FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Mikill snillingur fallinn frá.

by Atli Eggertsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Mikill snillingur fallinn frá.

This topic contains 21 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Halldór Jóhann kristjánsson Halldór Jóhann kristjánsson 12 years, 9 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 21.08.2012 at 19:48 #224161
    Profile photo of Atli Eggertsson
    Atli Eggertsson
    Participant

    Mikill snillingur og gæðablóð fallið frá.
    Vill votta fjölslyldu hans mína innstu samúð.

    http://mbl.is/frettir/innlent/2012/08/21/lest_i_motorhjolaslysi/

    Kv. Atli E.

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 21 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 21.08.2012 at 20:29 #756829
    Profile photo of Bragi Þór Jónsson
    Bragi Þór Jónsson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 1030

    Ég tek undir með Atla og votta fjölskyldu, ættingjum og vinum Freysa, samúð mína.

    Án hans væri jeppasportið ekki það sem það er í dag.





    21.08.2012 at 21:28 #756831
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Vil votta fjölskyldu Freysa, aðstandendum,ættingjum og vinum mína dýpstu samúð.





    21.08.2012 at 22:15 #756833
    Profile photo of Hilmar Örn Smárason
    Hilmar Örn Smárason
    Participant
    • Umræður: 22
    • Svör: 493

    Ég votta aðstandendum og vinum Freysa mína dýpstu samúð.

    Hilmar Örn





    21.08.2012 at 22:54 #756835
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Tek undir samúðarkveðjur til fjölskyldunnar, missir þeirra er mikill. Hann var tvímælalaust í hópi þeirra sem hafa lagt hvað mest af mörkum í þróun jeppamennskunnar. Það var alltaf gaman að spjalla við Freysa og gott að leita ráða hjá honum, óspar á upplýsingarnar.
    Kveðja – Skúli





    21.08.2012 at 23:27 #756837
    Profile photo of Gunnar Sigurfinnsson
    Gunnar Sigurfinnsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 243

    Innilegar samúðarkveðjur til ættingja og vina.
    Þessum góða félaga og vini verður sárt saknað og með honum fer mikill fróðleikur og þekking.

    Gunni Stimpill





    21.08.2012 at 23:46 #756839
    Profile photo of Hjörtur Sævar Steinason
    Hjörtur Sævar Steinason
    Participant
    • Umræður: 89
    • Svör: 1242

    Ég votta öllum hans aðstandendum og ættingjum mína dýpstu samúð.
    Félagi minn vann með Freisa, það var gaman að koma í Össur og spjalla við Freisa. Þó að ég þekkti manninn lítið sem ekkert þá kom hann og spjallaði, greinilega maður góður. En hann var alltaf að grúska eitthvað, spá og spekúlera.
    Vona ég að góður guð verði hans nánustu innanhandar þessa erfiðu daga og um ókomna tíð.
    Kv Hjörtur Sævar Steinason.





    22.08.2012 at 00:21 #756841
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Til að heiðurs minningu Freysa:
    "Aldrei að sleppa góðu basli ! "
    og
    "Bara prófa, sjá hvort þetta virkar ! "

    Þannig þekkti ég hann og líklega margir aðrir, algerlega ófeiminn við að fara nýjar leiðir og prófa nýja hluti.
    Nú er hann skilinn við langt fyrir aldur fram og stór skörð sitja eftir hér og þar en einkum heimafyrir. Ég óska fjölskyldunni alls hins besta á þessum erfiðu tímum.

    Grímur





    22.08.2012 at 08:12 #756843
    Profile photo of Bæring J. Björgvinsson
    Bæring J. Björgvinsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 1919

    Vil taka undir samúðarkveðjurnar, ég hefði viljað kinnast honum meira, en það litla sem ég þekkti hann var af einskærri hlýju og ótrúlegum vilja til að aðstoða félagann… Hans verður sárt saknað





    22.08.2012 at 09:29 #756845
    Profile photo of Baldvin
    Baldvin
    Participant
    • Umræður: 45
    • Svör: 524

    Tek undir heilhugar samúðarkveðjur til aðstandenda. Án þess að ég geri með því lítið úr nokkrum manni, þá er ljóst að Freysi er einn mesti snillingur sem hefur komið að jeppamennsku á Íslandi og margir nýjir sigrir urðu fyrir hans tilstilli og/eða vegna lausna sem að hann lagði til.
    Ég þekkti hann lítið en bar ómælda virðingu fyrir honum og tek undir með þeim sem að hér á undan skrifa, að hann var ætíð óspar á aðstoðina og góð ráð.

