This topic contains 2 replies, has 1 voice, and was last updated by Hilmar Örn Smárason 13 years, 2 months ago.
-
Topic
-
Vantar hjálp við að sjúkdómsgreina bílinn minn sem er Suzuki Grand Vitara á 35 tommu dekkjum. Um daginn kom nokkuð skyndilega í hann leiðinda skjálfti sem erfiðlega gengur að útrýma. Hann lýsir sér þannig að bíllinn víbrar og skelfur líkt og ekið sé á þvottabretti þó ekið sé á rennisléttu malbiki. Þó skjálftinn sé nokkuð stöðugur kemur hann í óreglulegum bylgjum eða gusum. Þetta er verst á milli 60 og 80 km hraða en finnst bæði neðar og ofar. Skjálftinn er alveg hljóðlaus, þessu fylgir enginn hvinur, högg eða urg. Bíllinn bara hristist. Þetta virðist koma frá afturhásingu þó erfitt sé að átta sig á því. Skjálftinn leiðir lítið sem ekkert upp í stýrið né gírstangir. Handvirku lokurnar að framan eru ekki á þannig að framdrifsdótið og skaftið að framan snýst ekki með.
Það sem búið er að prófa er:
Önnur dekk skrúfuð undir…. breytti engu.
Afturskaftið tekið undan og skipt um krossa. Annar krossinn var með smá slagi en hinn var mjög stífur á annan veginn. Bíllinn lagaðist nokkuð við þetta en er ekki batnað.
Skipt um þreyttan gírkassapúða… breytti engu.
Þriðji dekkjagangurinn reyndur… breytti engu.
Skipt um neðri stífur að aftan þar sem fóðringar voru þreytulegar. Breytti engu varðandi skjálftann en bíllinn samt mun stöðugri á malbikinu og steinhættur að elta hjólför.Demparar að aftan virðast vera þéttir og góðir, framdemparar eru nýir síðan fyrr í sumar og þá var bíllinn líka hjólastilltur.
Allt virðist eðlilegt í afturhásingu, ekkert slag eða neitt í hjólalegum.
Skjálftinn breytist ekkert þó aðeins sé stigið á bremsur.
Skjálftinn er eins hvort sem er í átaki, upp brekkur(kambana) eða þegar hægt er á eða farið niður brekkur.Einhverjar málefnalegar hugmyndir vel þegnar….
Jói.
You must be logged in to reply to this topic.