FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

minni á jólin

by Ívar Björgvinsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Vefsíðan › minni á jólin

This topic contains 3 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Magnús Hallur Norðdahl Magnús Hallur Norðdahl 18 years, 6 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 16.12.2006 at 19:48 #199184
    Profile photo of Ívar Björgvinsson
    Ívar Björgvinsson
    Participant

    Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að kaupa gjafirnar
    sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr.

    Þegar ég sá allt fólkið þar, byrjaði ég að kvarta í hljóði „Þetta á eftir
    að taka heila eilífð og ég á enn eftir að fara á svo marga staði“.

    Jólin eru alltaf að verða meira og meira pirrandi með hverju árinu. Ég
    vildi að ég gæti bara lagst niður og farið að sofa og vaknað svo eftir
    jólin.

    Allavegana, ég kom mér í leikfangadeildina og þar fór ég að skoða verðin,
    hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona dýr leikföng. Eftir
    smá
    tíma af leikfangaskoði þá tók ég eftir litlum strák um 5 ára, sem hélt á
    dúkku upp við brjóstið sitt.

    Hann strauk hárið á dúkkunni og virtist svo sorgmæddur.
    Svo snéri litli strákurinn sér að eldri konu sem var við hliðina á honum
    „amma, ertu viss um að ég hafi ekki nógu mikla peninga?“ Gamla konan
    svaraði „þú veist að þú átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan mín“ Svo
    bað hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún skoðaði sig um.
    Hún fór fljótlega.

    Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði til hans og
    spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna. „Þetta er dúkkan sem
    systir mín elskaði mest og langaði svo mikið í fyrir jólin.

    Hún
    var svo viss um að jólasveinninn myndi gefa sér hana.

    Ég sagði honum að kannski eigi jólasveinninn eftir að koma með dúkkuna til
    hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. En hann sagði við mig
    sorgmæddur „Nei jólasveinninn getur ekki gefið henni dúkkuna þar sem hún
    en
    núna. Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo að hún geti gefið henni hana þegar
    hún fer þangað“. Augun hans voru svo sorgmædd meðan hann sagði þetta.

    „Systir mín er farin til þess að vera með Guð. Pabbi segir að mamma sé
    líka
    að fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að hún gæti farið með dúkkuna
    fyrir mig og gefið systur minni hana“.

    Hjartað mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp til mín og
    sagði „Ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki alveg strax.

    Ég bað hann um að bíða þangað til að ég kæmi heim úr búðinni“ Svo sýndi
    hann mér fallega mynd af honum þar sem hann var hlægjandi. „Ég vil líka að
    mamma taki þessa mynd með sér svo að hún gleymi mér aldrei“

    „Ég elska mömmu mína og ég vildi óska að hún þyrfti ekki að fara, en pabbi
    segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu systur minni“.

    Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög hljóðlátur. Ég
    teigði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening upp og sagði við
    strákinn „en ef við athugum aftur í vasan til að tékka hvort að þú eigir
    nógan pening?“ Allt í lagi sagði strákurinn „ég vona að ég eigi nóg“

    Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir því og við
    byrjuðum að telja. Það var nógur peningur fyrir dúkkunni, og meira að
    segja
    smá afgangur.

    Litli strákurinn sagði „Takk Guð fyrir að gefa mér nógan pening. Svo leit
    hann á mig og sagði “ Í gær áður en ég fór að sofa þá bað ég Guð um að
    vera
    viss um að ég hafi nógan pening til þess að geta keypt dúkkuna handa
    systur
    minni. Hann heyrði til mín“

    „Mig langaði líka að eiga nógan pening til að kaupa hvíta rós handa mömmu,
    en ég þorði ekki að biðja Guð um of mikið, en hann gaf mér nóg til að
    kaupa
    rósina líka“. Sko mamma elskar hvíta rós“.

    Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti strákinn. Ég kláraði að
    versla með allt öðru hugarfari ég gat ekki hætt að hugsa um litla
    strákinn.

    Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum síðan „maður keyrði
    drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil stelpa voru í. Litla
    stelpan dó samstundis en mamman var í dái“ Fjölskyldan varð að ákveða
    hvort
    þsð ætti að setja hana í öndunarvél eða ekki, af því að unga konan myndi
    ekki vakna úr dáinu.

    Var þetta fjölskylda litla stráksins?

    Tveim dögum eftir að ég hitti litla strákinn, las ég í blaðinu að unga
    konan hafi dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í blómabúð og keypti búnt
    af hvítum rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séð konuna og óskað
    sér í seinasta skipti áður en hún væri jörðuð.

    Hún var þarna í kjól, haldandi á fallegri hvítri rós með myndinni af litla
    stráknum og dúkkuna á brjóstinu.

    Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst til eilífðar. Ástin sem
    þessi itli strákur hafði til mömmu sinnar og systur, er enn þann dag í
    dag,
    erfitt að ímynda sér. Og í einni svipan tekur drukkinn maður þetta allt
    frá
    honum.

    Myndirðu keyra full/ur ?????

  • Creator
    Topic
Viewing 3 replies - 1 through 3 (of 3 total)
  • Author
    Replies
  • 16.12.2006 at 23:44 #571808
    Profile photo of Bjarki Clausen
    Bjarki Clausen
    Participant
    • Umræður: 158
    • Svör: 1709

    ….





    16.12.2006 at 23:48 #571810
    Profile photo of Bjarki Clausen
    Bjarki Clausen
    Participant
    • Umræður: 158
    • Svör: 1709

    Þetta er flottasta grein sem ég hef lesið á þessum vef.
    Vekur mann til umhugsunar um nágrannan lífið og tilveruna.
    Þetta var alveg hræðilegt slys.





    17.12.2006 at 08:05 #571812
    Profile photo of Magnús Hallur Norðdahl
    Magnús Hallur Norðdahl
    Participant
    • Umræður: 713
    • Svör: 2671

    ég þurti tvær tilraunir til að lesa þessa frásögn hún snerti hjartað
    kv,,,MHN





  • Author
    Replies
Viewing 3 replies - 1 through 3 (of 3 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.