Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › LC 80 frá Kína
This topic contains 13 replies, has 1 voice, and was last updated by Björn Ingi Óskarsson 16 years, 11 months ago.
-
CreatorTopic
-
23.05.2008 at 18:55 #202465
Var að heyra að það væru komnir tveir Kínverskir Land Cruserar 80 til landsins??
Er einhver sem veit meira um þessa bíla?
Það væri gaman að heyra meira um þetta. -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
23.05.2008 at 19:15 #623386
eru þeir ekki með Izuzu vél?
Davíð
23.05.2008 at 19:29 #623388er þetta ekki bara eitthvað svipað og hann Ástþór Magnússon flutti inn fyrir einhverjum 2-3 árum en það var einn lc 70 eða 80 man ekki alveg og svo einn hilux d/c en hrárri bíla hef ég nú bara ekki séð fyrir utan KANNSKI gamlan wyllis en þessir bílar voru reyndar framleiddir fyrir afríku en .að var ekki einusinni teppi í golfinu það var gúmmí og ekkert útvarð og enginn stokkur milli sæta, það eina sem var milli sætanna var ferkanntaður öskubakki sem var skrúfaður ofaná golfið hehe, datt þetta kannski í hug að þetta gætu verið samskonar en annars hef ég ekki mikið vit á því
kv. Kristján
23.05.2008 at 20:04 #623390taliði við innflytjandann
hjalli í bílakringlunni Ártúnshöfða
24.05.2008 at 15:34 #623392Þessir bílar eru langt því frá að vera hráir, þeir líta út eins og kokteill af LC 80 og LC 100 en koma til með að vera seldir hér heima undir nafninu Icetoy. Mig minnir að hann eigi að vera með sama drifbúnað og LC og þal. með alvöru hásingu að framan, en ég er ekki viss með vélina.
Hjalli er búinn að vera að vinna í því að fá bílana skráða hérna heima en það er eitthvað vesen að fá Kínverjana til að gefa út einhverja gerðarviðurkenningu eða einhvern fjandann. Prófið bara að slá á hann Hjalla á mánudaginn, síminn í Bílakringlunni er 587 1099.Kv.
Ásgeir
25.05.2008 at 00:55 #623394Ásgeir Skrifar :
"Mig minnir að hann eigi að vera með sama drifbúnað og LC og þal. með alvöru hásingu að framan, en ég er ekki viss með vélina."uhh…
Hvaða tegund af LC er það sem er með "alvöru" hásingu að framan ?
Benni
"stoltur" LC eigandi
25.05.2008 at 09:54 #623396LC 40, 60, 62 og allt þar á milli voru allir með 9,5" framhásingu. Það er komið í Alvöru ekta flokkinn.
25.05.2008 at 23:40 #62339819.11.2008 at 01:08 #623400Mikið er ég smeykur um að heimasíðan sé það flottasta sem kemur frá þessu fyrirtæki.
Það er vissulega hægt að fá ágætis hluti gerða í Kína, en að heill bíll sé eitthvað sem við höfum áhuga á….tjah….ég ætla ekki að vera sá fyrsti.Við skulum bara orða það þannig að ég á kóreskan bíl sem vissulega kemst víða, en ég á líka Toyotur.
Það munar.
19.11.2008 at 08:57 #623402This type of Conqueror SUV is equipped with engine QD32Ti (3153 cc, 4-cylinder, 137hp/3600rpm, 313N.m/3400rpm, turbocharged, intercooled diesel) by NISSAN QD32 technology. It will satisfy your demand of off-road driving exactly. Einmitt…
Þetta segir mér nóg til að fara inn á klósett og kúka með munninum.
19.11.2008 at 11:48 #623404ég er eiginlega sammála það kom eitthvað helv…óbragð í munnin á mér en þetta er ekkert mál, bara versla eitt kvikindi og byrja á því að rífa mótor úr og setja orginal toy í hann, skítt með að hann sé ekin 200-400þús kílometra hann verður altaf betri en allt sem er búið að líma einhverja Nissan tækni á…
19.11.2008 at 13:06 #623406ekki setja bara alvöru Nissanvél eins og þessa hérna [url=http://www.youtube.com/watch?v=Yj5fvc1kY4w&feature=related:15s3hs49][b:15s3hs49]4.8[/b:15s3hs49][/url:15s3hs49] línu sexa með turbo og er greinilega að virka. Það er ekki allt ónýtt frá Nissan. 😉
Kv. BIO
19.11.2008 at 14:53 #623408er vegna þess bjössi minn að það er EKKI til neitt sem heitir alvöru frá Nissan. Þú getur þá allt eins notað Toy benzín og sett við hana blower…
19.11.2008 at 15:22 #623410kann að vera rétt en þó að Toyota sé góðir bílar þá bila þeir því miður eins og aðrir en eitt mega þeir hjá Toyota eiga að óvíða er betri þjónustu að fá og það þekki ég af reynslu. EN hafa menn einhverjar haldbærar upplýsingar um þetta "kínadót" til að geta sagt til um hversu vont eða gott þetta er í rauninni.
Kv. BIO
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
