Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Leitarljós
This topic contains 17 replies, has 1 voice, and was last updated by Ísak Fannar Sigurðsson 18 years, 1 month ago.
-
CreatorTopic
-
05.12.2006 at 14:40 #199096
AnonymousHvar fær maður IPF leitarjós (hringlótt), nenni ekki að keyra út um allan bæ að leita að þessu?
Kv Ísak -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
05.12.2006 at 17:00 #570380
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ég myndi bara ekkert vera að versla IPF leitarljós, bölvað drasl, farðu frekar í Vélasöluna óg fjárfestu í tveggja geisla spot/flood Xenon leitarljósi frá Jabsco. Hef notast við IPF ljósin og þau koma ekki vel út !
05.12.2006 at 18:40 #570382En hinsvegar færðu IPF ljósin i bílabúð benna
05.12.2006 at 23:32 #570384Sælir félagar.
Þrátt fyrir að vera í félagskap sem merkir sína bíla PIAA, þá verð ég að viðurkenna að þetta IPF leitarljós er bara helvíti gott, mitt er búið að vera á mínum jeppum í ca 8 ár og í fullkomnu standi. Peran er meira að segja sú sama…
Kv
Palli
05.12.2006 at 23:46 #570386Ég er sammála Palla með það að þessi ljós hafa reynst mjög vel. Mótorinn er góður í þeim og það er lítið um bilanir. verðið er líka mjög gott á þeim….getur jafnvel fengið tvö fyrir sama verð og þessi risa ljós sem eru að bila.
kv,
HG
A-111
05.12.2006 at 23:47 #570388Ég skellti mér á IPF hjá Benna og er bara nokkuð sáttur held ég. Þakka samt ábendinganar.
–
kv Ísak Fannar
05.12.2006 at 23:54 #570390Hvað kostaði ljósið
kv,,, MHN
06.12.2006 at 00:01 #570392Ég fékk það 26 þús.þetta er ekki þráðlaus fjarstýring. Er bara með stýringu tengda inní bíl með gormasnúru. Fanst of mikið að borga um 70 þús fyrir þráðlausa stýringu.
–
Kv Ísak Fannar
06.12.2006 at 00:38 #570394Ef maður vill hafa það handstírt þá er hér góð lausn
og maður getur sett hvaða ljós sem maður vill og kostar ekki
stóran pening[img:1o4bqks6]http://www.tufflights.com/photos/L006.jpg[/img:1o4bqks6]
Kv,,, MHN
06.12.2006 at 00:42 #570396IPF eru fín ljós fyrir þennan pening. Mæli með þeim.
En ég sé ekki hvað er gott við þessa lausn hans mhn. En það er nú bara ég…..
06.12.2006 at 01:12 #570398þessi festing kostar um 10,ooo kr og er segull
ef þú átt auga ljós sem 100 – 130 v tildæmis
þá er hægt festa hér á .
kv,,, MHN
06.12.2006 at 12:13 #570400Maggi alltaf með fínar hugmyndir.
en ég er að hugsa um að ná mér í einkaleyfi á þessu : )
[img:3htptcoc]http://www.mmedia.is/gjjarn/L007.jpg[/img:3htptcoc]
06.12.2006 at 12:15 #570402er þetta ekki sami maðurinn ?
[img:27lb6uh0]http://www.hlad.is/galleries/mynd286.jpg[/img:27lb6uh0]
Slæm hugmynd… mér finnst ekki heillandi að vera á stuttermabol með opinn gluggann í frosti og hríð 😉
06.12.2006 at 12:24 #570404Sælir.
Mhn . Þetta eru ekki seglar sem halda ljósinu heldur sogblöðkur og ekki alveg hundrað prósent öruggt hald það. En ljósið er gott og með stillanlegum geisla frá þröngum punkti út í mjög breiðan geisla. En mikið djö getur verið kalt að vera með puttana á úti. Ljósið tekur mikinn vind á sig vegna þess hversu stórt það er eða 240 mm þvermál.
Fékk mér ljós GOLIGHT í fyrra vetur og eða hittifyrra sem er með þráðlausri fjarstýringu og er það alveg þræl magna mikið notað í miklum frostum og eða rigningum það er bæði með segli og sogblöðku sem haldara. Eini gallin við þetta ljós er að það er ekki með stillanlegum geisla heldur punkt. Missti það innan úr bíl og niður á malbik eitt sinn og var það helvítis högg en ljósið í góðu lagi á eftir.
Keypti þetta ljós á tilboði hjá Bílanaust og átti það að kosta 26.000 þá en fékk það þá á 18 eða 19 þús. Held að það kosti núna rétt tæp 40 þús. Ekkert smá hækkun það á einu og eða tveimur árum. En lenti í því undir Hafnafjalli í einni hviðunni 35 – 40 metrum að segulinn missti hald en þá var það toppgrindin sem hélt við svo að það fyki ekki burt. En þess má líka geta að ég var á keyrslu og hviður upp í 38 m/s. Annars frábært ljós en hef ekki viðmiðun við önnur ljós þannig að ,,,,,,,,,
06.12.2006 at 12:53 #570406x
06.12.2006 at 12:54 #570408Hæ aftur.
Bara svona innskot, þá hef ég verið að staðsetja leitarljósið mitt á topp hægra megin. Ástæðan er einföld, þetta er sú hlið sem ég á erfiðara með að stinga út handljósinu. Svo nota ég þetta leitarljós mikið í miklum skafrenning, læt hann lýsa upp kannt og stikur og er þannig ekki með upplýsan skafrenninginn beint í augum mínum (og er svo bara með stöðuljósin á).
P
06.12.2006 at 13:02 #570410Ef menn vilja sjá lengra en aðrir þá er hér ljósið til þess
[img:s5s8jh0u]https://www.magnalight.com/images/product/medium/90.jpg[/img:s5s8jh0u]
35 watt Xenon D2S bulb projects 3200 lumens output – 20 million candlepower – 3495 lux at 25 feet
Beam pattern extends 1900 feet
Distance Width
0 ft 0 ft
500 ft 60 ft
1000 ft 130 ft
1500 ft 60 ft
1900 ft 10 ft
12/24 Volt – 3200 Lumen HID Spotlight with 200 lb grip magnetickv,,,MHN
06.12.2006 at 13:08 #570412Hvar hafa menn aðalega verið að staðsetja þessi ljós. Ég setti mitt á toppinn vinstramegin fyrir ofan bílstjórasætið. Er samt alveg opinn fyrir því að færa það ef menn hafa eithvað út á þetta að setja og eru með betri lausnir??
–
Kv Ísak Fannar
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.