FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Lítil dekk!

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Lítil dekk!

This topic contains 13 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 20 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 16.12.2004 at 01:00 #195060
    Profile photo of
    Anonymous

    Sæl veriði.

    Í tilefni þess að nú er mikið rætt um dekk og dekkjakaup á síðunni þessa dagana langar mig að leggja fram spurningu.
    Hvaða 31″-32″ dekk eru hentugust fyrir okkur sem erum á litlum og léttum bílum? Þá er ég að velta fyrir mér hvaða dekk bælast best undir bíl sem er 1200-1600 kg. (Sbr. Lada Sport og flestar Súkkur)? Persónulega líst mér vel á Goodyear Wrangler MT/R, þau eru frekar gróf og með mynstur aðeins niður á belginn. Hefur einhver reynslu af þessum dekkjum undir léttari bílum?

    Kveðja
    Lada

  • Creator
    Topic
Viewing 13 replies - 1 through 13 (of 13 total)
  • Author
    Replies
  • 16.12.2004 at 13:24 #511168
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Goodyear Wrangler eru góð dekk og það að mynstrið nái niður á hliðarnar hefur mér ekki fundist galli á dekkjum sem til stendur að hleypa úr. Ég hef reyndar ekki ekið á þessari typu sjálfur, en hef heyrt menn tala um að maður þurfi að taka svolítið varlega á þeim í snjófæri, því þeim hætti til að spóla sig niður ef maður er ekki lipur á bensínfætinum. Annars er það þannig með dekk, að maður má ekki eingöngu horfa á verðið, gæðin hafa það mikið að segja að það þarf að horfa á það líka. – En horfðu t.d. á Sidewinder, þau hafa reynst mér ákaflega vel. BFG eru hafa mjög gott orð á sér líka. Annars er þetta ákaflega persónubundið hvað mönnum líkar og líkar ekki.





    16.12.2004 at 13:36 #511170
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Passaðu bara að sá sem selur þér dekkin láti þig hafa gerð sem er ætluð undir léttan bíl. Kunningi minn lenti í því einu sinni að kaupa sér 35" undir gamla súkku. Svo þegar farið var að hleypa úr þá kom í ljós að þau voru allt of stíf, kom á daginn að þau voru fyrir miklu þyngri bíl. Fáðu þetta á hreint áður en nokkuð er sett undir, allavega áður en þú borgar :)

    -haffi





    16.12.2004 at 14:06 #511172
    Profile photo of Rangur
    Rangur
    Participant
    • Umræður: 3
    • Svör: 376

    Er með Hankook Radial T24 (31") undir hjá mér og þau hafa reynst vel, bælast mjög vel og hafa enst merkilega vel. Þau eru hins vega hundgömul og ég veit ekki hvort þau fást enn í dag. Miðað við það sem ég hef séð útundan mér virðist mér sem Goodyear Wrangler MT/R bælist ekki vel en veit svo sem ekkert alveg um það.

    kv

    ÞÞ





    16.12.2004 at 14:54 #511174
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Ég var með 31" Summit dekk undir bílnum áður en hann fór á stærri gerðina,
    Þau bælast vel og eru með góðu gripi,en fyrir summit dekkin var ég með Wild contry dekk en mér fannst summitinn koma betur út í 31"stærðinni í snjó og hálku.
    Wild conrty dekkin eru að mínu mati stífari í 31" stærðinni
    og mér fannst ekki gott að keyra á þeim eftir að það var búið að hleypa úr þeim.

    Kveðja
    JÞJ





    16.12.2004 at 15:03 #511176
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Getur ákveðin tegund af dekki verið framleidd í tveimur eða jafnvel fleiri útfærslum fyrir misþunga bíla?
    Ég er að spá í að kaupa ný dekk og hefur sýnst að Good Year sé svona með þeim dýrari í þessum stærðarflokki. Er BFG All-Terrain kannski bara málið? Þau eru fínmynstraðri, svo maður spólar sig kannski síður niður og svo heyrist sennilega minna í þeim á bikinu.

