FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Mexicoferðin

by Davíð Karl Davíðsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Mexicoferðin

This topic contains 60 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Davíð Karl Davíðsson Davíð Karl Davíðsson 18 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 01.03.2007 at 00:46 #199816
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant

    Jæja Jeppamenn og konur nú er að koma að þessari blessuðu ferð með börnin frá Mexico 17 Mars og hafði ég hugsað langjökul sem besta kost fyrir þessa ferð.

    ég er ekki alveg kominn með á hreint hvernig verður með styrki og annað slíkt en það var búið að bjóða samlokustyrk frá línusamlokum og vona ég að það boð sé enn gilt.

    það sem ég vonast eftir er að fá

    Bílstjóra sem eru tilbúnir að leggja sig og jeppana sína framm fyrir þessa ferð

    Fararstjóra sem þekkja Langjökul sæmilega og vita um áhugaverða staði eins og þursaborgir (sem flestir rata í) en einnig fleyri staði eins og íshellana og bara það sem ykkur dettur í hug,

    frábært væri ef einhver hefur sambönd og getur hjálpað mér með styrki svo sem drykki og fleira sem væri gott að fá og munu þeir verða nefndir í fjölmiðlum ef einhverjir vilja fjalla um þetta (Einar elí endilega komdu með komment hvort þetta sé þess vert að minnast á )

    og já Fyrst og Fremst þá er það í ykkar höndum hvort við getum boðið þessum börnum uppá ferð yfir höfuð því jú ég get lítið gert einn svo ég óska eftir allri hjálp sem ég get fengið!!!!!

    en listinn hljóðar svona

    Hópurinn samanstendur af 6 nemendum ásamt skólastjóra og 2 kennurum.

    A Carolina Ramirez Florez 9 ára

    Carlos Octavio Bermudes Razo 10 ára

    Estefania Quintanar 12 ára

    Emanúel Birkir Gómez Garðars 10 ára

    Elizabeth Björk Gómez Garðars 6 ára

    Monserrat Ramirez Florez 13 ára

    Raquel Quijano skólastjóri

    Veronica Ardisson Quijano kennari

    Elín Hrund Garðarsdóttir kennari og túlkur

    Við þetta bætast svo 2 íslenskir strákar sem hýsa nokkra af þessum ofangreindu.

    eins og stendur eru þetta 6-13 ára krakkar plús þau 5 sem bætast við svo við erum að tala um 11 manna hóp og hafa í það minnsta 8 eflaust aldrei komið á jökul og eftir þeim upplýsingum sem ég fékk hafa allavega börnin víst ekki séð einusinni snjó!!!

    endilega allir sem vilja leggja mér lið við að gera þessa ferð að veruleika sendið mér e-mail á davidkarl@btnet.is

    ég held að ég hafi lágmark 35″ í þessa ferð svo hægt sé að ferðast sæmilega yfir jökulinn og vandamálum haldið í lágmarki (þó er benna formanni ef hann kemur heimilt að vera með sýnikennslu í að gera við á fjöllum og láta eitthvað bila eins og í maí í fyrra:D)

    en eins og stendur hér að ofan þá vantar

    menn/konur

    jeppana

    farastjóra (það má hver sem er bjóða sig framm í það sem telur sig geta það en það vantar 2)

    og svo styrki ef einhver hefur sambönd og vill leggja mér lið

    Með von um góðar móttökur

    Davíð Karl Davíðsson Mexicovinur

    davidkarl@btnet.is

    6934878

    svo auðvitað tjá sig hér í þessum þræði

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 60 total)
1 2 3 →
  • Author
    Replies
  • 01.03.2007 at 01:30 #582742
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 1860

    Ef áhugi er fyrir að hafa vélsleða í jökuljaðrinum til að fólk geti fengið að grípa í, eða krakkarnir fengið að sitja aftaná smá bunu get ég útvegað einhver 3-4 stk.

    Lúther





    01.03.2007 at 10:17 #582744
    Profile photo of Sigurður
    Sigurður
    Participant
    • Umræður: 102
    • Svör: 373

    Er til í að leggja til jeppa í þessa ferð ef ekkert annað er á dagskrá hjá mér þessa helgi.
    kv.
    SP





    01.03.2007 at 10:28 #582746
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    hittir akkúrat á árshátíð hjá ölgerðinni, þannig að ég kemst ekki með, annars hefði ég komið.
    gangi þér vel að manna ferðina davíð.
    kveðja siggias





    01.03.2007 at 12:26 #582748
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    Já Lúther það væri frábært ef þú værir til í það með sleðana það væri auðvitað eflaust frábær skemmtun fyrir krakkana sem hafa örugglega ekki séð vélsleða áður.

    en ég vill segja það aftur að ég er ekki það mikill ofurkall að ég geti séð um þessa ferð einn og hjálparlaust því jú ég er bara peð í þessum pakka (meira að segja með óferðahæfann jeppa:S) svo ég hreinlega óska eftir allri aðstoð sem ég mögulega get fengið hvort sem það er bílstjóri á jeppa, farastjórn, styrkur eða bara hreinlega að benda mér á og leiðbeina mér við undirbúning.

