að redda sér. Björgunarskóli Landsbjargar hefur marga frábæra leiðbeinendur á sínum snærum og einnig Ísalp líka eins og búið er að koma fram hér áður.
Eg mönnum er eitthvað illa við orðalagið í grein fyrrverandi formanns alpaklúbbsins þá má bara tala við Landsbjörg, þeir vilja eflaust jafn mikið komast hjá því að þurfa bjarga okkur eins og við viljum komast hjá því að lenda í slysi.
Til þín Þórir
Ég er ekki að dæma þig langt því frá, mér finnst einhvern veginn eins og að þessi grein hafi eitthvað farið í þig og bendi ég þar á fyrsta innlegg þitt í þennan þráð. Þegar að ég las hana reyndi ég að horfa framhjá hrokanum, það er eitthvað sem að greinarhöfundur verður bara að láta plaga sjálfan sig. En það er mjög góður punktur í þessari grein hjá honum, eins og sést á umræðunni hérna. Ég efast ekkert um að það sé fínt að ferðast með þér og þú ert örugglega ekkert verri en allir hinir , sem eru virkilega fínir allavega þeir sem að ég þekki.
Þannig að ekki verða fúll þótt að það sé einhver sem að líkar ekki við jeppamenn, eins og þú veist væntanlega þá erum við bestir.
You must be logged in to reply to this topic.