Forsíða › Forums › Spjallið › Færð á fjöllum › Langjökull í Landanum
This topic contains 16 replies, has 1 voice, and was last updated by Ólafur Magnússon 13 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
27.02.2011 at 20:22 #217667
Góða kvöldið
Svolítil umfjöllun var um ástand Langjökuls í Landanum á RUV í kvöld.
sjá hér. Umfjöllunin byrjar eftir ca. 5:10. Ágæt umfjöllun, en ég er nú ekki endilega sammála öllu því sem þar kemur fram.Eða hvað finnst fólki ?
kv. Óli
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
27.02.2011 at 21:31 #721412
Sá ekki þáttinn, bara tilvitnun í hann í fréttunum, en mér fannst svolítið einkennileg fullyrðing að jökullinn sé allur út í sprungum sem "enginn veit hvar eru". Nú ætla ég ekki að gera lítið úr hættunum eða þörfinni á að vara menn við varasömum aðstæðum en staðreyndin er að við höfum núna betri upplýsingar en nokkurn tíman áður um hvar sprungurnar eru. Nú er það alls ekki svo að sprungukortin útrými hættunum en fullyrðing sem menn almennt vita að er ekki allskostar rétt virkar ekki sem forvörn gegn slysum.
Kv – Skúli
27.02.2011 at 21:48 #721414Sá þáttinn og þetta var soldið eins og Icesave hræðsluáróður. Menn verða auðvitað að vita hvað þeir eruað gera þegar þeir fara á jökul, en það er algjör óþarfi að hætta að ferðast um hann.
28.02.2011 at 08:36 #721416Fer þetta ekki bara að verða spurning um að vera svipað græjaðir og þegar
farið var á Suðurskautið hérna um árið og vera með radar til að sjá sprungurnar.
Man nú ekki hvort þetta var að virka sæmilega hjá þeim.
[img:12pvo2pr]http://i520.photobucket.com/albums/w327/bjorningi/Sprunguradar2.jpg[/img:12pvo2pr]
28.02.2011 at 09:12 #721418Hvaða jökla-sérfræðingar voru þetta með lambhúshetturnar?
Einhverjir sem þekkja málin af afspurn eða af eigin reynslu?kv. Atli E.
28.02.2011 at 09:34 #721420
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Já Atli, – þeir litu út fyrir að vera betri að sér í Landabruggun.
ÓE
28.02.2011 at 10:48 #721422Nú verð ég að opinbera hroka minn og hleypidóma, en fyrri hluti þessarar umfjöllunar var einfaldlega kjánaleg að mínu mati. Sjálfskipaðir sérfræðingar stíga fram merktir Landsbjörgu og blaðra út frá eigin skoðun um stórkostlega hættu af jöklinum og yfirlýsingar um sprungur og sprungumyndanir raktar strax aftur í viðtali við raunverulegan sérfræðing í seinnihluta viðtalsins. Helgi Björnsson er maður sem veit sínu viti þegar kemur að jöklum, en stígur varlega til jarðar og varpar ekki fram neinum dramatískum yfirlýsingum þarna.
Staðreyndin er að jökullinn er mun varasamari nú en hann hefur hingað til verið og mjög sprungið svæði sem liggur þvert á algengustu leið yfir jökul vest-norð-vestur af Þursaborginni. Að sama skapi búum við núna yfir betri og víðtækari upplýsingum um jökulinn en við höfum nokkru sinni haft og eiga þeir heiðursmenn sem að jöklakorta verkefninu stóðu mikinn heiður skilinn.
Það er stórhættulegt að ferðast á jöklum, sem og í Ártúnsbrekkunni. Við verðum að hafa vit á því sem við erum að gera og fara varlega og halda okkur utan við rauðu svæðin á jöklakortunum og fara afar varlega við að stíga út úr bílunum á gulu svæðunum. En njótum þess áfram að ferðast um Langjökul.
28.02.2011 at 11:11 #721424
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Svona hræðsluáróður á að hluta til rétt á sér. Honum er einkum beitt á reynslulausa og á þá sem hættir til að fara óvarlega. Þeir sem hafa reynslu skipuleggja ferðir sínar betur og vara aðra við. Ferðir á sprungnum jöklum er dauðans alvara.
Kv. SBS.
28.02.2011 at 11:24 #721426Mér finnst því miður bara þessi lambhúshettukarlar vera rýra trúverðuleika Landsbjargar með því að vera með svona sterkar ályktanir, sem eiga örugglega rétt á sér?!?! eða hvað?!?!
(fannst þeim reyndar svipa mjög til þeirra sem stóðu upp á Fimmvörðuháls þegar gosið var með bláu-hálvitana á fullu gasi)Við vitum að það er mjög hættulegt að lifa lífinu lifandi, það er líka hægt að fá gólfkúlu í hausinn eða fá hjaraáfall á fótboltaæfingu.
