FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Lock up á sjálfskiptingu

by Ágúst Þór Guðbergsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Lock up á sjálfskiptingu

This topic contains 11 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Ágúst Þór Guðbergsson Ágúst Þór Guðbergsson 19 years, 1 month ago.

  • Creator
    Topic
  • 11.04.2006 at 09:46 #197734
    Profile photo of Ágúst Þór Guðbergsson
    Ágúst Þór Guðbergsson
    Participant

    Hvaða skoðun hafa menn á svona búnaði. Fyrirtæki í Australíu (sjálfsögðu) framleiða Lock-up búnað fyrir Landcruiser og Patrol sjálfskiptingar. Sjá http://www.automatictransmission.com.au. Þetta virkar eins og að gera bílinn beinskiptann. Hvað með álagið á kúplinguna í converterinum. Þetta minnkar hitamyndun í converterinum og er því tilvalið fyrir þá sem vilja losna við svoleiðis leiðindi. Eina sem ég er að spá er hvort kúplingin í converterinum sé nægjanlega sterk í það sem við erum að gera. Líklega er það í lagi. En hefur einhver spáð í þetta in deep.

    Agust Thor.

  • Creator
    Topic
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)
  • Author
    Replies
  • 11.04.2006 at 10:54 #549078
    Profile photo of Ágúst Þór Guðbergsson
    Ágúst Þór Guðbergsson
    Participant
    • Umræður: 71
    • Svör: 702

    Það er einmitt það sem ég er að spá í. Veit ekki með Hummerinn en sjálfskiptingin í LC80 er bara með Lock up í D s.s. efsta gír, og þannig er það venjulega. Held það væri gott að geta sett líka lock up í 3 gír sérstaklega. Það myndi alveg stoppa hitavandamál. Málið er bara styrkurinn í kúplingunni í converterinum. Held samt hún væri nægjanlega sterk. Þetta er mjög algengt í Australíu þar sem þeir eru að nota LC og Patrol til að draga þunga hluti. Síðan með þessu manual lock up (loftdrifið fyrir minn bíl) þá getur þú læst converterinum á hvaða hraða sem er. Ég bjalla í Jóa. Óþarfi að finna upp hjólið aftur ef einhverjir eru byrjaðir á því og betra sjá augu en auga.

    Agust Thor.





    11.04.2006 at 10:57 #549080
    Profile photo of Ágúst Þór Guðbergsson
    Ágúst Þór Guðbergsson
    Participant
    • Umræður: 71
    • Svör: 702

    þegi þú, þú veist hvort sem er ekkert. Ef þú verður þægur þá máttu kannski koma með mér í ferð um helgina upp í Setur. Ætlarðu að vera þægur.

    Agust Thor.
    Farðu á þennann link http://www.dieselsmoke.com/info/propaneinjection.html
    Veitir ekki af fyrir sumar gerðir bifreiða.





    11.04.2006 at 11:43 #549082
    Profile photo of Ágúst Þór Guðbergsson
    Ágúst Þór Guðbergsson
    Participant
    • Umræður: 71
    • Svör: 702

    Veistu hvað Jim Cramer segir að það sé það nýjasta. Jamba Juice, t.d. http://www.jambajuice.com. þar áttu að setja peningana þína núna segir hann. The next big thing. Er ekki tilvalið að uppfæra þennann vef í að verða að einskonar verðbréfaþingi ? t.d. er gott að kaupa í MSFT núna?. Þeir eru aðeins depressed þar sem útgáfa á VISTA tefst.

    Agust Thor.





    11.04.2006 at 11:51 #549084
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Nú ætla ég ekki að halda því fram að ég skilji hvað þetta snýst um, en minni á sjálfskiptinguna sem er original í t.d. Pajero – sumir framleiðendur kalla þetta tiptronic – skiptingar – ég ætla svo sem ekki að lýsa þessu nánar, þetta hafa flestir séð held ég.





    11.04.2006 at 13:45 #549086
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    ég veit að menn úti í henni ameríku hafa notað þetta á Aisin Warner 4 skiptingarnar (cherokee 4.0 EKKI grand) og eru varla að halda vatni yfir þessu, þá eru þeir reyndar með skipti í þessu í leiðinni, þannig að þetta verður eins og í gömlu spilakassabílaleikjunum, þar sem að maður skipti bara um gír án þess að kúpla. þeir segjast hafa séð mun á eyðslu og hafa víst loksins eitthvað að gera þegar þeir eru að keyra…

    þú getur lesið þig um þann búnað á þessari slóð (hjálpartólið virkar ekki :S) http://awshifting.com/





    11.04.2006 at 13:54 #549088
    Profile photo of Ágúst Þór Guðbergsson
    Ágúst Þór Guðbergsson
    Participant
    • Umræður: 71
    • Svör: 702

    Þessi búnaður Ástralana leyfir lika að rúlla á milli gíra með lock-up on. Ekkert mál.

