Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › LC 90 eyðsla
This topic contains 22 replies, has 1 voice, and was last updated by Pétur Viðar Elínarson 16 years, 4 months ago.
-
CreatorTopic
-
21.10.2008 at 16:13 #203091
Sælir, er að velta fyrir mér eyðslu á LC 90 1997 árg með intercooler á 38″ og beinskiptur (breyttur af Arctic Trucks). Hef heyrt ansi breytilegar tölur, væri gaman að fá tölur frá mönnum sem hafa átt svona bíla og segja rétt frá :), en ekki það sem lítur vel út á prenti ?
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
21.10.2008 at 16:44 #631406
16-20L /100km hef ég heyrt.
21.10.2008 at 17:30 #631408ég er með svona bíl á langkeirslu á 90 er hann að eyða svona 12-14 en þegar maður er að keira á svona 100-110 þá er hann að eyða sirka 16-17
21.10.2008 at 19:05 #631410Þetta eru sömu tölur og hjá mér á Hilux 2,4EFI 38".
Þarf að vísu að vera á 80-85 til að vera undir 13.
21.10.2008 at 20:14 #631412Ég er með ’97 LC90 sjálfskiptan með intercooler og fór út í hávísindalegar mælingar í sumar og mældi ekna vegalengd með gps og leiðrétti akstursmæli bílsins miðað við það, en hann var ekki alveg réttur mv. 37".
Mest langkeyrsla á malbiki: frá 11,3l/h uppí 13,7l/h með 2 kajaka á toppnum.
Úrhleypt + blandaður akstur mest 14,7l/h
Almennt má segja 12-13l/h í blönduðum akstri á 37"
Svo er allt í lagi að taka það fram að ég keyrði ekki yfir 90km/klst því að þá verður hann svo þyrstur greyið.
Ætla að gera það sama þegar hann fer á vetrardekkin og sjá hverju munar. Það verður gaman að sjá hvað kemur út úr því.
kv. Pálmi – hæstánægður með eyðsluna
21.10.2008 at 20:19 #631414Ég er með svona bíl árg ´97 hann er ekki með intercooler en það munar soldið um hann,, en hann er að eyða hjá mér 14-17 í blönduðum akstri,,( á suðurnesjum ) En hann hefur eytt mest hjá mér 22ltr/100km en þá var ég með Hjólhýsi
21.10.2008 at 21:17 #631416Sælir
ég hef svosem ekki verið vísindalega að mæla bílinn hjá mér, er 97′ árgerð án Intercooler á 36" mtz beinskiptur
mesta eyðsla sem ég hef náð á honum er 20 lítrar/100 þá með orginal hlutföll 4.10 og 1.6tonn aftaný honum (hjólhýsi) og þess ber að geta að hann var keyrður í 5gír með petalinn í gólfinu,
þessi mæling var gerð með GPS upplýsingum (hraðamælirinn alltaf svolítið ónákvæmur)komst þarf með að því að það væri ekki hægt að láta leka hraðar í gegnum hann olíu.
ef hann er keyrður skynsamlega hef ég náð honum í rúma 16 með hjólhýsið, og eftir að ég setti 4.88 hlutföll, þá snarlækkaði eyðslan 14 lítrar með hljólhýsið á langkeyrslu.
mín speki allavega,
21.10.2008 at 22:24 #631418SÆLIR
Eg er með 97 bil a 35 tommu og hann er með 12.5 til 15 a hundraði.Hann er ekki með inntercoler.En vitið þið hvar eg get fengið kubbinn i tölvuna.
21.10.2008 at 23:07 #631420sælir
Ég átti LC90 á 38" Dick Cepek árg ´98, sjsk með intercooler og kubb. Keyrði hann 20 þús km á ca 8 mánuðum að sumri og hausti og til samanburðar þá var hann að eyða svona 16 lítrum +/- 1 líter eftir aðstæðum og aksturslagi. Þetta var á fullpumpuðu.
kveðja
Agnar
22.10.2008 at 08:57 #631422sælir N1 Bíldshöfða á til tölvukubba í svona bíla ásamt í fleiri bíla kubbarnir bæði auka aflið og minnka eyðsluna svo ótúlegt sem það hljómar
kveðja
Sigþór
22.10.2008 at 09:45 #631424Halldór ertu að spá í kubbnum fyrir Intercoolerinn?
Minn er ættaður úr Toyota umboðinu.
