This topic contains 41 replies, has 1 voice, and was last updated by Davíð Karl Davíðsson 17 years, 10 months ago.
-
CreatorTopic
-
23.01.2007 at 20:08 #199474
Sælir félagar, er ekki komið neitt plan á litlunefnarferðina 27 janúar?
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
23.01.2007 at 21:03 #576794
Klakinn hann hlýtur að liggja á þessum upplýsingum er það ekki???
væri gaman að fara að fá planið svo ég geti dregið tengdapabba í túr:D
Kv Dabbi R-2856
23.01.2007 at 21:09 #576796Það væri nefnilega gott að fá planið sem fyrst svo að maður geti gert viðeigandi ráðstafanir
23.01.2007 at 21:13 #576798hvað þýðir orðið Knulla
23.01.2007 at 21:17 #576800knulli er afbökun á nafninu mínu, og já vinir mínir kalla mig knulla. en sænska orðið knulla er að rí..
23.01.2007 at 21:29 #576802
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
hann sagði rí.. hehe en já væri gaman að vita meira um þessa ferð .
Kv Hjalti sem er farið að dauðlanga í ferð
23.01.2007 at 21:31 #576804Sagan segir að Tryggvi R. JónAsson ætlaði að mæta en hafi týnst á fjöllum um síðustu helgi.
23.01.2007 at 21:39 #576806Um að gera að hafa ferðirnar áhugaverðar, gerum bara leit að eftirlegukindunum í leiðinni.
23.01.2007 at 22:31 #576808Já komið með upplýsingar skrattakollar
24.01.2007 at 03:46 #576810bara uppfæra svo við förum vonandi að fara að fá svör:D
dabbi
24.01.2007 at 12:19 #576812Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag: Suðvestan 5-10 m/s, rigning eða slydda og hiti 1 til 5 stig vestantil. Hægari norðvestlæg eða breytileg átt og yfirleitt þurrt austantil og hiti kringum frostmark. Á laugardag: Stíf sunnan og suðvestan átt og úrkomusamt, einkum sunnan- og vestanlands. Hiti yfirleitt 3 til 7 stig. Á sunnudag: Hæg norðvestlæg eða breytileg átt og hiti nálægt frostmarki en snýst síðan í vaxandi SA átt SV til. Sunnan strekkingur, hlýnandi og rigning um mest allt land um kvöldið. Spá gerð 24.01.2007 kl. 08:45Verður nokkuð nema krapi og leiðindi? Vaðandi hiti og rigning:(
24.01.2007 at 13:52 #576814Þetta lýtur allaveganna ekki vel út..
24.01.2007 at 14:06 #576816Núna er 5 stiga frost við Setrið, fyrir utan smá tíma síðasliðna nótt, þá hefur hitinn ekki farið upp fyrir frostmarkið þar í margar vikur. Það lítur út fyrir að hiti haldist sviðaður næstu daga, því er alls ekki víst að krapi verði til trafala, til fjalla, þó það hláni á láglendi.
-Einar
24.01.2007 at 16:54 #576818Okkur vantar upplýsingar um færðina á línuveginum og nágreni ef eitthver er á ferðinni endilega látið okkur vita.
Klakinn
24.01.2007 at 18:31 #576820Afhverju er verið að ráðgera nánast sömu ferð og farið var í haust? Sé fyrir mér fleiri möguleika eins og t.d. Langjökul.
24.01.2007 at 18:55 #576822Barbara! Mér hefur dottið í hug hvort ekki væri hægt að sleppa því og fara bara yfir lækinn – Reykjanes er uppfullt af áhugaverðum slóðum … spurning um hvort litladeildin skelli sér ekki þangað ? Sjá t.d. hjá vini þínum honum [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/5091:24lv7x47]Tryggva[/url:24lv7x47]
Siggi
p.s. spurning hvort við séum gjaldgeng … m.v. tal um dekkjastærðir eftir síðustu ferð 😮
24.01.2007 at 19:46 #576824Annars er Reykjanesið orðið snjólaust, en það eru margar skemmtilegar leiðir aðrar mögulegar.
24.01.2007 at 20:02 #576826Vel á tjörninni fyrir laugardag,súld,úði eða grenjandi rigning 😉 gott að byrja þar á smá morgun snarli með öndunum :-)..
Síðan er hægt að renna útá granda og fara í reipitog,eða bara að spila.Góða skemmtun.
Annars hafa Laugi og Kjartan örugglega gott plan fyrir daginn.
25.01.2007 at 12:05 #576828Þetta er úr þræðinum sem var stofnaður um ferðina en týndist.
"Á laugardaginn verður farin dagsferð á vegum Litlunefndar. Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um leiðarval en ætlunin er að fara eitthvað út frá Þingvöllum. Nokkrar hugmyndir eru uppi s.s. Lyngdalsheiðin, Línuvegur, Skjaldbreið og Kaldidalur.
Fararstjóri ferðarinnar verður Kjartan ásamt Lauga.
Mæting er við Select Vesturlandsvegi Kl. 8:30 og brottför kl. 9:00
Þeir sem ekki eru með talstöðvar í bílum sínum er bent á að hægt er að fá vhf handstöðvar leigðar hjá klúbbinum og er þeim bent á að senda email á laugi@simnet.is og óska eftir stöðvum þar.
Við minnum á að nefndarmenn verða á spjallinu á litludeildarsíðunni http://www.litladeildin.net á föstudagskvöldið og svara þar öllum spurningum varðandi ferðina.
Fyrir hönd Litlunefndar
Hrafnhildur"
25.01.2007 at 12:58 #576830Fréttir herma (og harma) að allur snjór sé flúinn á NA-hornið og muni hafa vetursetu þar framvegis.
Ólýginn sagði að bílafloti 4×4 væri í tómu rugli, ýmist týndur á fjöllum, bilaður á fjöllum, bilaður í byggð, týndur í byggð eða stæði hálfbreyttur á bílastæðum út um allan bæ.
Kv
Tryggvi sem er farinn norður á morgun!PS: Barb… hvernig er heilsan hjá Mikka?
25.01.2007 at 13:09 #576832Ég fæ líklega lagaðan lekann í kvöld. Annars er það týpískt með þessa norðanmenn, hraðlygnir. Það er nóg af snjó hér sunnan heiða, bara fara aðeins frá ströndinni……
Hvað er þetta annars? Erum við ekki vinir Tryggvi?
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.