FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Miðjuferð 4×4

by Gunnar Smári Eggertsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › Miðjuferð 4×4

This topic contains 87 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Íris Mjöll Valdimarsdóttir Íris Mjöll Valdimarsdóttir 17 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 15.01.2008 at 14:57 #201622
    Profile photo of Gunnar Smári Eggertsson
    Gunnar Smári Eggertsson
    Participant

    sælir félagar
    Erum að spá að koma með í þessa miðjuferð en var að spá hverjir ætla að fara? Hvernig er færðin þarna í kring, veit að það eru alveg nokkrir dagar í þetta og er spá breytileg, en hvernig hefur snjólagið verið þarna uppá síðkastið?
    Einnig væri þá gaman að vera samferða einhverjum sem ætla frá Reykjavík?
    Það væri gaman að sjá hverjir ætla.
    Ferðakveðja
    Gunnar Smári.

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 81 through 87 (of 87 total)
← 1 … 4 5
  • Author
    Replies
  • 22.01.2008 at 07:22 #610340
    Profile photo of Bergþór Júlíusson
    Bergþór Júlíusson
    Participant
    • Umræður: 40
    • Svör: 761

    Þessi frétt var á stöð 2 á föstudag eða laugardag, frekar stutt en frétt þó.
    Mér fannst þetta sniðugt hjá klúbbnum að fara þessa ferð með fáa útvalda en ég er viss um að öllum þingmönnum hafi verið boðið en færri viljað koma. Það hefði reyndar átt að fara þessa ferð á öðrum tíma þegar veður er betra og meiri birtu er að fá.





    22.01.2008 at 14:12 #610342
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 942

    …en er ekki samt pínu kúl að bjúrókratarnir sjái líka að sportið krefst kunnáttu og skynsemi en snýst ekki bara um að sprauta upp á næsta hól?
    Ég hef farið með óvant fólk í ferðir í allskonar veðri og mín reynsla er sú að í bongóblíðu er það landið og veðurguðirnir sem fá stig en í vondu veðri eru það bílstjórarnir og bílarnir sem fá stig.
    Sem hliðarspor væri nú gaman að vita hvort aðrir hafa svipaða sögu að segja :-)





    22.01.2008 at 14:34 #610344
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    [url=http://www.siv.is/:ra6qjbmk]Siv[/url:ra6qjbmk] er búin að setja inn ferðasögu og myndir.





    22.01.2008 at 15:39 #610346
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Sæl öll. Við Eyfirðingar skemmtum okkur konunglega þessa tvo daga sem ferðin tók. Eftir á að hyggja þá er það jú tilgangurinn með ferðum inn á hálendið að skemmta sér og e.t.v. öðrum og svo auðvitað að borða góðan mat.
    Það er afar verðmæt og skemmtilegt að kynnast nýju fólki sem hefur sömu áhugamál og maður sjálfur. Eflaust hefði margt mátt fara betur eins og nánast alltaf en ferðin var engu að síður skemmtileg.
    Ég við bara þakka kærlega fyrir mig, þ.e. gistingu, mat og ekki síst félagsskap.

    Kveðja:
    Erlingur Harðar (annar Ellinn!!!)





    22.01.2008 at 16:21 #610348
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Eftirfarandi berst klúbbnum og er birt með leyfi Kolbrúnar:

    Sæl verið þið og blessuð!

    Ég verð nú að senda ykkur nokkur orð til að þakka fyrir mig og þessa stórkostlegu ferð með ykkur inn að miðju.. næstum því J

    Það var margt sem kom mér á óvart og margt sem ég fékk að vita um hið góða starf sem klúbburinn er að vinna.

    En það sem var best var að kynnast öllu þessu góða fólki sem var með í för.

    Ég er afskaplega þakklát fyrir að hafa fengið þetta tækifæri og mun leggja mikið á mig til að komast með ef fleiri tækifæri gefast.

    Svo lýsi ég mig reiðubúna til að vinna með ykkur ef það er eitthvað sem þið viljið koma á framfæri við löggjafann, þó ég sé ekki í ríkisstjórn eins og er og ráði því kannski litlu um það sem gert er, þá kann það að breytast með litlum fyrirvara.. Við sjáum nú hvernig hlutirnir gerast í pólitíkinni þessa dagana. Svo er alltaf hægt að leggja fram fyrirspurnir um mál til ráðherranna eða óska eftir umræðum utan dagskrár. Það er um að gera að nota þann vettvang sem Alþingi er og koma þar á framfæri góðum hugmyndum, t.d. umskipulag á miðhálendinu, stefnumörkun í hálendisvegum eða annað það sem stjórnvöld sýsla með og er á ykkar áhugasviði.

    Ég bið fyrir bestu kveðjur til ferðafélaganna með hjartans þakklæti,

    Kolbrún Halldórsdóttir





    22.01.2008 at 17:11 #610350
    Profile photo of Jóhann Kristján Kristjáns
    Jóhann Kristján Kristjáns
    Participant
    • Umræður: 11
    • Svör: 213

    af hverju lokad var fyrir adgang Ellu.

    Skora a stjorn ad endurskoda afstodu sina.

    kv.
    JKK





    22.01.2008 at 17:51 #610352
    Profile photo of Íris Mjöll Valdimarsdóttir
    Íris Mjöll Valdimarsdóttir
    Participant
    • Umræður: 30
    • Svör: 454

    Ég var að tala við Sýslumanninn á Selfossi.
    Ólafur Helgi var bara mjög ánægður með ferðina í alla staði og þakkaði vel fyrir sig.
    Hann fær nú alveg rós í hnappagatið frá mér fyrir vel unnin kógarastörf .
    Skemmtilegur ferðafélagi og ansi fróður maður á ferð. Hann lærði mikið og sá margt
    Takk fyrir mig þetta var bara mögnuð ferð og ansi lærdómsrík….

    Agnes á hrós skilið ásamt stjórninni að virkja landsbyggðardeildirnar svona vel og leyfa okkur að taka þátt í þessum merka viðburði.
    Þó ég tali bara fyrir mig þá er ég ánægð með starf stjórnarinnar við að gera landsbyggðardeildirnar sýnilegri. Ég veit og er sannfærð um að samstaða sé á milli landsbyggðadeildanna um það mál…
    Agnes er að mér vitandi fyrsti formaðurinn sem kemur samstarfi deildanna á kortið.

    Eigum við ekki bara annars félagar góðir að veita stjórn klúbbsins næði til að vinna sitt starf í friði og ró og njóta þess sem við getum. Að ferðast saman á hálendinu og njóta náttúrunnar í friði og ró ?
    Vera þakklát fyrir vel unnin störf og koma frekar með friðsælar uppástungur ef við viljum breyta eða bæta eitthvað við störf stjórnarinnar.Tölum beint við stjórnarmenn og bendum þeim á… Sleppum þessum leiðindar skítköstum og hnýtingum.
    Allir orðnir hundleiðir á þessum endalausu leiðindum. Leiðindin vinna nefnilega ekki með okkur í hagsmunagæslu klúbbsins, og hefur það sýnt sig
    –
    Þessi ferð var góð og áhrifamikil, allavegna þá sést það í póstinum frá þingmanni okkar að hún vill frekar vinna með okkur heldur en á móti.
    Er þá ekki tilgangi ferðarinnar náð ???

    Takk fyrir allt
    Íris Mjöll





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 81 through 87 (of 87 total)
← 1 … 4 5

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.