Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › loftdæla
This topic contains 18 replies, has 1 voice, and was last updated by Hannes Jón Lárusson 21 years ago.
-
CreatorTopic
-
23.11.2003 at 21:33 #193218
Sælir
ég var að spá hvernig loftdælu ég ætti að fá mér og með hverju menn mæla.
Ég vill helst Rafmagnsdælu sem ég get fært á milli bíla og svoleiðisKveðja Kárinn
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
23.11.2003 at 21:34 #481280
Fini, þekki engann sem ekki er ánægður með svoleiðis græju.
23.11.2003 at 22:28 #481282Ég skoðaði þetta vel á sínum tíma (í sumar) og komst að því að Fini dælan (sem er ódýrust í Byko) er langbesti kosturinn. Hún er reyndar stór miðað við hinar en líka með 4x meiri afköst, dælir 170 L/mín og upp í 8 atm = 115 pund.
Hún kemur með klemmum sem settar eru beint á bílgeyminn og því auðvelt að henda henni í og á milli bíla.
Hrikalega góð kaup.
kv HannesJon
24.11.2003 at 06:24 #481284Hvað kostar þessi dæla hjá BYKO?
24.11.2003 at 08:44 #481286Sælir félagar.
Varðandi þessar Fini loftdælur, þar sem þær eiga að geta dælt uppí 115 pund. Hefur einhver sett þessar dælur við kút og sett pressustat(þrýstirofa) við þær. Það sem ég var að hugsa um er þetta, ef dælan pumpar þrýsting uppí 115 pund, hvað þyrfti þrýstingurinn að falla áður en maður lætur hana starta sér aftur. Ætli hún ráði við að starta sér í gang ef þrýstingurinn er kannski ekki kominn niður í nema 80-90 pund?? Þarf þrýstingurinn kannski að falla neðar. Ég var að hugsa um hvort ég gæti notað hana við loftlikil líka ásamt því að pumpa í dekkin ef ég hefði svona 20 lítra loftkút??
Kv ice
24.11.2003 at 08:44 #481288Sælir félagar.
Varðandi þessar Fini loftdælur, þar sem þær eiga að geta dælt uppí 115 pund. Hefur einhver sett þessar dælur við kút og sett pressustat(þrýstirofa) við þær. Það sem ég var að hugsa um er þetta, ef dælan pumpar þrýsting uppí 115 pund, hvað þyrfti þrýstingurinn að falla áður en maður lætur hana starta sér aftur. Ætli hún ráði við að starta sér í gang ef þrýstingurinn er kannski ekki kominn niður í nema 80-90 pund?? Þarf þrýstingurinn kannski að falla neðar. Ég var að hugsa um hvort ég gæti notað hana við loftlikil líka ásamt því að pumpa í dekkin ef ég hefði svona 20 lítra loftkút??
Kv ice
24.11.2003 at 08:46 #481290Smá viðbót.
Hvernig hafa þessar Fini dælur enst?? Eru menn almenn´t ánægðir með þær??
Kv sem fyrr Ice
24.11.2003 at 12:20 #481292Hún kostar um 32.900 í Byko og svo fáum við í f4x4 afslátt.
Með Finikveðju.
Kalli.
24.11.2003 at 18:21 #481294
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Fini, ekki spurning, er mjög ánægður með mína, hef verið með 38 og 44". Svínvirkar og er ekki ónýt eftir vetrinn.
Jónas
24.11.2003 at 19:54 #481296Sælir.
Fékk Flash dælu hjá Verkfærasölunni á 30þ, Flash er samadælan og Fini. Ég fasttengdi dæluna og setti þrýstirofa( pressustat )á lögnina,stillti á 110 p. Nauðsynlegt er að hafa einstreymiloka á lögninni frá dælunni. Útbjó loftkút úr kastaragrindinni.Dælan er 1 mín og 40 sek að fylla "kútinn".
Vegna þess hvað þrýstingur fellur hratt náði loftlykillinn ekki að losa felgurærnar, eftir að rærnar höfðu verið losaðar var hægt að skrúfa þær af.
kv
Óli Hall.
25.11.2003 at 09:30 #481298Heitir Fini Flash Og bara virkar. Sterkbyggðar og áræðanlegar.
25.11.2003 at 20:18 #481300Er með fini fasttengda og 2,5 l. kút fyrir læsingarnar.
Er um 8-10sek er með hana stillta á 6bör að mig minnir! og svo þrýstijafnara útí læsingar.
25.11.2003 at 23:48 #481302Ég er með svona Fini dælu og er með ca 10 lítra kút og pressustat og er það að virka mjög fínt en það þarf að vera einstefnuloki á lögninni og pressustatið þarf að aflesta lögnina frá dælunni svo hún ræsi á þrýstingslausri lögninni. kv Jóhann.
26.11.2003 at 07:57 #481304Sæll Jóhann.
Það var akkurat þetta sem ég var að spá í hvort þessi dæla næði að starta sér með fullum þrýsting á lögninni. Þú segir að aflesta þurfi lögnina til þess að hún nái að starta sér, hvernig pressustat er þetta sem aflestar lögnina?? gerist þetta sjálfvirkt??
kv ice
26.11.2003 at 15:17 #481306Sæll ice.
Þetta er pressustat frá Danfoss og er með aflestunar ventli ég fékk þetta hjá Vökvatengi í Njarðvík þetta er notað á allt mögulegt,vatn ofl. mig minnir að diffrensin sé ca 1,5bar. Já þetta skeður sjálvirkt þegar diffið slær út
það liggja tvær slöngur að pressóinu. Mig minnir að það séu teikningar með pressóinu sem sýna hvernig á að tengja.
kv.Jóhann.
26.11.2003 at 19:20 #481308Sæll aftur Jóhann.
Ef mögulegt er,,, gætirðu athugað hvað pressustatið heitir,,,það er t.d. KP-15 eð hvað sem stimplað er á það svo ég geti pantað mér eins frá Danfoss.
Kv ice
26.11.2003 at 21:14 #481310Sæll ice
Ég næ ekki að lesa hvað stendur á Því en fann miðan sem
fylgdi og þar stendur bara type CS. En ef þú talar við
sölumann þá á hann að geta fundið það sem þig vantar en
taktu fram að það eigi að vera með aflestunarventli.
kv Jóhann
27.11.2003 at 01:20 #481312
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
ekki vera að pæla í þessu rafmagnsrusli og keyptu þér reimdrifna dælu af mér:) hún dælir 200 lítrum á mínotu á 1000 snúningum og það er ekki séns að nein bíla dæla afkasti svo kikklu
27.11.2003 at 10:06 #481314Þið Fini menn sem hafið fest fini dæluna í bílinn ykkar,
hvar hafið þið komið henni fyrir?
Svör frá LC90 mönnum sérstaklega vel þegin.kv HannesJon
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.