FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Litlunefndarferð 24. September

by Gnýr Guðmundsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Litlunefndarferð 24. September

This topic contains 11 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Ólafur Magnússon Ólafur Magnússon 13 years, 8 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 05.09.2011 at 15:57 #220277
    Profile photo of Gnýr Guðmundsson
    Gnýr Guðmundsson
    Participant

    Fyrsta ferð litlunefndar á nýju starfsári verður farin þann 24. september næstkomandi. Um er að ræða haustlitaferð í Þórsmörk. Opnað verður fyrir skráningu þegar nær dregur ferð, en áhugasamir eru hvattir til að taka daginn frá.

    Gnýr Guðmundsson
    Litlunefnd

  • Creator
    Topic
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)
  • Author
    Replies
  • 12.09.2011 at 11:41 #736693
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Nú eru aðeins 12 dagar í fyrstu Litlunefndarferð starfsársins. Það styttist í að við opnum fyrir skráningar og mikil tilhlökkun hjá Litlunefnd að hefja reglulegar ferðir á ný. Við treystum á að laugardaginn 24. september verðið veður fallegt og haustlitirnir í algleymingi í Þórsmörk.

    kv. Óli





    15.09.2011 at 22:59 #736695
    Profile photo of Gnýr Guðmundsson
    Gnýr Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 11
    • Svör: 42

    Nú styttist í haustlitaferð Litlunefndar í Þórsmörk. Opnað verður fyrir skráningu hér á vefnum um helgina og hvetjum við alla áhugasama til að skrá sig. Bestu kveðjur og sjáumst hress.





    17.09.2011 at 23:33 #736697
    Profile photo of Gnýr Guðmundsson
    Gnýr Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 11
    • Svör: 42

    Nú er búið að opna fyrir skráningu í haustlitaferðina. Hægt verður að skrá sig fram á miðvikudag þann 21. og því hvetjum við alla áhugasama til að skrá sig sem fyrst.
    Skráningarsíðuna má nálgast hér: [url:2n4pn7eb]http://f4x4.is/index.php?option=com_seminar&Itemid=246[/url:2n4pn7eb]





    19.09.2011 at 12:02 #736699
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Minnum á að skráning er í fullum gangi. Þegar þetta er skrifað hafa 23 bílar skráð þátttöku auk farar- og hópstjóra.

    Á miðvikudagskvöldið er kynningarfundur vegna ferðarinnar og stutt námskeið í jeppamennsku fyrir byrjendur, nánar um það síðar.

    Ég minni á eldsneytisafslátt sem Skeljungur býður okkur vegna þessarar ferðar, [url=http://f4x4.is/index.php?p=165486&jfile=viewtopic.php&option=com_jfusion&Itemid=228#p165486:26adnlsw]sjá umfjöllun um það hér.[/url:26adnlsw]

    [url=http://f4x4.is/index.php?option=com_seminar&Itemid=246:26adnlsw]Skráning í ferðina fer fram hér[/url:26adnlsw]

    kv. Óli





    20.09.2011 at 08:31 #736701
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Nú eru aðeins 2 dagar eftir í skráningu, en við munum loka fyrir skráningar annað kvöld, miðvikudag, en þá verður jafnframt kynningarfundur um ferðina.

    [url=http://f4x4.is/index.php?option=com_seminar&Itemid=246:3dsktw8s]Skráning í ferðina fer fram hér[/url:3dsktw8s]

    kv. Óli





    21.09.2011 at 08:43 #736703
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Í dag er lokadagur skráningar. Hægt verður að skrá sig á netinu fram á kvöldið í kvöld, en einnig er hægt að koma og skrá sig á kynningarkvöldinu sem haldið verður kl. 20:30 í félagsheimili Ferðaklúbbsins 4×4 að Eirhöfða 11. [url=http://f4x4.is/g2/main.php?g2_view=core.DownloadItem&g2_itemId=292239&g2_serialNumber=2:3tq5knis]sjá mynd[/url:3tq5knis]

    [url=http://f4x4.is/index.php?option=com_seminar&Itemid=246:3tq5knis]Netskráningin er hér[/url:3tq5knis]

    Litlanefndin hvetur alla skráða þátttakendur til að koma á kynningarkvöldið, hitta samferðafólkið og fá upplýsingar um ferðina.

    kv. Óli





    21.09.2011 at 10:53 #736705
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Kynningarkvöldið er væntanlega í kvöld, miðvikudaginn 21.9?

    Er komin einhver tala á þá sem eru skráðir í ferðina?

    kkv, Samúel Úlfr





    21.09.2011 at 11:25 #736707
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Úps ….

    Kynningarkvöldið er í kvöld, miðvikudag 21. september 2011, kl. 20:30.

    Hægt er að sjá fjöldann og hverjir eru skráðir á [url=http://f4x4.is/index.php?option=com_seminar&Itemid=246:860qkasc]skráningarsíðunni, hér.[/url:860qkasc]

    kv. Óli





    22.09.2011 at 09:01 #736709
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Í gærkvöld var haldinn góður kynningarfundur vegna Litlunefndarferðarinnar um helgina komandi. Þetta stefnir í frábæra ferð og við treystum því að Þórsmörkin taki á móti okkur í sínum fallegu haustlitum.

    Í dag munum við senda, í tölvupósti, upplýsingar um ferðatilhögun til allra sem hafa skráð sig í ferðina. Þar koma fram ýmis hagnýt atriði varðandi þessa ferð, ferðalög almennt um óbyggðir, ferðatilhögunina auk sértilboða til þátttakenda í ferðinni.

    Ég minni á að Skeljungur er með sértilboð á eldsneyti (- 10 kr) á Vesturlandsveginum til félagsmanna í F4x4 á laugardaginn kemur, vegna þessarar ferðar.

    [url=http://f4x4.is/index.php?p=165565&jfile=viewtopic.php&option=com_jfusion&Itemid=228#p165565:1b6vwni0]Nánari upplýsingar um eldsneytisafsláttinn á þessum þræði[/url:1b6vwni0].

    kv. Óli





    22.09.2011 at 09:23 #736711
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Hvenær tekur afslátturinn gildi ?? er það á miðnætti á Föstudag eða um það leiti sem ferðin byrjar ??
    Kv Jóhannes.. R-234





    22.09.2011 at 10:55 #736713
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Við verðum á svæðinu ca. kl. 8:00 – 9:00 og ég reikna með að afslátturinn verði kominn í gagnið þá. Veit ekki hvort það er eitthvað fyrr, eða hversu langt fram á kvöld.

    Ég hvet félagsmenn til að nýta sér þennan afslátt, en jafnframt að fjölmenna ekki á Stöðina við Vesturlandsveg fyrr en Litlanefndin er lögð af stað í sína ferð :-)

    kv. Óli





  • Author
    Replies
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.