This topic contains 67 replies, has 1 voice, and was last updated by Skúli Haukur Skúlason 16 years, 7 months ago.
-
CreatorTopic
-
07.03.2009 at 00:18 #203984
Fréttahaukar endilega hrúgið in öllum fréttum og slúðri frá Miðjuferðinni..
hér eru fyrstu fréttir frá Palla
……
„Hó.
Nú eru komnir um 50 bílar hingað í Hrauneyjar og 20 bílar í Hálandi. 5 bílar eru komnir í Illugaver, 19 bílar í Páfagarði…. svo það má halda því fram að ferðin hefst vel. Jón Snæland er meira að segja kominn hingað. Ræs kl 7 í fyrramálið.Kv Palli“
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
07.03.2009 at 04:43 #642594
[b:3awej1lz][url=http://www.ira.is/pages/viewpage.action?pageId=1638642:3awej1lz]Hér er hægt að hlusta á stuttbylgju fjarskipti[/url:3awej1lz][/b:3awej1lz] Dagur Bragason (TF3DB) ætlar að hafa sambandi við aðra radíó áhugamenn á tíðninni 3633 kHz.
-Einar – TF3EK
07.03.2009 at 09:24 #642596Við ætlum að reyna hvort við heyrum Degi TF3DB, kl 11, 12, 13,15,17 og 19 í dag.
Áhugasamir geta þá farið á linkinn og fylgst með.
Snorri
TF3IK
07.03.2009 at 09:57 #642598Var að heyra í TF3DB hafa samband við TF1JI. Þeir eru í skafrenningi. Það heyrðist vel í Degi undir Eyjafjöllum en hann var daufur í Reykjavík
– TF3EK
07.03.2009 at 09:58 #642600Sælir félagar
Ég var að hlusta á Jón Hermannsson á Hvolsvelli tala til Þýskalands yfir netið og einnig við Dag okkar.
Ég heyrði vel í Jóni og Þýskalandi en lítið í Degi?
Hvernig má þetta vera?
kv gundur
07.03.2009 at 10:20 #642602Skýringin er sú að Jón er að tala gegnum stöð sína sem er stödd í Reykjavík. Móttökustöðin fyrir netsendinguna (sem við erum aðhlusta á) er einnig í Rvk.
Hef verið að hlusta á þetta og heyrði m.a. í TF3GL sem var í bíl á leið á Esjuna, ætlar jafnvel að skella sér á gönguskíði

Þetta er bráðsniðugt.
-haffi
07.03.2009 at 10:24 #642604Sæll Hafsteinn
ÉG skildi þetta þannig að þessi við Esjurætur ætlaði upp á bílnum? Er það rangt skilið?
kv gundur
07.03.2009 at 10:31 #642606Það held ég ekki, hann talaði um að vera með handstöð, líklega VHF. Þannig að hann ætlar út úr bílnum

-haffi
07.03.2009 at 10:34 #642608Hvar nálgast ég þetta,,búinn að leita og fæ eingöngu eitthvað bull upp…
Kv Dolli sem ekkert heyrir…
07.03.2009 at 10:40 #642610Sæll Jóhannes
Nærð þú út sendingunni? Þú ferð inn á þráðin sem EIK sett inn og smellir á sendirinn, hann gæti beðið um java hugbúnað, bara smella á þráðinni.
Þetta er nú óttalegt bull en það er gaman af því, þeir tala um túlipana, skógkassa, hillur og ég veit ekki hvað, helmingur af tímanum fer í að heilsast og kveðjast, þeir þurfa að segja kallnúmerið sitt og kallnúmerið hinna og tala svo um sendistyrkin þar á milli, þetta er eins og að hafa náð sambandi við risaeðlurnar.
kv gundur 😛
07.03.2009 at 10:40 #642612Hópur 1 er komin yfir Þjórsárstífluna. Skyggni mjög lítið, renningur og einhver ofankoma. Þannig að þetta lofar góðu þeir hljóta að geta komið sér í vandræði

