Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › lokun á vefspjallinu
This topic contains 44 replies, has 1 voice, and was last updated by Skúli Haukur Skúlason 18 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
03.02.2006 at 07:20 #197226
Jólin komu snemma í ár. Ég vil þakka stjórn fyrir þessa ákvörðun og ég vona að þetta verði öðrum til umhugsunar næst þegar þeir skrifa á netið.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
03.02.2006 at 08:25 #541328
Á að loka á þá sem eru ekki í f4x4
03.02.2006 at 08:47 #541330neinei….. sjá frétt á forsíðu…
03.02.2006 at 08:54 #541332Ef þetta eru þeir sem mann grunar…
Þá segi ég farið hefur fé betraGísli
03.02.2006 at 08:59 #541334Ég vona að menn sjái að sér
03.02.2006 at 09:11 #541336
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
vona að þetta sé nóg til að stöðva aðra í því að fara að leika sama leikinn hér…
03.02.2006 at 09:34 #541338mönnum er best að lifa …….
vona að menn læri eithvað af þessu. Og klöppum fyrir stjórninni
03.02.2006 at 10:20 #541340Þetta var mikið þarfaþing.
Segi ekki meir.Gott framtak…
03.02.2006 at 10:54 #541342Húrra, bravaó
Það er bara vonandi að vefurinn jafni sig fljótt aftur eftir leiðinda skæting og fúlmensku.
Það er sjálfsagt að hafa öðruvísi skoðanir, en ef menn geta ekki starfað undir 4×4, þá verða menn að snúa sér annað.
Ég veit ekki betur en stjórninn sé réttkjörinn.kv. Atli E.
03.02.2006 at 12:31 #541344en hugsanlega nauðsynlegt, það er nú það. Mér finnst það samt vafasamt að gera svona. Hvar eru mörkin og hver setur þau. Það er málfrelsi og líka ritfrelsi hér á Íslandi. Svona aðgerðir orka tvímælis. Öll þessi skrif sem vísað er í skipta mig engu máli og get ég alveg séð um það sjálfur að ákveða hvort þau ergi mig eða ekki. Mæli með að láta þennann vef vera sem mest afskiptalausann, þannig er hann bestur og mest "real". Hver og einn verður að taka ábyrgð á því sem hann skrifar og eða les.
Ágúst
03.02.2006 at 12:54 #541346
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Held að það sé ekkert vafasamt við það að menn fái viðvörun við skrifum sínum á þennan hátt (enda bara tímabundið). Þessi skrif þeirra fóru ekkert í mig, en ágætt að einhverjir halda um spjallið með einhverjum siðareglum.
03.02.2006 at 13:05 #541348er ekki skilgreint þannig að þú getir skifað hvað sem er og krafist þess að það sé birt á þeim miðli sem þú ákveður. Maður getur t.d. ekki skrifað eitthvað og krafist þess í skjóli ritfrelsis að það verði birt í Mogganum. Eigendur eða ritstjórar miðilsins hafa alltaf lokaorðið.
Það er ekki verið að stoppa einn né neinn í því að skrifa eitt né neitt, né að birta það, þar sem þeir geta birt það. það er bara verið að stoppa það að það sé birt á f4x4.is
Bara gott mál.
kv
Rúnar.
03.02.2006 at 13:15 #541350Ég hélt ekki að fjallamenn væru þær "kellingar" að þeir létu svona nokkuð fara í taugarnar á sér. En aftur á móti, hvers er að vænta af drengjum sem metast um hvor er betri Datsun eða Toyota. Ég viðurkenni að ég hef eflaust ekki lesið allt sem félagarnir tveir skrifuðu en ég rakst aldrei á neitt sem krefst bannfæringar. Mér finnst þetta kerlingaháttur.
Jón
03.02.2006 at 14:55 #541352Mín skoðun er sú að hér sé ekki verið að skerða frelsi manna heldur að koma í veg fyrir að menn skemmi málefnalegar umræður í skjóli þess að vera sniðugir og fyndnir og geri lítið úr mönnum sem reyna að leita ráða hjá mönnum sem þeir telja að hafi betur vit á hlutunum og þora að viðurkenna það.
03.02.2006 at 15:25 #541354gott dæmi um það hvernig þeir hafa tekið á málunum.