    Kveðja
    Lada





    16.12.2004 at 15:10 #511178
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    En hef heyrt að þau hreinsi sig ekki nógu vel í snjó





    16.12.2004 at 15:16 #511180
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég hef akkúrat verið að spá í því sama, ég er með Blazer sem er 1400 kg, og ætla að fara að versla mér dekk, ætli ég fái mér ekki 32" en ekki 31", og þá þarf dekkið auðvitað að belgast vel út í snjó allavegna, þetta er svona bráðabyrgðar dekk þar til hann fer inní skúr til stærri framkvæmda





    16.12.2004 at 18:18 #511182
    Profile photo of Arnór Magnússon
    Arnór Magnússon
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 640

    Sælir.

    Ég er með 35" GoodYear Wrangler undir 1800 kg Cherokee hjá mér. Ekki alveg sambærilegt en gefur kanski einhverja hugmynd.

    Þau eru vissulega svolítið stíf sérstaklega ný, en ég er að ná fínu floti á þeim.
    Ég hef oft hleypt úr alveg niður í ca 1 pund og aðeins neðar og enn ekki affelgað þrátt fyrir hamagang.

    Þetta með að þau séu gróf finnst mér bara vera kostur, en reynir meira á ökumanninn. Maður bara passar sig á að láta hann ekki spóla meira en nauðsynlegt er og þá fer hann ekki niður.
    Vissulega eru færi þar sem maður hreinlega þarf að spóla aðeins til að komast eitthvað áfram, ef það er hörð skel og mjúkt undir. Þar getur þetta verið pirrandi.

    Svo í krapa og álíka snjó þá mokar hann sig skemmtilega áfram á góðri inngjöf :)

    Þau reynast allavega vel hjá mér.

    Kveðja
    Izeman





    16.12.2004 at 18:48 #511184
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég er með 30" Hancook Dynamic MT undir lödunni minni og agalega sáttur…Mynd í albúmi





    16.12.2004 at 19:19 #511186
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    míkróskorin og negld….hræódýr hjá Barðanum





    22.12.2004 at 00:49 #511188
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Jæja, þá er það ákveðið.

    Ég hef verið að bera saman BFG A/T og GoodYear MT/R, þar sem þau virtust vera sambærilegust af þeim dekkjum sem ég kynnti mér eftir ábendingar héðan. Ég hef einnig verið að lesa álit frá fólki sem hefur reynslu af þessum dekkjum og var margt sem kom mér á óvart í þeim lestri.

    Svo virðist vera að BFG sé mjög hörð og henti kannski frekar undir þunga bíla og jafnvel bíla sem eru mikið í kerrudrætti og öðru slíku. Einn sem skrifaði álit var með Ford F-350 og sem hann notaði með "5th-wheel-towing" og hann talaði um hvað hann væri ánægður með hversu lítið dekkin bældust undan öllum þessum þunga.

    Good Year virðist vera betri Off-road dekk en endast ekki eins lengi og önnur dekk ef aðallega er ekið á þjóðvegum. Mikið er talað um hversu góð þessi dekk eru í leðju, snjó, ís og flestum utanvega akstri en of hávær á malbiki.

    Það sem kom mér hvað mest á óvart var að sjá að menn eru að keyra allt að 180.þús km á einum gangi af dekkjum. Hvað eru menn almennt að keyra sín dekk lengi hér heima??

    Eftir þetta hef ég ákveðið að velja GY-MT/R og krosslegg svo bara fingur.

    Kveðja
    Lada





    23.12.2004 at 18:37 #511190
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Helsti gallinn við good year dekkin er hvað þau eru dýr,
    er ekki alveg viss með verðið á þinni stærð en 35" er á 25000 kall sem er 5000 krónu hækkun frá því í haust.
    BFG dekkin eru ódýrari og þeir menn sem ég hef talað við eru mjög ánægðir með þau.
    Sjálfur sé ég eftir því að hafa ekki fengið mér BFG í sumar heldur fékk ég mér 33" general og dauðsé eftir því





    24.12.2004 at 00:43 #511192
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll Stefán.

    Það var nú akkúrat verðið á GY sem mér leist ekki á í upphafi, en nú stendur mér til boða að kaupa ný dekk á mjög góðu verði. Það sem ég skil ekki er afhverju þessi dekk eru svona dýr?? Báðar þessar tegundir eru jú framleiddar í USA, svo þetta ætti ekki að vera svona dýrt ! ! !

    Kveðja
    Lada

    L uxury
    A uto
    D on’t
    A rgue





  • Author
    Replies
Viewing 13 replies - 1 through 13 (of 13 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.