Það er bara algjör óþarfi að veitast að útivistarfólki með svona umtali. Ég er allavega farinn að finna verulega fyrir því að maður sér litinn hornhauga fyrir að voga sér á fjöll, því það sé nánast öruggt að aumingjans Landsbjargarmennirnir þurfi þá að taka sér frí í vinnu til að koma og bjarga mér, börnunum og konu, þ.a.s. ef við verðum á lífi ennþá. Allt á kostnað þjóðarinnar.
kv. Atli E.
28.02.2011 at 12:50 #721428
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Þið eruð alveg ótrúlegir….
Ég um mig, frá mér til mín….
28.02.2011 at 13:39 #721430
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Atli minn!! Hvers vegna skammar þú ekki hann pabba þinn fyrir að hafa lagt þig í þá lífshættu að koma þér í heiminn. 😉
Kv. SBS.
28.02.2011 at 13:47 #721432Svona hræðsluáróður á að hluta til rétt á sér. Honum er einkum beitt á reynslulausa og á þá sem hættir til að fara óvarlega. Þeir sem hafa reynslu skipuleggja ferðir sínar betur og vara aðra við. Ferðir á sprungnum jöklum er dauðans alvara.
Kv. SBS.
Og ég verð að fá að bæta aðeins við þetta hjá þér. Ég sé líka það að það sé verið að benda ÖLLUM sem eru VANIR að ralla um Langjökul á að fara varlega.
Og ég veit það fyrir víst að alla veganna annar lambhúshettu karlinn eins og þið kallið þá, er einn af þeim sem er yfirleitt með þeim fyrstu til að bjarga fólki sem lendir í vandræðum á Langjökli og svæðinu þar í kring.Kv Ragnar Páll
28.02.2011 at 14:35 #721434Að sjálfsögðu á það fullan rétt á sér að hvetja menn til að fara varlega og vara við því að jökullinn sé hættulegri núna en oft áður. Hins vegar er það þannig að ef menn eru að koma aðvörunum á framfæri skiptir öllu að vera trúverðugur og þá er málið að fara rétt með staðreyndir en ekki segja eitthvað sem allir vita að er ekki rétt. Menn hafa stundum þessa tilhneigingu að setja málin fram í bara andskoti sterkum litum en það virkar ekki ef það er á kostnað staðreynda.
Nú vil ég taka fram að ég ber fulla virðingu fyrir starfi björgunarsveitarinnar á Skaganum og þekkingu þeirra á jöklinum, óháð því hvaða höfuðbúnað þeir svosem kjósa sér. Þetta er meira svona eins og PR-slys hjá þeim að setja málið svona vitlaust fram.
Kv – Skúli
28.02.2011 at 14:51 #721436Ég efast ekki um að þessum mönnum gangi gott eitt til og þeir eru örugglega manna fyrstir til að koma og hjálpa til.
Hafa örugglega líka gríðarlega gaman af eins og allir sem eru í björgnarsveitum.
Ég hef líka gaman af því að hjálpa fólki, sérstaklega ef það er þakklátt fyrir björgunina.Enn það er líka löngu vitað að jökullinn er sprunginn, og víða "stórhættulegur". Jöklar eru yfirleitt alltaf stórhættulegir ef það er ekki rétt af þeim farið. Það á líka við um t.d. konur og vín, og örugglega markt fl.
Ég hef séð margar sprungur sem geta gleypt 2 bíla hlið við hlið – og jafnvel stærri. Ég sá þær líka hér á árum áður.
Ég get nú ekki sagt að mér finnist slysatíðnin vera há þarna uppfrá, þó svo að það hafi vissulega orðið slys.Mér finnst líka mjög undarlega orðað hjá þeim: "það er alltaf hætta við að einn og einn fari inn á jökulinn" og "vonandi að menn séu skynsamir og fari frekar inn á hálendið". Eins og það sé bara heimskt fólk sem fari á jökla.
Kv. Atli E.
p.s. tókuð þið eftir hvað Patrolinn fór hratt upp brekkuna. Var að velta fyrir mér hvort vídíóið hafi verið hraðspólað?
28.02.2011 at 17:35 #721438Þeir hefðu nú mátt benda á nýa sprungukortið svo oð hinn almenni landi sjái að það er verið að gera eitthvað í öriggismálum og það séu nú ekki allir sem eru að fara þarna upp í algerri blindni.
28.02.2011 at 18:45 #721440Ég hef sent Gísla, Landastjóra tölvupóst, þar sem ég bendi honum á þetta sprungukortaverkefnið.
kv. Óli
03.03.2011 at 14:39 #721442Gísli Einarsson Landastjóri, var í sambandi við mig rétt í þessu og upplýsti mig að hann hafi tekið viðtal við Snævarr vegna sprungukortaverkefnisins og það verði sýnt í Landanum á sunnudaginn kemur.
Kv. Óli
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.