FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Loftflæðiskynjari í 4runner

by Hjörtur Logi Dungal

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Loftflæðiskynjari í 4runner

This topic contains 26 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Hjörtur Logi Dungal Hjörtur Logi Dungal 16 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 14.10.2008 at 12:13 #203059
    Profile photo of Hjörtur Logi Dungal
    Hjörtur Logi Dungal
    Participant

    Er ekki einhver sem lumar á loftflæðiskynjara í lagi fyrir 3.0 V6 4Runner, sem getur leyft mér að prófa. Er að kljást við kraftleysi í mínum bíl og langar að útiloka loftflæðiskynjarann áður en lengra er haldið.
    Er á höfuðborgarsvæðinu.
    –
    699-0735 eða hjorturlogi(hjá)gmail.com
    Hjörtur

  • Creator
    Topic
Viewing 6 replies - 21 through 26 (of 26 total)
← 1 2
  • Author
    Replies
  • 21.10.2008 at 08:23 #631116
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    þú sagðist vera nýbúinn að skipta um púst. nú er ég ekki alkunnugur toyota, en á mmc v6 eru tveir afgasskynjarar einn fyrir framan hvarfakút og einn fyrir aftan. oft þegar sett eru opin púst og hvarfakútur tekin úr þá er bara notaður annar skynjarinn eftir það, en það verður að vera sá rétti.
    annars lýsir þetta sér hjá þér alveg eins og spíssar séu hálf stíflaðir. það er til efni frá komma, kostar 1400 kall brúsinn í N1, til að hreinsa spíssa, blandar í bensíntankinn. efni sem svínvirkar, þegar við á. ég hef notað það með góðum árangri, bíllinn hætti eins og skot að hiksta, dettur í gang við fyrsta start, fékk tork á lágum snúning og eyðir 25% minna, en bíllinn hjá mér vann alltaf ágætlega á háum snúning.





    21.10.2008 at 09:21 #631118
    Profile photo of Hjörtur Logi Dungal
    Hjörtur Logi Dungal
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 184

    átti að verða næsta mál á dagskrá, á bara eftir að finna slíkan, vill ekki spreða í nýjan ef hann er ekki vandamálið. Þetta vandamál var komið upp áður en nýja pústið fór í og var breytt púst í honum fyrir.
    –
    ég var nú búinn að sulla einhverju hreinsiefni í bensíntankinn fyrr í sumar án nokkurs árangurs.
    –
    Eiður, ég vill þakka þér fyrir boðið, en ætla að leita betur hérna á höfuðborgarsvæðinu áður en ég fæ fólk á Reyðarfirði til að stússast fyrir mig, ef það gengur ekki, þá leita ég til þín.
    –
    Ég minntist nú á TPS-inn við Toyotu menn þegar þeir tóku hann, en er farinn að hallast að því að ég verði að kíkja í kaffi og kleinur til hjálparsveitarmeðlims og fá lánaða þessa snilldarbók.
    –
    kv,
    nett pirraði gaurinn





    21.10.2008 at 13:42 #631120
    Profile photo of Hjörtur Logi Dungal
    Hjörtur Logi Dungal
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 184

    er þetta [url=http://www.personal.utulsa.edu/~nathan-buchanan/93fsm/:9cdrkbtk]hún?[/url:9cdrkbtk]





    31.10.2008 at 10:44 #631122
    Profile photo of Hjörtur Logi Dungal
    Hjörtur Logi Dungal
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 184

    en þó eitthvað….
    Í síðustu viku reif ég pústskynjarann úr sambandi og er hann nú að gefa eitthvað merki, tókst nú ekki að gera alveg eins vísindalega mælingu á honum og mælt var með í þeim leiðbeiningum sem ég fann, en tók samt eftir því að gangurinn breyttist í honum þegar ég tók hann úr sambandi og ohm tölurnar virtust vera á því bili sem mælt er með.
    –
    Mældi viðnámið fyrir kaldræsispíssinn og var það í lagi, gat að vísu ekki mælt flæðið í gegnum hann.
    –
    Einnig keypti ég spíssahreinsinn frá komma og sullaði í tankinn, er að vísu ekki búinn að keyra bílinn mikið síðan.
    –
    En ég tók eftir einu. bíllinn er helmingi kraftlausari þegar hann er kaldur miðað við hvernig hann er heitur. Er það eitthvað sem menn geta tengt við eitthvað?
    –
    Svo er annað sem ég var alveg búinn að gleyma, hraðamælabreytirinn hjá mér fór í rugl í vor og ég reif hann úr sambandi, á einhver slíkan grip sem er tilbúinn að láta hann af hendi í skiptum fyrir lambakjöt eða kreppukrónur?
    –
    Á svipuðum tíma og það skeði fór "O/D off" ljósið að blikka þegar "overdrive-ið" er í notkun, en það virkar allt eðlilega, gæti þetta verið eitthvað sambandsleysi??
    –
    Svo vantar mig líka 2 perustæði fyrir stefnuljós, annað í brettið & hitt í framstuðarann.
    –
    Kv,
    brasmann





    31.10.2008 at 13:56 #631124
    Profile photo of Guðmundur Jónsson
    Guðmundur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 1116

    TPS eða inngjafarskynjarinn í þessum bíl hefur bilað og þá þannig að snertan sem á að lokast eða opnast í lausagangi ( þegar spjaldið er alveg lokað ) gefur ekki samband. Það hefur svo þau furðulegu áhrif á vélartölvuna að kveikitíminn fer í einhverja vitleysu þegar gefið er inn og bíllinn verður mátlausari en eðlilegt getur talist.





    25.02.2009 at 17:11 #631126
    Profile photo of Hjörtur Logi Dungal
    Hjörtur Logi Dungal
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 184

    jæja, búið að finna út úr því að bíllinn var orðinn vitlaus á tíma og skánaði hann mikið við þá lagfæringu.
    –
    einnig er komið í ljós að pústskynjarinn er að gefa vitlaust merki, þannig að honum verður skipt út fljótlega.
    –
    svo er það bensíndælan, það var mælt með því við mig að ég myndi skipta um hana, þannig að ég óska hér með eftir dælu.
    –
    Svo vildi nú þessi ágæti maður hjá toyota meina að það kæmi frekar lítil neisti á öllum (hann vildi þó ekki útiloka að það væri bara hans mat), ekkert fannst að kveikjuloki, kveikjuhamar, háspennukefli né þræði.
    –
    Meira síðar.





  • Author
    Replies
Viewing 6 replies - 21 through 26 (of 26 total)
← 1 2

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.