    Agust





    11.04.2006 at 19:08 #549090
    Profile photo of Ágúst Þór Guðbergsson
    Ágúst Þór Guðbergsson
    Participant
    • Umræður: 71
    • Svör: 702

    Þetta er rétt hjá þér Þórir. Þetta er helv. sniðugt og sáraeinfalt að setja í LC80 og sérstaklega einfalt í 1992 plus. Þessir aðilar framleiða þetta líka í Patrol. Alveg bráðsniðugt. Við vissar aðstæður þá hef ég lent í þvi að fá upp hitaljósið í mælaborðið, sem betur fer ekki oft og í fyrsta sinn f. 2 vikum í um heilt ár um daginn á Vatnajökli. Maður verður svo fúll þannig að ég hellti mér í að skoða málið. Sko, ég hef aldrei spáð í það, en það er þannig að allar sjálfskiptingar eru með lock-up innbyggðu, í LC80 er þetta í 3-4 gír. Ég hinsvegar verð ekki var við það. Einföld leið til að prófa er að keyra í D (4)á 100km hraða og tippla á bremsurnar. Þá á lock-upið að fara af og þú átt að sjá snúningshraða vélarinnar aukast um ca. 200 rpm. ‘Eg prófaði og verð ekki var við þetta. Skilurðu, þannig að ég gróf dýpra og þá kom í ljós að ef bremsuljóspera er sprungin eða útleiðsla í kerru tengi þá fer lock-uppið ekki á. Jæja, ég er nú ekki búinn að ath. þessa hluti ennþá. En þetta er soldið abstrakt, sprungin bremsuljóspera slekkur á lock-uppinu. Viss um að ekki margir vita af þessu. Það er mjög mikilvægt að lock upið sé að virka. Minni eldsneytiseyðsla og meira torque út í hjólin. Þess vegna ef ég fæ þetta ekki til að funkera original þá ætla ég að skoða það sem ástralarnir eru að bjóða upp á.
    Jú. við erum að spá í að fara í Setur á fimmtudag og stefnan er á Gljúfurleitsleiðina uppeftir. Koma með ?

    Agust Thor





    11.04.2006 at 19:17 #549092
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Þetta hefur ekkert með nýju stóru dekkin að gera? 😉
    –
    Bestu kveðjur, -haffi
    –
    ps. Ég keypti kolsýrukútinn af þér um daginn





    11.04.2006 at 19:28 #549094
    Profile photo of Ágúst Þór Guðbergsson
    Ágúst Þór Guðbergsson
    Participant
    • Umræður: 71
    • Svör: 702

    Sæll Hafsteinn. Vona að kúturinn komi að góðum notum. Nei 46" er ekki málið. Ég er búinn að verða var við þetta vandamál alveg frá því ég keypti bílinn f. 5 árum og veit að margir aðrir eru í sömu sporum bæði LC og Patrol. En auðvitað hjálpa stærri dekkinn ekki. En vandamálið var fyrir hendi áður. En nú verður það bara leyst.

    AgustThor





    11.04.2006 at 20:12 #549096
    Profile photo of Karl Guðnason
    Karl Guðnason
    Member
    • Umræður: 28
    • Svör: 1154

    Kríli setti inn link hér ofar á vefinn um propan innspítingu sem mér þykir mjög áhugavert ! Hefur þetta verið sett í bíl hér á fróni og þá kannski í Patról? gaman væri að heyra í fróðum um málið.
    kv:Kalli innblásni





    11.04.2006 at 21:59 #549098
    Profile photo of Ágúst Þór Guðbergsson
    Ágúst Þór Guðbergsson
    Participant
    • Umræður: 71
    • Svör: 702

    Sælir Kalli. Já ég var með svona búnað í bílnum hjá mér. Þennann búnað (Bully Dog) keypti ég hér í Keflavík. Ég setti þetta í bílinn og nokkrir aðrir hér í Keflavík sem ég þekki, bæði í LC og Patrol og eru allir sammála um að þetta auki kraftinn umtalsvert. Fyrir um tveim árum bilaði vélin hjá mér, hringastýringar á milli stimpilhringja brotnuðu og voru menn ekki vissir um hvað hefði ollið. Helst bentu menn á gasið og í framhaldinu hætti ég að nota það. Tók það svo úr fyrr í vetur. Núna hinsvegar, eftir að hafa lesið þessa grein held ég að orsakavaldurinn hafi verið eitthvað annað. Í framhaldinu ætla ég að setja þetta í aftur og gera frekari prófanir. Skv. þessari grein t.d. eiga ekki að geta orðið forsprengingar af gasinu einu þar sem hitinn sem framkallast við þrýstinginn í sprengirýminu nægir ekki til íkveikju á gasinu. Til íkveikju þarf að blanda diesel í jöfnuna. En sem sagt þetta hefur verið í notkun og hafa sumir notað þetta mikið. En það hefur verið ákveðin hræðsla við þetta þar sem þetta er "öðruvísi". Mikið notað í USA.

    Kveðja
    Agust Thor. [url=http://www.bullydog.com:2930ruaz][b:2930ruaz]bullydog.com[/b:2930ruaz][/url:2930ruaz]

    svo til fróðleiks
    [url=http://http://www.thebiodieselstation.com/:2930ruaz][b:2930ruaz]Biodiesel.com[/b:2930ruaz][/url:2930ruaz]





  • Author
    Replies
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.