Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › lengd bíla
This topic contains 12 replies, has 1 voice, and was last updated by Baldvin 18 years, 5 months ago.
-
CreatorTopic
-
21.08.2006 at 17:42 #198412
hef lesið það oft á vefnum að það sé betra að vera á löngum jeppa en stuttum, af hverju?
kv gfs
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
21.08.2006 at 17:43 #558322
þeas meiri drifgeta á þessu löngu
21.08.2006 at 18:01 #558324Ágæt lesning hjá Arctic Trucks: [url=http://arctictrucks.is/?PageID=163:274myzs4]færsla á afturhásingu[/url:274myzs4] útskýrir ýmislegt um lengd ásamt öðru undir [url=http://arctictrucks.is/?PageID=5:274myzs4]Fræðsluflokknum[/url:274myzs4] hjá þeim.
21.08.2006 at 18:03 #558326allt er þegar 2 er
21.08.2006 at 18:05 #558328nokkuð oft sem stuttir bílar sem drífa alveg heilan helling
koma að brekku og byrja að skoppa. Stundum gaman að sjá það. meðan bílar með lengra á milli hjóla lalla þetta bara.
en stuttur langur allt hefur sína kosti og galla.
líka getur stundum verið vont að fara niður af bröttum bökkum eða ofan í ár á mjög stuttum bílum ogsfrv….copy frá tryggva
Færsla á afturhásingu hefur áhrif á hreyfingar bílsins þannig að svokallað stamp minnkar, hreyfingar verða jafnari og jeppinn láréttari þegar hann fjaðrar. Það er kallað stamp þegar jeppi steypir á stömpum við akstur í snjó. Færsla afturhásingar hefur einnig áhrif til batnaðar þegar ekið er upp brekkur því þegar þyngd jeppans færist á afturhásingu við akstur upp brekku hjálpar færslan við að halda gripi á framhjólunum. Ef nefna ætti galla við færslu afturhásingar væri það einna helst lítillega aukinn beygjuradíus. Þá finnst sumum sem útlit jeppanna versni við færsluna en það er að sjálfsögðu smekksatriði og tengist einnig hönnun brettakanta sem eiga að hylja það rými sem myndast fyrir framan hjólin. Rétt er að benda á að færsla afturhásingar er yfirleitt kostnaðarsöm aðgerð en þeir sem vilja ná því besta út úr jeppanum fara út í þessa aðgerð.
21.08.2006 at 18:40 #558330snilld takk
22.08.2006 at 09:45 #558332Svona af því að þegar ég fletti þessu upp þá sá ég nokkrar mælingar sem ég á í leiðinni.
Ég viktaði bílinn minn nokkuð nánast tóman (þó með 130L af olíu, engan í bílnum, léttan farangur) og svo fullan af útilegudóti, fullan af olíu, mat og með tvo í bílnum. Þau 370kg sem bættust við bílinn við þetta fóru 73% að aftan og 27% að framan og við það fór "jafnvægispunkturinn" aftur og hann varð 70kg þyngri að aftan (var áður 100kg þyngri að framan).
Ég er að spá í að nota þessar tölur til að réttlæta fyrir sjálfum mér að fara í hásingarfærslu hjá mér… gæti reynt að þyngja hann að framan t.d. með spili en þau eru ekki nema hvað 50kg? … svo eitthvað þarf að gera 😉
22.08.2006 at 10:23 #558334Svo er alltaf spurningin hver sé hin besta þyngdardreifing. Það er ekkert sem segir að 50/50 sé endilega best.
Upp á drifgetu í okkar aðstæðum tel ég betra að bílar séu þyngri að framan en aftan, eitthvað á bilinu 60/40 til svona 53/47…..Í dæmigerðum helgartúr vegur bíllinn hjá mér þetta 1300kg/1000kg, og sú skipting alveg rótvirkar.
Skemmir ekki fyrir að drifgetan minkar nánast ekkert, hvað svo sem maður setur í skottiðBTW, hef keyrt 80-krúsera á 38" á fjöllum, bæði með lenginu og án og munurinn er mjög mikill. Sá lengdi kraflaði sig mun betur áfram.
kv
Rúnar.
22.08.2006 at 11:07 #55833650 / 50 er alveg örugglega ekki málið og það má heldur ekki reyna um of á framdrifið veika (hóst hóst…). Ég hefði sett markið á að ná 60/40 í besta falli. Hversu langt á að færa ræðst örugglega bara af hentugleik en ætli 15-17cm verði ekki nærri lagi?
Ég á kanta fyrir 44" sem eru með "gamla laginu" (fremri hluti afturkantanna er alveg laus) eins og hjá Krílinu en ekki eins og hjá TNT á BP553. Kannski Gústi uppljóstri hversu langt hann færði sína?
22.08.2006 at 18:34 #558338..að því gert en mér finnst þessi færsla vera sú lang fallegasta sem ég hef séð á 80 crúser.
old.f4x4.is/new/photoalbum/?file=oldsite/458
22.08.2006 at 18:58 #558340Hann samsvarar sér gríðarlega vel þessi enda að norðan 😉 15cm aftur og 4" upp. Spurning hversu langt maður sleppur með 3.5" lengri gorma eins og minn er í dag.
22.08.2006 at 22:01 #558342Getum við þá ekki sagt að pick-upparnir hafi þá mestu drifgetuna, þeir hljóta að vera alltaf þyngri að framan, þeas framhjólin ryðja fyrir afturhjólunum. nema hann ség náttla hlaðin á pallinn.
eða hvað
kv gfs
22.08.2006 at 23:05 #558344Pick Up eða ekki? Segir sig að sjálfsögðu sjálft að léttari bíll drífur meira en þyngri. Japönsku pikkarnir eru yfirleitt aðeins léttari en jeppi og með jafn langt eða lengra á milli hjóla sem gerir þá nokkuð duglega í snjó.
Fyrir mér er þetta síðan að sjálfsögðu líka spurning um þægindi og fer t.d. afar illa um mig í minni japönskum pikkurum. En ertu að hugsa um 38" eða 44" eða jafnvel 46" bíl? Það skiptir að sjálfsögðu miklu máli varðandi aðrar ráðleggingar.Kv. Baddi
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.