[url=http://www.f4x4.is/new/forum/?file=ferdir/6608:2z1889ul]árbúðir[/url:2z1889ul]
https://old.f4x4.is/new/forum/?file=ferdir/6608
Þessir strákar hafa að mér fynnst lennt í vítahring sem þeir komu sér sjálfir inní.
Eftir fjárplógsstarfsemis þráðinn góða var nóg fyrir mig að sjá eithvern af þeim skrifa og ég varð strax fúll, og voru svorin alveg eftir því.
t.d. nýlilðaferðar þráðurinn það vita það allir að ég hef ekkert á móti stórum bílum. Það var bara nóg að sjá nafnið moggi og það var nóg til að ég misti mig í vitleysu. Ekkert endilega þeim að kenna ég á sennilega góðan hlut í því.
Þannig hefur þetta að mér fynnst gengið eftir þennann elsku fjárplógstarfsemis þráð sem var eflaust eithvað grín en féll ekki alveg í réttan farveg.
Það hefur verið nóg að þeir skrifi til að menn svari með skætingi. Svo hafa þeir heldur ekkert verið að skafa af því með töktum sem ég kannast bara við síðan í framhaldskóla.
Ég tel það bara gott mál að leifa þeim að hvíla sig aðeins. svo að við hinir getum jafnað okkur á þeim líka.
Þá getum við kanski talað saman eins og fullorðnir menn þegar þeir fá aftur opnun á spjallið
03.02.2006 at 16:00 #541356samt benda á að Þórir hefur sínt lit og bað mig afsökunar og er allt í besta á milli okkar í dag.
Og kom t.d. með varahluti til okkar upp í setur í nýliðaferðinni.Og mogginn bauð fram sáttarhönd hérna á vefnum.
03.02.2006 at 16:29 #541358Jæja já…ég sá þegar moggi reyndi að bjóða fram sáttarhönd…og tóku flestir vel í það hjá honum, en er einhver búinn að telja daganna sem það tók fyrir hann að byrja að drulla aftur yfir allt og alla?
Ég taldi þá svosem ekki, en þeir voru ekkert rosalega margir, það varð allaveganna enginn 2gja stafa tala í þeim efnum.
Ég sem greiðandi félagsmaður styð heilshugar við bakið á stjórninni í þessu máli.
Það er stór munur á því hvort að menn séu að fíflast og gera grín eða hvort að menn séu að eyðileggja annan hvern þráð hérna (eða hér um bil) þegar bæði reyndir jeppamenn og nýliðar í sportinu eru að leita svara við kannski sára einföldum spurningum.
Allaveganna á stjórn Ferðaklúbbsins mitt atkvæði í þessu máli.
Kveðja
Sigurður Friðriksson
Félgi #: R-2442
03.02.2006 at 18:06 #541360Ég tek undir með stjórn,þeir hefðu bara mátt vera allri 3 en tími til kominn ég styð þetta mál
Klakinn
03.02.2006 at 18:19 #541362Stjórn og vefnefnd hafa það verkefni að sjá til þess að vefurinn hér sé nothæfur. Til þess er ekki nóg að sjá til þess að búnaðurinn virki heldur þarf líka að verja hann fyrir skemmdarverkum. Það er vel hægt að eyðileggja svona vefspjall með því að yfirtaka hvern þráðinn af öðru með einhverju óviðeigandi efni hvort sem menn vilja kalla það bull, skítkast eða hvað. Hvar mörkin liggja er svo alltaf huglægt mat þeirra sem með eiga að fara og ekki hægt að setja einhverja reglustiku á það. Hvort þau mörk sem stjórnin setti hér eru rétt eða ekki geta menn rætt á aðalfundi og þá kosið aðra menn séu þeir ósáttir. Telji stjórn að þessir aðilar hafi farið yfir þessi mörk hefur hún ekki bara heimild til að gera eitthvað heldur er henni það skylt.
kv.
ÞÞ
03.02.2006 at 21:08 #541364Ég styð þetta mál
03.02.2006 at 21:17 #541366Ég styð ákvörðun klúbbsins 100%. Þessi lokun verður kannski öðrum víti til varnaðar, þegar menn sjá að þeir komast ekki upp með hvað sem er snúa þeir sér kannski annað. En batnandi mönnum er best að lifa og vona ég að þessir aðilar nýti "fríið" í eitthvað uppbyggilegt.
Kveðja
Ásgeir
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.