FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Langjökull?

by Hrafn Daði Haðarson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Langjökull?

This topic contains 4 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Hrafn Daði Haðarson Hrafn Daði Haðarson 19 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 25.02.2006 at 22:21 #197408
    Profile photo of Hrafn Daði Haðarson
    Hrafn Daði Haðarson
    Participant

    Fóru einhverjir upp á Langjökul i dag og hvernig var færðin?

    kv
    Daði

  • Creator
    Topic
Viewing 4 replies - 1 through 4 (of 4 total)
  • Author
    Replies
  • 25.02.2006 at 23:05 #544698
    Profile photo of Arnór Árnason
    Arnór Árnason
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 430

    Fórum á fjórum bílum upp frá Skálpanesi. Kjalvegurinn upp á hálsinn er reyndar viðbjóður, drulla og holur en engin vandamál þannig lagað.

    Færið upp við Skálpanesið var frábært – slétt og hart, þegar við svo komumst upp á Skriðufellið var þjóðvegafæri (90+ km/klst) inn að Þursaborg.

    Þar hittum við menn sem voru að koma frá íshellunum og ákváðum að skella okkur þangað. Þeir sem við hittum sögðust hafa farið það á 18 mín. en því trúi ég mátulega, því færið varð heldur ósléttara norðan í hábungunni og alveg niður að hellunum – max 40 km/klst. og oft hægar.

    En mér finnst vera mikill snjór á jökli og við sáum menn og sleða keyra hvar sem er í kringum Péturshornið og yfir að Fjallkirkju (eitthvað sem menn ættu að hafa lítinn áhuga á ef þeir hafa séð þetta svæði í litlum snjó !!!)

    Ég var að koma í hellana í fyrsta skipti og skilst þeir hafi minnkað mikið frá því í fyrra en flott samt.
    Það sem vakti mesta athygli manna þarna var samt gífurlegt krapaflóð sem hefur bókstaflega sprungið út úr jöklinum þarna rétt sunnan við hellana. Þar eru 2-3 metra háir hjarnveggir á köntum flóðsins og það hefur flæmst mörg hundruð metra niður í urðina fyrir neðan – mjög tilkomumikið og greinilega mikið gengið á. Þar sem það hefur átt upptök sín vellur þokkaleg á upp úr hjarninu töluvert uppí jöklinum. Þetta er greinilega mjög nýtt – hefur sennilega gerst í rigningunum í vikunni.

    En Langjökull var sem sagt frábær yfirferðar í dag laugardag og verður það örugglega á morgun líka.

    P.S. það voru 31" bílar upp við Þursaborg sem segir nú sitt um færið.
    Arnór





    25.02.2006 at 23:08 #544700
    Profile photo of Sigurbjörn H. Magnússon
    Sigurbjörn H. Magnússon
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 207

    Ég var á Langjökli í dag í afbragðs færi og himnesku veðri. Vorum á 10 bílum, sá minnsti var Suzuki Vitara algjörlega óbreyttur. Fórum á Geitlandsjökul, í íshellana í Flosaskarði og síðan upp að Þursaborg og á Péturshorn. Þaðan var ekið í Skálpanes og allt gekk þetta vandræðalaust.
    Frábær dagur á jökli.

    Kveðja, Sigurbjörn.





    25.02.2006 at 23:09 #544702
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    31" -> Þá ætti Gundur að komast 😀

    mér er létt, Siggi





    26.02.2006 at 01:09 #544704
    Profile photo of Hrafn Daði Haðarson
    Hrafn Daði Haðarson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 98

    Þakka góð svör!

    kv
    Daði





  • Author
    Replies
Viewing 4 replies - 1 through 4 (of 4 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.