Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › LC 80 dekkjastærð
This topic contains 13 replies, has 1 voice, and was last updated by Sturla Þengilsson 17 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
15.02.2008 at 16:51 #201877
sælir félagar
Hef verið að velta fyrir mér dekkjastærð á Landcruiser 80.
Nú er þetta frekar stór bíll og hef ég heyrt að það þýði ekkert annað en að vera með hann á 44″ dekkjum ef hann á að nýtast eitthvað í snjónum.Mér þætti gaman að heyra hvaða álit og reynslu menn hafa af slíkum bílum á 38″ dekkjum.
kv.
Ómar -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
15.02.2008 at 18:25 #614294
Já vissulega er talað um að LC80 sé ekki fullbreyttur fyrr en á 44".
Ég á einn á 38" og hef verið að ferðast með fleirum á sams konar bílum og mitt mottó er að hópurinn sé það sem skiptir máli.
Það er kannski ekkert skemmtilegt að vera á 38" dekkjum í hóp með öðrum á 44" því menn og konur vilja jú reyna græjurnar og þá er sá verst búni til trafala.
Allir sem ég tala við nefna hversu ókeyrandi LC80 verður á 44" en get ekki dæmt um það sjálfur – hef ekki prófað.
Mín niðurstaða – gerðu það sem þér finnst skynsamlegast

15.02.2008 at 19:33 #614296ég held að 41“ sé líka mjög góður kostur fyrir lc 80 og er það sem mun koma undir krúserinn minn fyrir næsta vetur ásamt hásinga færslu
kv HSB U-119
15.02.2008 at 23:23 #614298Ég er búinn að ferðast talsvert mikið síðustu 10 ár á 38" Landcruiser 80 björgunarsveitarbíl og líkað vel.
Oftast hefur bíllinn verið vel lestaður og aðstæður erfiðar, en bíllinn hefur staðið sig með príði á þessum dekkjum og ekki þurft að láta í minni pokann fyrir bílum á stærri dekkjum og oftast staðið sig betur hvað sem veldur.
Við erum einnig með Patrol á 41" sem eru svo sem ágæt líka nema í hliðar halla þar sem dekkin vöðlast inn undir bílinn vegna þess hversu mjó þau eru miðað við hæð. Erum reyndar að breikka felgurnar undir honum núna til að sjá hvort það lagast.Kv. Smári.
16.02.2008 at 00:08 #614300"Allir sem ég tala við nefna hversu ókeyrandi LC80 verður á 44"
Ættli sanleikurinn sé ekki sá að LC80 er einn besti jeppi sem þú getur ekið um á 44", búinn að eiga ameriskt, búinn að eiga patrol bæði gamla og nýja og allt ágætir bílar en ef eitthvað er þá ber LC80 höfuð og herðar af þessum bílum. Hinsvegar er hækt að eiðilegja alla jeppa með slæmum breytingum meir að segja LC80…..
16.02.2008 at 05:37 #614302sammála benedikt með að hægt sé að eyðileggja alla bíla með slæmum breytingum en ég er búinn að keyra nokkra bíla á 44 en ekki 80 cruiserinn en eg hef fulla trú á honum á 38 og enn meiri á 44,
svo að gangi þer bara vel að gera upp a milli 38 og 44 en svona okkur a milli þa er 44 betri ef billinn verður bara notaður í snjó en í daglegum akstri farðu í 38
kv Atli
16.02.2008 at 13:27 #614304Hvað ertu með þennan Lc á breiðum felgum og hvaða dekk fynnst þér virka best undir honum?
Kveðja
Spotti
16.02.2008 at 15:16 #614306spurning kvort þú vilt sjeppa eða jeppa.
16.02.2008 at 17:56 #614308Takk fyrir góð svör.
Ég hef nefnilega verið að hugsa að fjárfesta í LC 80 á 38" dekkjum í þeim tilgangi að nota á fjöllum á veturna og á sumrin.
Þeir jeppar sem ég hef átt hingað til hafa allir verið á 38" og 12" breiðum felgum en mér hefur alltaf fundist 12" felgurnar aðeins of mjóar.
Er ekki hættan að þungur bíll eins og LC80 fljóti illa á 12" felgum?Ómar
16.02.2008 at 18:57 #614310Sæll Ómar og til hamingju með bílinn. Ég er er líka á Lc80 á 38" dekkjum en minn bíll er á 12" breiðum felgum. Í einni ferð sem að ég fór gat ég ekki farið neðar en í 3 pund og ég vil halda að það hafi verið út af felgunum. Þess vegna er ég að reyna forvitnast hvað menn eru með þessa bíla á breiðum felgum.
Kveðja
Spotti
16.02.2008 at 19:03 #614312Sælir.
Þessi bíll sem ég hef verið á er á 38" AT dekkjum á 16" breiðum felgum og kemur það mjög vel út. Áður vorum við með hann á 38" mudder á 15,5" breiðum felgum sem virkaði einnig mjög vel.
Kv. Smári.
16.02.2008 at 19:08 #61431438" cruserar hafa hingað til ekki verið til trafala í ferðum með mér, ef þú ert góður að keyra að þá er þetta ekkert mál að fara nokkurnveginn allt á 38", vandaðu bara valið þegar þú velur dekk
kv.Axel Sig…
17.02.2008 at 02:01 #614316Sælir.
Það sem ég reyndi á á mínum LC80 á 38 mudder dagsdaglega var draumur í dós. Mjög stöðugur og gat keyrt mikið í snjó á þessum dekkjum. En þessir bílar þurfa að vera breittir fyrir 44" ef um lagar og erfiðar fjallaferðir er að ræða.Það er ekkert vit í því að vera á flottum landkruser 80 á 38" dekkjum og þurfa að vera alltaf að vera öðru hvoru í spotta. Þessir bíla eiga að vera með aðra í spotta og það gera þeir ekki á 38", eins öflugir og þeir eru.
kv ice
22.02.2008 at 15:09 #614318Já ég er með hann á 12" breiðum felgum og finnst það virka fínt.
Á tvo ganga: Negldan mudder fyrir snjóakstur og svo Super Swamper (SSR minnir mig) fyrir sumartraffíkina.
Sumardekkin eru alveg kringlótt og slitna hægar en Mudderinn en eru á móti töluvert þyngri.
Mér áskotnaðist óbreyttar Toyota stálfelgur sem ég lét breikka og valsa á þau stærri brún.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
