FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Langar i biltur

by Bjarki Logason

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Langar i biltur

This topic contains 12 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 22 years, 1 month ago.

  • Creator
    Topic
  • 19.04.2003 at 21:18 #192509
    Profile photo of Bjarki Logason
    Bjarki Logason
    Participant

    ER einhver sem er ad fara sunnudagsbiltur inn a langjokul eda bara eitthvad ef svo vaeri ta vaeri gaman ad fa ad fljota med er a Barbi a 38 tommu.Tid verdid ad afsaka tad vantar islensku stafina i tolvuna hja mer.

  • Creator
    Topic
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)
  • Author
    Replies
  • 19.04.2003 at 21:34 #472620
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Var að velta fyrir mér Mýrdal og Eyjafjallajökli vantar ferðafélaga ef þú hefur áhuga á því.
    Ómar
    h.s.5654016
    g.s.m. 8966467





    20.04.2003 at 09:36 #472622
    Profile photo of Bjarni Samúelsson
    Bjarni Samúelsson
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 330

    Sæll Ómar.Ég sá að þú ert að spá í jöklaferð,hvenar ert þú að hugsa um að leggja af stað? Ég hefði áhuga á að slást í ferð með ykkur. Kveðja Bjarni R2369 .





    20.04.2003 at 14:16 #472624
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Sælir strákar, var að velta fyrir mér Eyjafjallajökli á mánudag, vinsamlegast látið vita hvernig færið er ef þið hafið farið á jökulinn, þá á ég við alveg frá Seljalandsfossi til Skógarfoss.

    Kv. vals





    20.04.2003 at 14:38 #472626
    Profile photo of Hjörleifur Jóhannesson
    Hjörleifur Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 33
    • Svör: 209

    Sælir.
    Ætlum að fara á Eyjafjallajökul á morgun.
    Á einhver Mapsourcetrökk á Eyjafjalla og Mýrdalsjökla, og nennir að senda mér þau á s36@isl.is .
    Takk og gleðilega Páska.
    Lalli





    20.04.2003 at 15:54 #472628
    Profile photo of Bjarni Samúelsson
    Bjarni Samúelsson
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 330

    KL. hvað ætlið þið að leggja af stað og hvaðan? Kveðja R 2369





    20.04.2003 at 17:04 #472630
    Profile photo of Hjörleifur Jóhannesson
    Hjörleifur Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 33
    • Svör: 209

    0800 frá Select, Ártúnshöfða. 15 sekúndur gefnar fyrir þá sem sofa yfir sig.
    Kv,
    Lalli





    21.04.2003 at 23:21 #472632
    Profile photo of Hjörleifur Jóhannesson
    Hjörleifur Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 33
    • Svör: 209

    Vorum að koma úr frábærum túr frá Hamragörðum, yfir Eyjafjallajökul, Fimmvörðuháls og svo niður Sólheimajökul.
    Talsvert langt þarf að aka slóðann upp Hamragarðaheiðina vegna snjóleysis. Fyrstu brekkurnar voru erfiðar og mörgum góðum bílnum ofviða. Sárvantaði marga þar skriðgír, en snjórinn er frekar blautur þarna en krapalaust er og grip nokkuð gott. Eftir að upp fyrstu hjallana var komið var ekið í góðu færi og niðaþoku langleiðina að Goðasteini, Voila! eins og keyrt væri útúr vegg komum við í heiðskíruna. Logn var á toppnum, sól og tveggja stiga hiti.
    Færið var svo allgott að Fimmvörðuhálsi, þar er krapapyttur kominn í hvilftina norðan við efri skálann en auðvelt að krækja hjá honum. Við ókum svo til norðausturs inná feril sem ég fékk frá einum félaga vorum og svo sem leið lá suður Sólheimajökul. Þar er síðasta brekkan uppúr gilinu að skálanum eilítið þung, þannig að ef einhver ætlar þennan rúnt er líklega léttara að fara frá austri til vesturs og koma niður Hamragarðaheiðina.
    Vona að ykkur hafi ekki leiðst frásögn mín.

    Með sólskinsbrosi,
    Lalli og ferðafélagar





    22.04.2003 at 12:14 #472634
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sælir.

    Tóku menn track af þessari leið? Það væri gaman að fá afrit af henni.

    Sendið á eie@simnet.is ef þið eigið þessa leið á tölvutæku.

    Kveðja





    25.04.2003 at 13:15 #472636
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Sæll Lalli, þakka þér fyrir ferðalýsinguna. Ég ætlaði að fara á sömu slóðir en því miður þá komst ég ekki. Ég er með ferilinn frá Kattarnesi að Fimmvörðuhálsi en vantar ferilinn austur á Sólheimajökli, spurning er hvort þú hafir sent Eyjólfi ferilinn, ef svo er gætir þú eftirlátið mér hann líka á e-mail (valurs@lsh.is).

    Myndirnar frá þér eru mjög góðar en brekkan sem þú talar um, fer hún verstnandi með vorinum ?

    Kv. vals





    25.04.2003 at 14:17 #472638
    Profile photo of Hjörleifur Jóhannesson
    Hjörleifur Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 33
    • Svör: 209

    Sæll Valur.
    Búinn að senda þér trakkið. Brekkan erfiða er austast á Hamragarðaheiðinni. Sennilega er hún sunnan við Dagmálafjall (N63°37,7 W019°48,9), en gæti þó hafa færst eitthvað í hausnum á mér! Þetta er nánast það fyrsti snjórinn á leiðinni og er hún brattari en ella því lítill snjór hefur safnast í hvilftina neðanvið. Af sömu ástæðu er erfitt að velja aðra leið upp.
    Góða ferð.
    Lalli





    25.04.2003 at 14:19 #472640
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Ég fór yfir eyjafjallajökul annan í páskum. Ókum upp Hamragarðaheiðina í smá drullu og grjóti. Fyrstu brekkurnar með snjó eru erfiðar.
    ÞEGAR ÞIÐ KOMIÐ AÐ SNJÓBREKKUNUM FARIÐ ÞÁ LEIÐINA SEM ER LENGST TIL HÆGRI.
    Þar eru för sem liggja alveg upp. Fyrsti hluti brekkunnar þar er erfiðastur en þó fær. á leiðinni upp eftir mættum við 38" barbyum, trooper, patrol og fleirum sem komust ekki upp og snéru við. Þeir hljóta að hafa reynt við brekkurnar í miðju eða lengst til hægri. á jöklinum var gott færi, viðstöðulaus akstur á sæmilegum hraða í 3-5 psi. För liggja alveg yfir jökulinn svo auðvellt er að rata. Á Fimmvörðuhálsi var snjórinn blautur og drulla í veginum en engar erfiðar hindrannir. Lítið er í skógaánni og auðveldir bakkar. Við vorum á stuttum krúsa, 2x Hilux og Patrol. Allir á 38". Ef menn eru á öflugum jeppum eru illa munstruð dekk það eina sem gæti hindrað menn í að komast upp.

    Freyr





    25.04.2003 at 15:08 #472642
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll Lalli
    Er möguleiki að fá sent trackið frá Fimmvörðuhálsi og niður Sólheimajökul, það má líka vera allt trackið frá ferðinni.
    E-mailið er starengi@simnet.is.
    Með fyrirfram þökk.
    Bjarki





  • Author
    Replies
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.