Forsíða › Forums › Spjallið › Færð á fjöllum › Langiskafl
This topic contains 25 replies, has 1 voice, and was last updated by Jóhann Stefánsson 19 years ago.
-
CreatorTopic
-
11.11.2005 at 12:42 #196615
Hefur einhver farið nýlega á Langjökul?
Hvernig er færið?
Erum að spá í jökulinn á laugardag.Kveðja Dagur
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
11.11.2005 at 12:52 #531980
í að skella mér með á langaskafl ef færið er gott og veður í skaplegra lagi.
Nenni ekki í dagsferð og lenda í tómu veseni.
11.11.2005 at 13:05 #531982Veðurspáin fyrir laugardag getur ekki verið betri, logn og sól og talsvert frost. Það hefur verið úrkoma undanfarna daga, þannig að það kæmi mér ekki á óvart ef það væri töluverð lausamjöll á jöklinum.
Svo er spáð úrhellisrigningu og skammvinnum hlýindum á sunnudaginn.-Einar
11.11.2005 at 14:57 #531984Svona svona kELI KELIDÚKKA, þú hefur aldrei farið í einhverjar ferðir sem eru eitthvað vesen, fórst einu sinni í fyrra á Langjökull og lentir aðeins í 3 affelgunum Iss Pisss hvað er það nú???
Drífðu þig bara á stað á Laugardaginn og vertu við öllu búinn, ég skal glaður halda í höndina á þér og þerra tárin.
Þinn vinur Lúther
11.11.2005 at 15:10 #531986Endilega komdu líka. Það veitir ekki af að fá nokkrar heimildarmyndir af kolföstum 44 pjatta á langaskafli.
Ég hef hreinlega hvorki haft efni á því að fara í þær ferðir sem hafa verið farnar hingað til, enda er ég bara fátækur öryrki á framfærslu ykkar hinna.Vonast til að geta verið kominn í Húsafell um hádegi. Kemst ekki af stað héðan fyrr en í fyrsta lagi kl 11.
11.11.2005 at 15:13 #531988Heimildarmynd af kolföst…………….
Herra vefstjóri ég legg til að ekki bara þessum þræði verði eytt út, heldur síðunni ALLRI.Lúther
11.11.2005 at 15:31 #531990Óþarfi að vera svona hörundsár garmurinn þinn.
11.11.2005 at 15:32 #531992Fórum á Langjökul um síðustu helgi. Ókum við upp vestanverðan Vestari Hagafellsjökul og austan og ofan við Klakk, þaðan yfir jökul við Geitlandsjökul og niður hjá Jaka. Færið var þannig að jökulinn var að mestu grjótharður klaki. en snjór var þó í lægðum. Og snjór var einnig þar sem ekið er upp á jökul frá Slunkaríki. Góða ferð.
11.11.2005 at 15:33 #531994Efast um að færið hafi versnað eitthvað frá því um daginn. Frekar orðið enn harðar ef eitthvað er.
11.11.2005 at 15:45 #531996Hef áhuga á að fara á Langjökul á morgun. Vil gjarnan vera í samfloti með öðrum. Húsafell um hádegi hljómar vel fyrir mig.
Kv. Jói. 864-1235
11.11.2005 at 16:29 #531998……þá ekki bara stefnan að hittast við þjónustumiðstöðina um hádegi?
Keli. 865-4219
11.11.2005 at 16:51 #532000Það er svokallaður dótadagur á morgun svo ég verð á jeppanaum með vélsleðann og krakkana verð líklega kominn í Jaka um hádegi.
Kannki konan geti dregið jeppann þinn Keli upp á Bungu á sleðanum.
Kveðja Lúther
11.11.2005 at 17:09 #532002Ætli maður reyni ekki fyrst af sjálfsdáðum áður en farið verður að setja spotta í hjá manni.
11.11.2005 at 19:14 #532004Dagur var nú að spyrja hérna um færið á Langjökli. Það eru að vísu 2 af 10 svörum sem fjalla um það en ….
Er bara svona að spá í þetta!
Kv – Skúli
11.11.2005 at 19:47 #532006Takk fyrir eik og ofsi.
Förum nokkrir kælikallar í fyrramálð og erum líklegir að fara jökulinn, enda er veðurspáin góð.ferðakveða
Dagur
11.11.2005 at 20:24 #532008er með Snæfellsjökul, er í lagi að fara á hann?
Kalli
11.11.2005 at 21:29 #532010Ef þú ferð á jökul ertu til að taka nokkrar myndir af bilnum
svo að ég geti séð hvernig hann virkar í snjónum .Ég er að spá
í að fá mér Grand V 35t , vona að verði gott færi ,. væri gaman
koma með, en er vinna . ( Á eftir að reyna komast á jökul á Rabba 31t )
KV..mhn
12.11.2005 at 00:03 #532012SKÚLI, SKÚLI, SKÚLI og SKÚLI
Hvað ertu að fara með póstinum sem þú settir inn??
Fyrir utan það að ég veit um fáa þræði hér sem ekki hafa farið út í steypu, þá var fyrsti þráðurinn hér spurning um færð á Langjökli ((ekki Langaskafli) hvar í fjandanum sem hann er))
og svo við erum að spá í jökulinn á laugardag.
Út frá því spynnast svo ég er til og ég líka eins og þessi síða á að virka það að fólk makki sig saman og fari á fjöll og hafi GAMAN
Kveðja Lella sem ætlar ekki á Langjökul á morgun
12.11.2005 at 00:14 #532014Lellu og Þorgeiri, það er pirrandi þegar það er verið að nota svona nöfn einsog Langiskafl á Langjökul.
Það sama má segja um Hofsjökul, ég vill kalla hann Arnafellsjökul og Vatnajökul Klofajökul og Tungnafellsjökul=Fljótsjökul og Hrútfell=Regnbúðarjökul en hvað um það, farið varlega á Langjökli það getur verið þunn skæna yfir sprungum og opnir svelgir sjást illa.
12.11.2005 at 00:27 #532016YES OFSI
sammála enda höfum við alltaf verið fræg fyrir það að vera sammála.
Kveðja Lella
12.11.2005 at 00:43 #532018Sumum finnst það pirrandi að hlutirnir heiti fleiri en einu nafni.
Til dæmis nefni Jón nokkur Snæland eða Ofsi eða Slóðríkur eða – eða, nóg um það, að Langiskafl væri kanski ekki Langjökull, eða að Vatnjökull væri bara Klofajökull, en í guðanna bænu ekki minnast á Hverfjall eða Hverfell í Mývatnssveit.Það er ekkert spennandi að halda sig endalaust við stafsetningarvillur á landakortum og notum þau nöfn sem henta í hvert skipti.
Kveðja Dagur
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.