    Hvíl í friði kæri félagi.





    22.08.2012 at 09:44 #756847
    Profile photo of Sverrir Kr. Bjarnason
    Sverrir Kr. Bjarnason
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 172

    Þessa góða drengs og mikla snillings verður sárt saknað af öllum sem þekktu hann.
    Votta fjölskyldu hans mína dýpstu samúð.
    Sverrir Kr. Bjarnason





    22.08.2012 at 10:24 #756849
    Profile photo of Theodór Kristjánsson
    Theodór Kristjánsson
    Participant
    • Umræður: 67
    • Svör: 1008

    Eitt af átrúnaðargoðunum í jeppamennsku fallin frá. Vill votta fjölskyldu og félögum hans samúð mína.

    Kveðja, Theodór.





    22.08.2012 at 11:12 #756851
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Stórt skarð er höggvið. Naut þeirrar gæfu að starfa með Freysa eitt ár í umhverfisnefnd Ferðaklúbbsins og kynnast honum lítið eitt og sjá hversu útsjónasamur og hugmyndaríkur einstaklingur var þar á ferð.
    Hvíl í friði kæri félagi. Fjölskyldu og aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð, megi allar góðar vættir fylgja ykkur á erfiðum tímum um alla framtíð.

    Logi Már.





    22.08.2012 at 12:47 #756853
    Profile photo of Benedikt Rúnar Egilsson
    Benedikt Rúnar Egilsson
    Participant
    • Umræður: 40
    • Svör: 112

    Fyrir hönd Skagafjarðardeildar F4x4 vil ég votta fjölskyldu og vinum Freysa
    okkar dýpstu samúð á þessum erfiðu tímum.

    hans verður sárt saknað og mikill missir af slíkum manni.

    Benedikt Egilsson
    Formaður Skagafjarðardeildar





    22.08.2012 at 16:43 #756855
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 1091

    Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur hið sama, en orðstír deyr aldrei, hveim er góðan sér getur.





    22.08.2012 at 18:05 #756857
    Profile photo of Bergur Pálsson
    Bergur Pálsson
    Participant
    • Umræður: 41
    • Svör: 307

    Sviplegt fráfall, afburðamaður horfinn úr hópnum. Frábær í allri samvinnu, félagsskap og miðlun reynslu. Ekki bara í jeppasportinu. Og sögurnar maður. Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar.
    Bergur





    22.08.2012 at 21:03 #756859
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Ég tek undir það að með Freysa er farinn einn allra mesti snillingur sem við höfum átt, bæði á sviði jeppabreytinga og ferðamennsku, sem og svo mörgum öðrum sviðum.

    Það var heiður að fá að kynnast honum.

    Ég votta fjölskyldu, vinum og samferðamönnum öllum mína dýpstu samúð.

    Benni





    23.08.2012 at 12:19 #756861
    Profile photo of Sindri Grétarsson
    Sindri Grétarsson
    Participant
    • Umræður: 10
    • Svör: 140

    Innilegar samúðarkveðjur til allra aðstandenda.
    Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að kinnast Freysa, það var alltaf gaman að leita til hans eða hitta á förnum vegi. Freysi var frumkvöðull, snillingur, skemmtilegur, úrræðagóður, góður félagi o.fl o.fl
    Þín er sárt saknað kæri félagi.





    23.08.2012 at 12:54 #756863
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Freysa þekkti ég aldrei. En vissi vel hver maðurinn var enda heyrði maður oft sögur af honum og hans afrekum. Ég vil votta fjölskyldu og aðstandendum samúð mína.

    Kv.
    Óskar Andri





    23.08.2012 at 13:10 #756865
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Innilegar samúðarkveðjur til barna, konu og allra aðstandenda Freysa, en ég mynnst hans með þökk að hafa fengið að kynnast honum í starfi umhverfisnefndar F4x4 og á öðrum vettvangi.

    Dagur





    23.08.2012 at 22:32 #756867
    Profile photo of Sæbjörg Richardsdóttir
    Sæbjörg Richardsdóttir
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 127

    Við Óli sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina Freysa. Um leið og sorg og söknuður býr í huga okkar má einnig finna ómælt þakklæti fyrir að hafa kynnst skemmtilegum og snjöllum manni sem gaf af gleði sinni, upplifun og visku.
    Takk fyrir

    Didda og Óli





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 21 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.