FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Lyngdalsheiði

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Lyngdalsheiði

This topic contains 13 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 19 years, 6 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 01.12.2005 at 10:35 #196747
    Profile photo of
    Anonymous

    Er einhver nýbúinn að fara Lyngdalsheiði – hvernig er færðin? Var að spá í að fara á sunnudaginn.
    Keli Köttur

  • Creator
    Topic
Viewing 13 replies - 1 through 13 (of 13 total)
  • Author
    Replies
  • 01.12.2005 at 10:57 #534434
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Fór Lyngdalsheiðina á þriðjudaginn síðasta það er eiginlega bara snjór í veginum og það voru för í honum þegar við vorum þarna, var ekkert aksjón fyrr en uppí hlöðufelli og þar en þar voru för samt líka.

    kv Stefán





    01.12.2005 at 17:24 #534436
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Mæli með að menn sem eru að skreppa á "Lyngdalsheiði" skoði landakortið og sjái hvar hún er.

    Góðar stundir





    01.12.2005 at 17:33 #534438
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Veit hvar Lyngdalsheiði er, bæði á korti og að keyra þangað. Hlynur hvað áttu annars við?
    Keli Köttur





    01.12.2005 at 17:46 #534440
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Ég átti nú von á því að Hlynur myndi skamma ykkur fyrir þetta með Lyngdalsheiðina. En ef ég er ekki allveg úti á þekju er vegur 365 Gjábakkavegur og norðan við Lyngdalsheiði. Þegar þessi vegur er ekinn er ekið af vegi 365 norður og með Þjófahrauni. Síðan er komið að gatnamótunum suðaustan við Skjaldbreið, og frá þeim gatnamótum og inn að Hlöðufelli er ekinn gamli Eyfirðingavegurinn. Þannig að hvergi á þessari leið er ekið um Lyngdalsheiði og er það sem Hlynur átti við. Gaman væri að vita hvort menn viti hvort leggurinn inn með Þjófahrauni beri nafn





    01.12.2005 at 17:47 #534442
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þessi umræða held ég hafi komið upp hér áður. Það sem Hlynur er sjálfsagt að ýja að hér er að vegurinn liggur ekki yfir Lyngdalsheiðina sjálfa heldur rétt norðan við hana. Ég held það megi samt segja með nokkrum sanni að það er komin löng hefð á að kalla þessa leið Lyngdalsheiði, þó hún liggi ekki um háheiðina. Hafa menn eitthvað betra nafn á leiðinni?
    Kv – Skúli





    01.12.2005 at 17:49 #534444
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Já þetta er leiðinlega villa sem hefur skapast, alltaf verið tala um lyngdalsheiði í kringum mig þegar verið er að fara þarna uppeftir.

    [img:3ic7l9xj]http://www.hi.is/~sng/untitled.JPG[/img:3ic7l9xj]

    kv Stefán áttavillti





    01.12.2005 at 17:52 #534446
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Vegagerðin kynnir hér með nýja tillögu að matsáætlun um Gjábakkaveg (365) á milli Þingvalla og Laugarvatns. Fyrirhugaður vegur er um 15 km langur og liggur um þann hluta Bláskógabyggðar sem áður hét Laugardalshreppur og Þingvallahreppur. Þá sneiðir vegurinn í gegnum land Grímsnes- og Grafningshrepps. Í nágrenni fyrirhugaðs vegar eru m.a. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum, Gjábakki, Gjábakkahraun, Reyðarbarmur og Laugarvatnsvellir (sjá grunnmyndir 1/2 og 2/2).

    Þessi texti er af síðu vegagerðarinnar





    01.12.2005 at 17:58 #534448
    Profile photo of Ólafur Arnar Gunnarsson
    Ólafur Arnar Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 32
    • Svör: 544

    Þar sem þessi leiðinlegi misskilningur um hvar Lyngdalsheiðin er þá er vegagerðin að spá í að færa Gjábakkaveginn niður á Lyngdalsheiðina sjálfa, væntanlega til að koma í veg fyrir þennan þráláta misskilning.
    http://www.vso.is/islenska/3-frodleiksm … aetlun.pdf

    Annars hefur einhver nefnt heitið Bláskógabyggð í þessu samhengi.





    01.12.2005 at 18:05 #534450
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    OK, ég umorða þá spurninguna. Hefur einhver farið nýlega veginn sem flestir landsmenn sem keyra hann kalla að fara lyngdalsheiði, en liggur aðeins utan við heiðina?
    Keli Köttur





    01.12.2005 at 20:27 #534452
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Ég ók Gjábakkaveg á sunnudaginn og þá var hann auður og ekki mikin snjó að sjá utan vegar.

    Benni

    P.S.

    Væntanlegur nýr Gjábakkavegur sem vonandi verður kominn árið 2007 kemur ekki til með að snerta Lyngdalsheiði frekar en þessi. En þar sem þessi vegur liggur um frá Gjábakkahrauni niður að Laugardalsvöllum um skrað sem heitir Barmaskarð þá legg ég til að vegurinn verði hér eftir nefndur Barmabraut.

    Benni





    01.12.2005 at 20:41 #534454
    Profile photo of Páll Arnarsson
    Páll Arnarsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 494

    Hmmmm Benni … er þetta ekki að bera í barmafullann lækinn ?? haaa já .. nei …..
    Maður fer bara hjá sér … <;o)
    Smá spaug svona á næstumþví föstudegi sko :o)

    Hinn Bensíndraugurinn





    01.12.2005 at 21:05 #534456
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    …..hvernig væri bara að nota réttu nöfnin, þ.e. að aka Gjábakkaveg um Bláskógarbyggð ??
    kv
    AgnarBen
    p.s. Benni að nota Barmabraut er nottla bara stórhættulegt, allir jeppakarlar myndu í framhaldinu stand´ann alla leið upp í skarð !!!





    01.12.2005 at 21:21 #534458
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Fyrirhugaður nýr vegur milli Þingvalla og Laugarvatns kemur hvorki til með að koma nálægt Gjábakka né Barmaskarði. Vegna heimsminjaskráningar Þingvalla er leið 7 eina mögulega leiðin í dag. Einhver möguleiki er þó að hinn nýi vegur komi til með að snerta Lyngdalsheiðina sjálfa og er það með leið 12a, en það yðri þó rétt bara í bakkann á henni.

    Það er þó til vegur sem heitir með réttu Lyngdalsheiðarvegur en ég ætla að vona að menn hafi ekki verið að aka mikið um hann, enda er það reiðvegur sem nýlega var byggður upp og akstur vélknúinna ökutækja bannaður (á auðum vegi). Sá vegur liggur frá Laugarvatnsvegi (Svínavatn-Laugarvatn) og að Kringlumýri, sem er rétt neðan við núverandi Gjábakkaveg.

    Það er bara vonandi að nýr vegur verði kominn árið 2007, en miðað við framgang mála undanfarið að þá er það hæpið.
    kv. Eyþór





  • Author
    Replies
Viewing 13 replies - 1 through 13 (of 13 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.