    og þótt ég hafi komið langveiku ferðinni í gang í fyrra þá gerði ég það ekki einn og fékk mikla hjálp góðra mann og sú ferð hefði aldrei orðið að veruleika ef það hefði ekki verið þið öll sem hjálpuðuð mér með hana.

    svo ég segi bara "Einn fyrir alla og allir fyrir einn"

    hægt er að hafa samband við mig í mail á davidkarl@btnet.is á hvaða tíma sem er
    og í síma 693-4878

    með von umferð þann 17

    Davíð Karl





    01.03.2007 at 13:05 #582750
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    að láta bæði stöð 2 og rúv vita af þessu, við getum alltaf notað jákvæða umfjöllun, helst að bjóða þeim með. Flott framtak hjá ykkur strákar (Davíð!)





    01.03.2007 at 13:22 #582752
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    Já það er rétt hjá þér Benni við höfum alltaf gott af jákvæðri umfjöllun og ég held að ég geri það sem þú segir og bjóði þeim með þar að segja þegar og ef næg þáttaka fæst en vill ég koma á hreint vegna umræðna sem voru fyrir einhverju síðan að þetta er ekki (ennþá allavega) ferð á vegum 4X4 enda ekki auglýst sem slík heldur verður þetta ferð á vegum meðlima 4X4 þótt við fáum auðvitað eflaust umfjöllun um klúbbinn en þar að segja ef þáttaka fæst og ferðin verður farin þá er ekki hægt að kenna klúbbnum sem slíkum um eitthvað ef einhverjum finnst eitthvað ekki nógu gott eða hvað sem er en ef þetta verður og einhver verður að kenna einhverjum um eitthvað þá er fínt að kenna mér bara um hehe:D en ég vill bara að það sé á hreinu vegna umræðna sem voru hér í fyrra um ferðir sem klúbburinn sem slíkur býður uppá og svo ferða sem einstaklingar innan 4X4 klúbbsinns bjóða uppá og óþarft er auðvitað að taka fram að þessi ferð mun ekki vera eingöngu fyrir meðlimi 4X4 heldur fyrir alla þá sem eiga breytta jeppa oghafa áhuga á ferðum á fjöllum og eiga við sömu dellu að stríða og við hinir:D

    bara hafa línurnar á hreinu svo ég verði ekki skammaður mikið:D

    Davíð Karl





    01.03.2007 at 13:34 #582754
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    Hann Bergur hafði samband við mig og stendur hann enn við það boð sem hann bauð hér þegar ég var fyrst að tala um þessa ferð en það er styrkur frá Línu Samlokum og vil ég bara þakka þeim fyrir og þá er samlokustyrkurinn kominn og þarf ekki að hafa áhyggjur af því

    vildi bara láta vita af þessu og þakka ég frábært framtak hjá Línu

    Davíð Karl





    01.03.2007 at 18:07 #582756
    Profile photo of Einar Örn Örn Þórðarson
    Einar Örn Örn Þórðarson
    Participant
    • Umræður: 11
    • Svör: 98

    að geta fengið frí í vinnuni til að fara með í þessa ferð. það getur verið að ég geti útvegað eitt stykki vélsleða líka. ‘Eg býð mig og minn jeppa fram í þessa ferð sæta pláss fyrir 2 í honum. Get tekið eitthvað dót fyrir menn á pallinn hjá mér ef menn vilja nýta sér það.





    01.03.2007 at 18:55 #582758
    Profile photo of Axel Sigurðsson
    Axel Sigurðsson
    Member
    • Umræður: 55
    • Svör: 1116

    verð því miður á öðrum jökli þennan dag… en kem með í næstu ferð.





    01.03.2007 at 22:26 #582760
    Profile photo of Georg Þór Steindórsson
    Georg Þór Steindórsson
    Participant
    • Umræður: 46
    • Svör: 474

    ég ætti að komast þessa helgi, er með 3 sæti laus þetta verður gaman fyrir börnin og okkur





    01.03.2007 at 22:50 #582762
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Dabbi þú veist allt um mig :) Þetta væri fín ammælisferð .
    Kv Hjalti á toytíkinni





    01.03.2007 at 23:01 #582764
    Profile photo of Ingvar Hermannsson
    Ingvar Hermannsson
    Member
    • Umræður: 11
    • Svör: 124

    að ég lána mig og minn bíl ef ekkert óvænt kemur uppá,þá er ég með
    Kv.Ingvar





    02.03.2007 at 01:08 #582766
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    Ég verð bara að segja að þið eruð allir höfðingjar já og prinsessur (ekki má skilja kvennkostinn útundan:D) en já ég er búinn að spjalla smá í símann í dag við frábært fólk og hugsanlega búinn að redda flottum farastjóra ef hann kemst þar að segja sem ég vona en við skulum ekki vera að nafngreina hann að svo stöddu en mun hann vera æðsta vald 4X4 og kenndur við 49" dekk en nefnum engin nöfn:D en já

    hún Barbara bjargaði okkur með styrk frá MS og vill ég þakka henni kærlega fyrir það!

