FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Lansfrægur

by Magnús Hallur Norðdahl

Forsíða › Forums › Spjallið › Umhverfismál › Lansfrægur

This topic contains 6 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Elín Björg Ragnarsdóttir Elín Björg Ragnarsdóttir 17 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 18.10.2007 at 08:32 #201001
    Profile photo of Magnús Hallur Norðdahl
    Magnús Hallur Norðdahl
    Participant

    Spurt um mann lansfrægan hann þótti vera orðheppin,
    sýðustu árin notaði hann bönd til að keira

    kv,,, MHN

  • Creator
    Topic
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)
  • Author
    Replies
  • 18.10.2007 at 08:44 #600276
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    ið myndi ég ætla að væri Magnús Hallur Nordahl, hann er landsfrægur, sérlega orðheppinn og síðast þegar sást til hanns í umferðinni var hann í bandi aftaní öðrum bíl vegna mölbrotinar vélar.





    18.10.2007 at 08:48 #600278
    Profile photo of Óskar Hafþórsson
    Óskar Hafþórsson
    Participant
    • Umræður: 66
    • Svör: 655

    Ólafur Ketilsson
    hann var með fastar rútuferðir upp á laugavatn

    skari





    18.10.2007 at 10:24 #600280
    Profile photo of Einar Steinsson
    Einar Steinsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 752

    Nánar um þessi bönd:
    Sagan segir að kallinn hafi komið fyrir talíu inni í bílnum sem hann notaði til að koma fætinum upp á pedalana þegar hann var orðinn of gigtveikur til að lyfta þeim.
    Hann hafði orð á sér fyrir að fara ekki beinlínis hratt yfir þannig að þessi búnaður skerti kannski umferðaröryggi ekki svo mikið.
    Það er til haugur af skemtilegum sögum af honum og væntanlega gildir um margar þeirra að það á aldrei að láta góða sögu gjalda fyrir sannleikann.





    18.10.2007 at 14:57 #600282
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 942

    Á vegagerðar vísdómstindi,
    með blauta sína tíu fingur,
    sjáir þú mann á móti vindi
    míga, það er verkfræðingur.

    Hann hafði semsagt ekki mikið álit á verkfræðingum þeim sem hönnuðu vegi landsins, frekar en flestir reyndar sem hafa unnið í vegagerð.





    18.10.2007 at 15:07 #600284
    Profile photo of Magnús Hallur Norðdahl
    Magnús Hallur Norðdahl
    Participant
    • Umræður: 713
    • Svör: 2671

    Hér eru nokkrar stuttar sögur af Óla Két

    Hann var orðin leiður hvað gekk ílla að moka snjó á þeirri leið sem hann keyrði svo að hann mokaði snjó í stóran plastpoka og fór með hann niður á skrifstofu hjá vegamálastjóra og hvolfdi úr pokanum og sýndi vegamálastjóra hvernig snjór liti út, daginn eftir var búið að skafa leiðina.

    Hann var að fara yfir Hellisheiði þegar einn farþeginn kallaði frammí og sagði að belja væri að taka frammúr Óli svaraði um hæl taktu þér þá far með henni ef þér liggur svona mikið á.

    Hann var beðinn að stoppa, fólki var mál að pissa enda var ástæða fyrir því hann var alltaf svo lengi á milli RVK og Laugarvatns svo hann sagði mönnum að vera hægra meginn og konum vinstra meginn svo þegar allir voru að pissa þá ók hann frá svo það munaði litlu að menn pissuðu á bakið á konunum.

    Eitt sinn var Óli að aka kvenfélagskonum austur á land.
    Á leiðinni sjá konurnar stóran og glæsilegan bústað nálægt veginum. Fara þær að tala um hvað þetta ríka pakk væri að byggja villur út um allt og borga lítið sem ekkert í skatt, það ætti bara að skattleggja þetta lið mun meira.
    þegar þær voru búnar aþ skvaldra þetta fram og tilbaka þá kallaði Óli aftur í rútuna og sagði: Sigga mín hvernig líkar þér svo við fína bústaðinn þinn þarna við veginn. það voru ekki fleiri orð sögð þá ferðina.

    Eitt sinn á ferð sinni í bæinn stoppaði Óli fyrir ungu pari rétt fyrir utan Hveragerði og hirti þau upp. Vaninn var hjá honum að rukka fyrir ferðina þegar í bæinn var komið. Fljótlega eftir að hann lagði af stað með parið í bílnum sá hann að þau urðu ansi ástleitin við hvort annað og fór á endanum allt á fullt. þegar komið var í Reykjavík kom ungi maðurinn frammí og bauð greiðslu en þá sagði Óli: Ónei góurinn í minni sveit þarf fólk sem fer ríðandi í bæinn þyrti ekki að borga.

    Hann var einusinni spurður útaf hverju hann keyrði alltaf á miðjum veginum og hleypti helst engum frammúr sér, hann svaraði að þeir sem keyra á eftir sér kæmust alla leið en hinir sem böðluðust frammúr, þyrfti hann að hjálpa síðar við það að komast aftur upp á veg.
    Hann var farsæll bílstjóri og laus við óhöpp .
    þeir sem kunna fleiri sögur af honum þá væri gaman að heyra þær hér.

    kv,,, MHN





    18.10.2007 at 15:28 #600286
    Profile photo of Elín Björg Ragnarsdóttir
    Elín Björg Ragnarsdóttir
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 378

    Á þessi þráður heima undir umhverfismál?





  • Author
    Replies
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.