En Sigþór – er til einhver annar tölvukubbur fyrir bíla sem eru ekki með commonrail?
22.10.2008 at 09:51 #631426’98, ekki intercooler, beinskiptur 38" AT, engin kubbur, eyðsla rétt rúmir 16 lítrar með fellihýsi. Ekki mælt hann í snjónum og innanbæjar.
Eru menn að setja kubba í þessa bíla sem ekki eru með cooler? er einhver verulegur munur með og án kubbs?
kv.
sveinn
26.10.2008 at 10:57 #631428Sælir aftur, ég þakka góðar upplýsingar.
26.10.2008 at 11:59 #631430Vélfang er með sértölvu til að minka eðsluna í svona bilum þar að segja ef um commonrailmótor er í bilnum. sagt er að eydlann hafi fari niður um 20 – 30 % og aflið uppum 20 %
28.10.2008 at 00:29 #631432að þessu, að eitthvað tæki auki afl og dragi úr eyðslu. Meikar það sense fyrir einhverjum……. nei segi bara svona
Samrás, sem kannski heitir eitthvað annað í dag, voru útá Seltjarnarnesi og eru kannski ennþá eru með kubb í 90 Cruiser 96-2000. Svo eru þeir held ég líka með kubb´í common rail bílana ásamt fleirra dótaríi.
Átti svona 90 Cruiser, beinskiptann 97 módel og eyddi þetta eins og togari. 16-20 lítrar, og jafnvel meira ef það var einhver gjóla
Kv, Kristján
28.10.2008 at 18:39 #631434Ég held að misjafnar eyðslutölur á sama bílnum bendi helst til þess að munurinn felist að miklu leyti í aksturslagi manna. Eins og ég sagði hér að ofan – það er ekkert mál að fá minn bíl til að eyða um 12L/h í blönduðum akstri (sjálfskiptur, 37"sumardekk, intercooler), en hann eyðir marktækt meira ef maður keyrir mikið 90+ (hef ekki mælt það…).
28.10.2008 at 22:07 #63143635" ssk og Ekki commonrail er með 15l innanbæjar en 13 utanbæjar,ekinn 225þús
38" væri þá 15l og 18l
29.10.2008 at 12:58 #631438Voðalega eruði með þunga fætur félagar. Ég er á 2000árg, bsk, 35", orginal hlutföll, ekki-commonrail og er í mesta lagi í 12l innanbæjar og dett niðrí 9l í langkeyrslu ef maður keyrir einsog maður.
29.10.2008 at 17:05 #631440Hvernig mæla menn eiginlega eyðsluna hjá sér. Þar sem ég hef keyrt 150 km á dag í og úr vinnu síðustu 8 árin hefur maður svona smá yfirsýn um eyðslu. 90 cruiser með gömlu vélinni er nú ekki sá sparibaukur sem talað er um. Hér kemur smá listi yfir þá bíla sem ég átt á þessum 8 árum.
LC 80 1995 24v 38" beinsk diesel 11,5 – 12,5
LC 90 1999 orginal beinsk diesel 13 – 14
LC 90 1999 orginal sjálfsk 13 -14
LC120 2004 orginal sjálfsk 8,5 – 9,5
Hilux 2005 2,5 orginal beinsk 8 – 9
Hilux 2006 2,5 orginal beinsk 11 -12
Hilux 2007 3.0 orginal sjálfsk 8,5 – 9,5
Suburban 2007 5,3 bensín orginal sjálfsk 14 – 16Er þetta allt mælt miðað við það að ekið sé á 90 til 100 km hraða og allt í lang keyrslu. Að reyna að segja manni það að 90 cruiser með gömlu vélina á 35" sé bara með 9 ltr í langkeyrslu hlýtur að vera mælt með einhveri aðferð sem ég kann ekki.
Kv Jón sem finnst gaman að keyra.
29.10.2008 at 17:19 #631442Mikið er nú gaman að sjá hvað þú hefur fullorðnast upp úr Toyota syndrome
Chevy eru góðir til síns brúks en,
Jeppi er ekki jeppi nema á honum standi JEEP
En Jón ég á flottar 20" álfelgur handa þér. orginal chevy með loft skynjurum. ingi@fedgar.is
29.10.2008 at 20:42 #631444Lc 90 ´99 "33 á 15" felgum, sjálfskiptur ekinn 120.000 km, eeyddi 13-14 í langkeyrslu 14-15,5 innanbæjar. kv. Jóhann
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.