    jóhannes ætlaði að reyna að koma okkur upp með sælgætisbirgðir en á eftir að fá lokasvar frá honum

    og svo eins og stendur fyrir ofan þá ætlar hann Bergur að redda okkur samlokum frá Línu Samlokum og hef ég heyrt að það séu bestu samlokur norðan Alpafjalla og hlakkar mig til að verða svo frægur að smakka:D

    en já það er að koma fín skráning sem ég er alveg í skýjunum með og auðvitað gildir alltaf sama regla hjá mér í þeim ferðum sem mér hefur tekist að halda (ókei ókei í einu ferðinni sem ég var með (þó með hjálp margra)) þá vill ég ekki setja einhver takmörk fyrir þáttöku og bara ef þú vilt koma með þá kemuru með (en verð samt að vita tölu svo ég geti komið mér í mjúkinn hjá styrktaraðilum ef mjög margir fara:D)

    já og ætla ég ekki að hafa þetta lengra í bili vildi bara uppfæra stöðuna og já það er hægt að hafa samband við mig í mail davidkarl@btnet.is og í síma 6934878 ég verð með hann fullhlaðinn;)

    ætli við verðum látin éta sterkan pipar??? maður spyr sig???:D

    Kv Davíð Karl hinn ferðaglaði:D





    02.03.2007 at 14:00 #582768
    Profile photo of Páll Arnarsson
    Páll Arnarsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 494

    Ætti að komast að öllu óbreittu. Verðum jafnvel á 2 bílum. Verð sennilega með pláss fyrir 1-2 í mínum og síðan 3 í hinum bílnum. Á samt eftir að skýrast betur.

    Kveðja
    Fyrrverandi bensíndraugur





    02.03.2007 at 23:12 #582770
    Profile photo of Arngrímur Kristjánsson
    Arngrímur Kristjánsson
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 403

    …. að vekja þráðin og láta vita að ég verð með, Davíð þú veist allt sem þú þarft að vita um mig og minn bíl.

    Kv AddiKr





    03.03.2007 at 01:49 #582772
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    með mátt stóla á lowprofile kvikindið p.s verða allavega 2 sæti frátekin, pláss fyrir 2 lítil kvikindi hja mér , ef ekki þá .4. læt þig vita vinur .

    Kv H :)





    03.03.2007 at 03:17 #582774
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    pass kemst ekki .





    03.03.2007 at 04:01 #582776
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    Komnir eru 7 Jeppar sem eru búnir að bjóða sig í ferðina og vantar mig þá helst 2 bíla í viðbót til að vera öruggur ef eitthvað kemur uppá t,d bilanir eða eitthvað

    ekki er ég að reikna farastjóra og öryggisbíl inn í þessa talningu því mér finnst gott að vera með of mikið frekar en of lítið pláss í svona ferð því jú ég vil helst ekki þurfa að bjóða byrjendum og svona ungum börnum uppá mikið meira en góða dagsferð ef að ég kemst hjá því þar sem að jú t,d sólahrings ferð reynir á jafnvel reyndustu menn og hafa þeir nú gott úthald til svoleiðis langferða.

    en hafa þónokkrir/ar sýnt þessari ferð áhuga og eru að spá og pæla hvort þau geti boðið sig fram en mun það koma í ljós þegar nær dregur og tel ég þau ekki með í þennan 7 bíla flota sem ég nefni hér að ofan.

    en vil ég endilega benda á fyrir þá sem ekki hafa tekið þátt í svona ferð (þ,e,a,s með börn sem hafa ekki kost á því að gera það sem fyrir okkur er bara venjulegur túr) að þetta er rosalega gaman og gefandi að taka þátt í svona ferð og ég tala nú ekki um stemminguna sem myndast en tala ég auðvitað aðeins fyrir mig (þótt þetta hafi heyrst hjá þónokkrum ef ekki öllum í langveiku í Maí síðastliðinn) og hvet ég þá sem eiga þessa helgi lausa og jeppann klárann að skella sér með…

    en eru skráningartölur birtar með fyrirvara þar sem einhver gæti dottið út vegna einhvers sem gæti komið uppá og svo á ég alveg von á að einhverjir fleiri gætu boðið sig fram (ég er alltaf bjartsýnn:D)

    Skráning/afboðun eða forvitni í

    davidkarl@btnet.is eða
    6934878 eða
    á þessum þræði

    be there or be square:D

    Davíð Karl að tapa sér í plönun:D





    04.03.2007 at 10:38 #582778
    Profile photo of Arngrímur Kristjánsson
    Arngrímur Kristjánsson
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 403

    bara að uppfæra





    06.03.2007 at 00:41 #582780
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    bara að minna á ferðina og enn vantar ca 2 bíla þann 17

    Góðir tímar

    Davíð Karl





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 60 total)
1 2 3 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.