FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Lokanir á hálendisvegum

by Dagur Bragason

Forsíða › Forums › Spjallið › Umhverfismál › Lokanir á hálendisvegum

This topic contains 12 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Dagur Bragason Dagur Bragason 13 years, 11 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 18.07.2011 at 20:31 #219779
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant

    Í fréttum RÚV er þetta að finna: http://www.ruv.is/frett/ferdamenn-ofmeta-bilana-idulega
    „Ferðamenn ofmeta bílana iðulega

    Alltof algengt er að ferðafólk ofmeti bílana sína og vanmeti fjallvegi. Þetta segir verkstjóri hjá Vegagerðinni. Hálendisvegir eru oft lokaðir allri umferð þótt breyttir bílar eigi að komast þá. Þetta er gert svo smærri bílar aki ekki um vegina.

    Allir helstu hálendisvegir hafa verið opnaðir, margir allt að mánuði seinna en venjulega vegna snjóa og bleytu á vegum fram eftir sumri. Á hálendinu er vegir misgreiðfærir. Upp að Kárahnjúkum komast til að mynda smábílar en svo eru aðrir vegir frekar á færi stórra og breyttra jeppa, til dæmis Dyngjufjallaleiðog Fjallabaksleiðs syðri.

    Bílar af öllum gerðum fara um hálendið. Gunnar Bóasson, verkstjóri hjá Vegagerðinni á Húsavík segir að vegir séu stundum lokaðir allri umerð þó þeir séu í raun orðnir færir stærri bílum.

    Gunnar segir að útlendingar sem aka um á minni jeppum ofmeti þá oft á tíðum. Þeir telji að þar sem á þeim standi 4×4 hljóti þeir að komast leiðar sinnar. Síðan þegar þeir komi að fyrsta skafli keyri þeir út fyrir og sklji eftir sig ljót sár því að yfirleitt sé jarðvegurinn mjög blautur utan við skaflana. Breyttir jeppar geti farið yfir skaflana og skemmi ekkert nema snjóinn.“

    Gunnar segir að innlendir sem erlendir ferðamenn verði að læra að snúa við. Rangur bíll og röngum veg geti eyðilagt hvort tveggja – auk þess sé kostnaður fólginn í því að sækja bíl og farþega langar vegalengdir.

    Hér er tilgangur lokunar hálendisvega spurningin, en samkvæmt umferðarlögum hefur vegagerðin heimild til að loka vegum til að vernda þá fyrir skemdum, en ef engin hætta er á skemdum, þá er ekki löglegt að loka veginum.
    Hvað finnst fólki um þetta?

    kveðja Dagur

    frettir@ruv.is

  • Creator
    Topic
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)
  • Author
    Replies
  • 18.07.2011 at 21:59 #733881
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Á vetrum eru hálendisvegir merktir sem ófærir, þeir eru merktir rauðir á kortum Vegagerðarinnar og sagðir ófærir, þá eru skilti sem segja "Impassible" eða eitthvað í þeim dúr. Meðan svo er ástatt ökum við um vegina eða utan þeirra á snjó eins og hentar.

    Á vorin breytist þetta og þá lokar Vegagerðin slóðunum og þá er bannað að aka þar um, amk þau svæði sem Vegagerðin sér um (þeir hafa sagt mér sjálfir að þeir beri enga ábyrgð á og fylgist ekki með ákveðnum leiðum). Þetta tímabil er síðan í gildi þar til hálendisvegir eru orðnir færir öllum jeppum, sem segir okkur að leiðirnar eru orðnar færar löngu fyrr, bara ekki búið að hefla, skaflar á köflum, mikið í ám ofl.

    Nú er spurning hvort klúbburinn geti komið af stað umræðu við Vegagerðina til að bæta við þriðja stiginu sem tekur við á vorin frá því að leiðirnar eru þannig að akstur veldur skemmdum, þar til búið er að hefla þær eða þær af öðrum ástæðum orðnar færar minni jeppum. Þetta gæti í raun verið þannig að þær séu merktar ófærar eins og á vetrum, án þess að vera lokaðar.

    Kv. Óli





    18.07.2011 at 23:03 #733883
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Mikið af lokunum vegagerðarinnar eiga ekkert skylt með færð vega. Heldur eru lokanirnar vegna fuglafriðunar. Þarna finnst mér þeir vera komnir æði langt út fyrir verksvið sitt. Þannig að það hlýtur að vera snúið að semja við vegagerðina þegar þessi fuglafriðunardeild vegagerðarinnar er enn að störfum.





    18.07.2011 at 23:25 #733885
    Profile photo of Lárus Elíasson
    Lárus Elíasson
    Participant
    • Umræður: 30
    • Svör: 408

    Þetta er orðið mjög skrítið þegar Vegagerðin lokar vegum af því að erlendir ferðamenn á smájeppum gætu farið sér að voða. Samkvæmt því ættu sumar leiðir s.s. í Þórsmörk, Lónsöræfi, Syðra fjallabak, Núpsstaðaskógur og fl. að vera lokaðar alt eða nálega alt árið. Hér er þörf að að taka upp þráðinn við Vegagerðina og löggæsluyfirvöld en sumir s.s. Sýslumaðurinn í Árnessýslu telur lokum sama og lögbrot þar sem verið er að skemma íslenska náttúru.

    Við hjóðum að krefjast þess að gerður sé greinarmunur á lokunum til verndar vegum og íslenskri náttúru og lokun til verndar fávísum túristum.

    l.





    18.07.2011 at 23:38 #733887
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Tek undir þetta, það vantar millistig á vorin meðan vegirnir eru ekki heflaðir en gætu verið torfærir án þess að það valdi skemmdum.