kv Lella
07.03.2009 at 10:41 #642614Það var TF1JI, Jón Ingvar Óskarsson sem náði að tala við Dag. Hann var í sumarbústað unir Eyjafjöllum. TF3ARI er á hóteli í Þýskalandi en tengist við talstöð sína í Seljahverfinu um Scype. Vefsendingin er um talstöð við Lækjarsmára í Kópavogi, en er sett á netið hjá CCP.
TF3GL ætlaði að ganga á Esjuna, Það eru ekki margir sem hafa keyrt þangað upp. ( ég bara [url=http://www.mountainfriends.com/html/ajse.html:209a3tbw]ekið upp einu sinni[/url:209a3tbw] en gengið nokkur hundruð sinnum ).– TF3EK
07.03.2009 at 10:47 #642616Gundur, þetta var nú óþarfi.
-haffi
07.03.2009 at 10:51 #642618Sæll Guðmundur…
Ég stilli þá bara á bylgjuna..góð stöð og engar risaeðlur þar hehe…
Kv Jóhannes
07.03.2009 at 10:59 #642620Sæll Jóhannes
Þetta er vel þess virði að fylgjast með, þetta er nú samt ekki alveg að virka, væri ekki rétt að fá annan bíl frá okkur til samanburðar við Dag?
Einhvern annan sem er í hópnum?kv gundur á leið í Bláfjöll á 44 tommu Econoline og verð í talstöðinni.
kv. gundur
07.03.2009 at 11:05 #642622Var að spjalla við Arnþór, hópstjóra í hóp 3 – Guinness/Þúvuvötn. þeir voru komnir norður fyrir Fjórðungakvísl, nálgast Bergvatnskvísl fljótlega. Skiggni var þokkalegt en lágarenningur, vindur líklega um 10 m/s.
Hann taldi að aðalhópurinn væri um hálftíma á eftir þeim.
– TF3EK
07.03.2009 at 11:13 #642624ertu ekki að grínast í mér… mér fynnst þetta veður bara ekkert fyndið, djöfulli langar mig að vera þarna…
verð sennilega bara að sætta mig við þetta og hamast á refresh takkanum á spot síðunni…. en miðað við hana er bara rífandi gangur hjá Skúla.
07.03.2009 at 11:36 #642626Var búinn að gleyma því að Skúli er með Spot tæki. Á [b:1znkuegl][url=http://share.findmespot.com/shared/faces/viewspots.jsp?glId=05fCJf0mzmSkVbauIkqB6xBEuGD0XryXs:1znkuegl]þessu korti[/url:1znkuegl][/b:1znkuegl] má fylgjast með því hvar hópur 1 er staddur. Þeir fóru yfir Háumýrarkvísl fyrir um hálftíma síðan. Það er betra að átta sig, ef maður velur Satelite á kortinu.
-einar
07.03.2009 at 11:54 #642628Hvar finn ég þetta Java Applet sem ég get notað til að hlustað ?? Finn ekkert sem ég get notað !!!
Kv Jóhannes
07.03.2009 at 12:50 #642630Prófið þetta . Virkar fínt hjá mér .
Þarna er boðið upp á uppfærslur sem er gott að hala niður líka
07.03.2009 at 12:53 #642632Sæll Jóhannes.
Ég veit lítið um þetta java applet, þetta virkaði um leið á Makkanum mínum, hef ekki prófað aðrar tölvur.
Af miðjuförum er það að frétta að hópur eitt verður komin að miðjunni á innan fárra mínútna með sama áframhaldi. Guinness hóparnir töfðust litið eitt á vaðinu á Bergvatnskvísl, menn misttu bíla þar niður um ís.
Veðrið hefur batnað, það er ekki lengur skafrenningur, gott skyggni.
-Einar
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
