Forsíða › Forums › Spjallið › GPS og leiðir › Leggjabrjótur GPS
This topic contains 15 replies, has 1 voice, and was last updated by Jón Snæbjörnsson 21 years, 4 months ago.
-
CreatorTopic
-
10.06.2004 at 09:07 #194451
AnonymousGóðan daginn,
á ekki einhver GPS track af gönguleiðinni um Leggjabrjót ? Var að leita að þessu en fann hvergi.
Kveðja,
nutty -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
10.06.2004 at 09:17 #503778
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ertu þá að meina leiðina milli Hvalfjarðarbotns og Þingvalla?
ÓE
10.06.2004 at 10:50 #503780
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Já ég er að meina gönguleiðina milli Þingvalla og Botnsdals eða Brynjudals. Er að fara að ganga þarna um helgina og það væri gaman að hafa punkta til að miða við.
10.06.2004 at 11:29 #503782Leiðin er allveg greinileg, hel að það sé ekki þörf á gps punktum nema þá til gamans. Ég mæli með að labba þessa leið frá Þingvöllum. kv Lella
10.06.2004 at 13:01 #503784
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ég á að eiga gamla ferilskrá sem fylgir slóðanum yfir í Botnsdal, ég skal setja hann inná [url=http://steini.that.is/:1j5d6t5i]GPS bankann[/url:1j5d6t5i] þegar og ef ég finn skránna, ekki verra að vera með einhverja punkta ef menn lenda í þoku.
Annars var slóðin frá Þingvöllum lagaður um það leiti þegar Alpaklúbburinn byggði skálann í Botnsúlum fyrir einhverjum árum (sjálfsagt að verða tuttugu) og því greinilegur til að byrja með, slóðin liggur á kafla með Öxaránni þar sem hún rennur undir Búrfellinu. Þar sem slóðin fer að verða ógreinileg ætti að sjást ofaní Brynjudal og Botnsdal í góðu skyggni. Slóðin ætti síðan að sjást aftur á Hríshálsinum neðan við Botnssúlur.
ÓE
10.06.2004 at 18:43 #503786
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Hjá Ferðafélaginu er hægt að fá ágætis göngukort (loftmynd) af þessari leið og á það eru merktir GPS punktar. Svo kostar það bara alls ekki neitt hjá þeim …
mk,
Gulli
11.06.2004 at 20:40 #503788‘Gönguleið’ ???
Er þetta ekki gömul hestaleið, eða þjóðleið.
Sem er opinn fleirum en gangandi vegfarendum !?!?Hún er að mig minnir merkt sem vegur á Atlasblöðunum!
Slóðakveðja
Player1
11.06.2004 at 21:08 #503790Þetta hefur verið farið á jeppum og trúlega verið rutt á sínum tíma af tækjum. Núna er hlið á veginum í Botnsdal svo það er verra að fara þarna um bílandi. Trúlega er ekki hægt að banna jeppamönnum að fara þessa leið, en það yrði jeppasportinu ekki til framdráttar ef jeppar færu að vera daglegir gestir á Leggjabrjót.
Hlynur
13.06.2004 at 15:05 #503792Er hægt að fara þessa leið á reiðhjóli?
Kv. Aðalsteinn
14.06.2004 at 10:32 #503794Sæll Aðalsteinn
Ekki vildi ég fara gönguleiðina á reiðhjóli. Það getur þó verið að gamall jeppaslóði liggji annars staðar en gönguleiðin og hægt sé að hjóla hann að hluta. Það er þó ljóst að alltaf þarf að bera/teyma hjólið hluta leiðarinnar.
Hef gruna um að hægt verða að bæta heitinu "gjarðabeglir" aftan við "Leggjarbrjótur" ef farið er þarna yfir á reiðhjóli.
Kv
Arnar
14.06.2004 at 11:30 #503796
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Það er nú mesta furða hvað hægt er að fara á góðu hjóli. Fyrir nokkrum árum fór ég Laugaveginn (Landm.laugar-Þórsmörk) á reiðhjóli og það gekk ágætlega. Að vísu rétt að hjólið var nokkuð víða á öxlinni. Það væri gaman að prófa þessa leið á reiðhjólinu.
Kv – Skúli
14.06.2004 at 11:42 #503798er kanski komin grunnur að stofnun nýrrar deildar innan klúbbsins fjalla-hjóla-deild…ekki vitlaust kanski með fullri virðingu fyrir öllum….
er ekki flott að hafa hjól á toppnum innan um öll loftnetin hmmm

kv
Jon
14.06.2004 at 13:57 #503800Ég væri alveg til í að prófa að fara þessa leið á hjóli 😉
-Einar
14.06.2004 at 14:22 #503802
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Sælir,
það er ekkert mál að hjóla þessa leið. Mæli með því að fara frá Þingvöllum upp hjá Svartagili. Slóðin er vel fær alla leið vestur fyrir Botnsúlur. Þá tekur við brekka dauðans niður í Botnsdal. Þar hverfur slóðin að hluta á smá kafla. Sá hluti leiðarinnar er grýtur og ekki vel fallinn til hjólreiða. En þetta er niður í móti og létt verk að teyma hjólið þennan hluta. Slóðin verður aftur fær þegar komið er efst í Botnsdal.
kv.
oskarg
15.06.2004 at 07:37 #503804Það er best að skella sér þessa leið á hjólinu einhvern tíma í sumar, miðað við áhugann hér þá kannski sendi ég línu hér inn hvenær það gæti orðið ef einhver vildi skella sér með.
Kv. Aðalsteinn.
15.06.2004 at 08:47 #503806afhverju ekki…alls ekki galin hugmind….hér eru eflaust margir sem kunna að hjóla og vilja spreita sig smá á fjallahjólinu líka…
kv
js
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
