Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › Miðja landsins
This topic contains 9 replies, has 1 voice, and was last updated by Rúnar Ingi Hjartarsson 18 years, 6 months ago.
-
CreatorTopic
-
11.05.2006 at 11:06 #197946
Það verður umfjöllun um miðju Íslands í þættinu Vítt og breitt á Rás 1 kl. 13. í dag.
Kv – Skúli -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
11.05.2006 at 15:00 #552322
Hefði ekki verið ráð hjá foringjanum að kynna sér svarið við einu spurningunni sem víst var að hann fengi áður en hann mætt í viðtalið.
bara spugulera.
guðmundur
12.05.2006 at 09:37 #552324Það var ekki spurt hvernig miðan hefði verið fundin, heldur hvernig hún hefði verið mæld. Þessi staður var reiknaður, samkævmt því sem er líklega einfaldasta prakíska skilgeining á miðju, sem er þyngdarmiðja einsleitar plötu sem hefur sömu útlínur og landið. Það eru miklar pælingar um þetta á [url=http://www.f4x4.is/new/forum/?file=gpsogleidir/6133:tjxdai7k]þessum þræði[/url:tjxdai7k].
Það er ekki rétt, eins og Rúnar segir þar, að þetta sé jafngilt því að það sé sama flatarmál sunnan og norðan eða austan og vestan við punktinn. Ég trúi því heldur ekki að Gummij hafi reiknað miðjuna með því að nota Merkator vörpum frá miðbaug. Slík vörpum bjagar töluvert mikið á okkar breiddargráðum og hefði fært miðjuna töluvert norðar. En ég býst ekki við því að það skipti máli upp á útkomuna, hvort notuð er UTM (universal transverse mercator) vörpun, eða ÍSN93 sem byggist á Lambert keyluvörpun.
Sjálfur prófaði ég að reikna þetta með því að reikna í 3 víðu rúmi, án þess að nota kortavörpun af kúlu á flöt, niðurstaðan var á milli þeirra sem nafnarnir fengu. Þessi munur er svo lítill að hann getur auðveldlega skýrst af mismunandi túlkun á því hvarf ströndin liggur. t.d. þar sem eru leirur eða lón við ströndina.
Önnur aðferð til þess að skilgreina miðjuna væri að taka þyngdarmiðju þess rúmmáls sem er ofan við sjávarmál. Sú aðferð myndi færa miðjuna í áttina að Nýjadal, vegna þess að suðausturhluti landsins er að jafnaði hálendari en norður og vestur hlutar þess.-Einar
12.05.2006 at 10:12 #552326Er þetta svona eins og í pólítíkinni, Vestfirðirnir hafa meira vægi en aðrir staðir?
Massamiðjan er væntanlega sá staður sem "landið" heldur balance á ef það væri sett á stöng?
Flatarmálsmiðjan ætti þá að vera eitthvað sunnar og austar ekki satt?
kv
Rúnar barasvonaaðspögulera
12.05.2006 at 12:07 #552328nú skilur maður þetta loks, þetta lá semsagt alltaf ljóst fyrir og með ólíkindum að Skúli hafi ekki getað aulað þessu út úr sér. Þar sem þetta var sérstaklega tekið fyrir í félagsfræði náminu hjá honum, og ef ég man rétt þá tók hann aukatíma í þessu
12.05.2006 at 12:40 #552330Ekki datt mér í hug að ég hefði fundið upp hjólið eins og Moggi heldur. Landmælingar reiknuðu þetta eftir Ofsi varpaði fram spurningu hér á spjallinum í desember. Gummij reiknaði þetta á undan landmælingum. Þeirra niðurstöðum bar vel saman, ég prófaði í gær að reikna þetta og fékk sömu niðurstöður. Það að þrír óháðir aðilar sem reikna þetta með ólíkum aðferðum, fái sömu niðurstöðuna, bendir til þess að rétt sé reiknað.
-Einar
12.05.2006 at 19:24 #552332Þetta er farið að minna á þegar menn komust að því að Jesús hefði verið eins ára gamall er hann fæddist,en eitthvern vegin skil ég þetta þannig að það sé ekki bara frá útlínum landsins sem miðjan er fundin heldur massa og hæð þar sem meðaltal er fundið út frá útlínum -+grunnlína/annes og afstaða á hnetti,svei mér þá það rennur af mér við að spegulera í þessu,mikið er nú gott að vera ekki með allar þessar formúlur kollinum,nóg er vittleysan þar fyrir.
Klakinn
12.05.2006 at 21:18 #552334Ég sem hélt að okkur hefði tekist að finna upp miðjuna og hjólið um árið, en svo sé ég að Sæfar P Stefánsson er að auglýsa hér ávefnum með fyrirsögninni VANTAR MIÐJU sem sjálfsagt hefur verið stolið. Nú þarf að byrja upp á nýtt að finna upp hjólið og miðjuna. Moggi og verkfræðingurinn eru að sjálfsögðu líklegastir til að ná breiðri samstöðu um málið þar sem moggi sæi um almannatengsl og verkfræðingurinn um tæknimálin. Ég ætla hinsvegar að leggja reiknistokkinn á hilluna því eik trúr ekki á vörpunina sem ég notaði og LMI eru búnir að taka allt kreditið af mér og baða sig nú frægðarljóma þess að hafa fundið flatarmiðju íslandskortskorts með hólkvörpun frá miðbaug sem nú er reyndar búið að stela.
gummij sem var einusinni kortagerðarmaður.
13.05.2006 at 01:16 #552336Að ég og mogga greyið yrðum ekki sammála um eitthvað,Leiðarkerfi Strætó bs og vaktarplan er því miður reiknað út af fræðingum sem hafa formúlur í stað blóðs og vaxtarprósentu í stað sem venjulegt fólk hefur hjartað,Þar með er heilbrigð skynsemi útilokuð og það er akkurat það sem skilur á milli fólks og fóa,??
Klakinn
13.05.2006 at 02:24 #552338Mér sýnist verkfræingurinn hafi hitt á naglann og útskýrt fræðin þannig að allir hljóti að skilja, en reyndar skildi ég ekki eitt í hans fræðum, þar sem talað er um "niðustaðan", er átt við að hljóðfræði sé beitt eða hvað?
Annars er það niðurstaðan í þræðinum að mér sýnist á öllu að strætó hafi gert grundvallarmistök í sýnu leiðarkerfi því af þessum vef að dæma virðast þeir helstir hafa áhuga (og ama) á þjónustu þeirra sem eiga Patrol í hlaðinu….!
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.