    Hinsvegar hef ég aldrei skilið af hverju það má ekki keyra á vegum á vorin þó það sé aurbleyta í þeim og einhver snjór svo lengi sem menn halda sig undantekningarlaust á veginum og fara aldrei útfyrir, þetta er hvort eð er heflað svo ég skil ekki af hverju einhver storknuð för í gamalli drullu skipta máli þegar hefillinn heflar leiðina.

    Kv. Freyr





    19.07.2011 at 10:55 #733889
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    „Mikið af lokunum vegagerðarinnar eiga ekkert skylt með færð vega. Heldur eru lokanirnar vegna fuglafriðunar.“
    Þetta er dáltið merkilegt. „Mikið“. Hversu mikið? Hvar? Hvenær? Við hvað áttu? Hver er forstöðumaður fuglafriðunardeildar Vegagerðarinnar? Hvar er hún til húsa?
    ???





    20.07.2011 at 04:21 #733891
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Leiðin frá Hrossaborg í Herðubreiðarlindir og Öskju er dæmi um veg þar sem heimild í vegalögum til lokunar vegna hættu á vegaskemmdum, hefur verið misnotuð árum saman. Þessi leið er ekki opnuð fyrr en um miðjan júní, þegar heiðagæsin er búin að verpa í Grafalöndum og Landverðir eru mættir á svæðið. Þetta svæði er mjög snjólétt og ligguggur tiltölulega lágt ( um 400 m.y.s) og því of orðið snjólaust og þurrt löngu áður en vegurinn er opnaður.

    -Einar





    20.07.2011 at 09:24 #733893
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Eitt dæmi. Mikið? Lauslega áætlað eru amk. hundrað vegir lokaðir á vorin. Ef hægt væri að nefna svosem þriðjung sem lokaðir væru vegna fuglafriðunar færi það að verða mikið. Og hver er aftur forstöðumaður fuglafriðunardeildar Vegagerðarinnar?





    20.07.2011 at 17:22 #733895
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Þar sem spurningaflóð þitt er orðið svo mikið Þorvaldur, þá sé ég mér ekki annað fært en að benda þér á upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar þ.e G Pétur Mattíasson. En hann er einmitt á launum hjá ríkinu við það að svara svona spurningaflóði. Hér er netfangið hans g.petur.matthiasson (hjá) vegagerdin.is svo er almenna netfang vegagerðarinnar eftirfarandi: vegagerdin@vegagerdin.is.





    21.07.2011 at 00:24 #733897
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Jamm. Takk fyrir það. Kom þó ekki á óvart.





    21.07.2011 at 13:27 #733899
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Langi Palli hjá Ferðafélaginu er reyndar búinn að koma öllum landspjöllum vegna utanvegaaksturs yfir á okkur félaga í F4x4 í Skagafirði, svo nú þarf ekki lengur að leita að sökudólgum. Við erum reyndar herðabreiðir og þolum það. En þarna skauta menn framhjá því, sem mér finnst aðal atriðið, en það er akstur erlendra ferðamanna á lokunartíma og utan slóða, bæði þeirra sem eru á innlendum bílaleigubílum og ekki síður þeim, sem koma með ferjunni Norröna. Við þeim má ekki blaka, um það virðast allir sammála, jafnt Vegagerðin sem Langi-Palli. Miklu einfaldara að kenna félögum í f4x4 um allar skemmdir, vammir og skammir.





    21.07.2011 at 14:03 #733901
    Profile photo of Árni Alfreðsson
    Árni Alfreðsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 280

    Er eðlilegt að „breyttir“ bílar fari um vegi í aurbleytu og skemmi þá? Eða fara þeir aldrei niður í aurbleytu? Fara „breyttir“ bílar aldrei út fyrir veg til að komast hjá torfærum, t.d aurbleytupollum og stöku skafli?

    Ef það á að byrja á einhverjum undantekningum fyrir útvalda þá gæti reynst erfitt að setja mörkin. Hvað er „breyttur“ bíll? Kannast engin við að þurfa að keyra í aurbleytu langar leiðir áður en komist er í snjó?

    Það er svipaður bragur á þessum málflutningi og málflutningi þeirra sem vilja leyfa útvöldum ferðaþjónustuaðilum að keyra Vonarskarð og fleiri vegi.

    Að halda því fram að útlendingar og óbreyttir bílar séu þeir einu sem valda skemmdum á landinu er orðin þreyttur og úreltur málflutningur. Þreytt og rispuð plata.

    Er alls ekki að mæla með að vegir séu lokaðir að ástæðulausu. Það mætti eflaust bæta að einhverju marki. En það verður að vera einhver skynsemi og regla í þessu samhengi.

    Ég um mig frá mér til mín hugsunarhátturinn ( frá 2007) er alltof ríkjandi hjá sumum klúbbfélögum. Þetta hefur komið óorði á klúbbinn og jeppamenn almennt.

    Kv. Árni Alf.





    21.07.2011 at 23:50 #733903
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Ég benti á orð vegagerðarmannsins vegna þess að aðrar forsendur en verndun vegana voru notaðar sem ástæða lokunar.
    Ekki er lagaheimild hjá vegagerðinni að loka vegi því óvitar gætu farið sér að voða.
    Ekki er lagaheimild hjá vegagerðinni að loka vegi því fuglavarp gæti truflast.
    Ekki er lagaheimild hjá vegagerðinni að loka vegi því ekki er búið að hefla veginn.
    En lagaheimild er fyrir því að loka vegi ef hann getur spillst vegna umferðar.
    kveðja Dagur





  • Author
    Replies
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.