FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Landsfundur/staðsetning

by Agnes Karen Sigurðardóttir

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Landsfundur/staðsetning

This topic contains 30 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson Halldór Gunnlaugur Hauksson 17 years, 8 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 11.09.2007 at 15:44 #200781
    Profile photo of Agnes Karen Sigurðardóttir
    Agnes Karen Sigurðardóttir
    Participant

    Sælir stjórnar og nefnarmenn.
    Okkur stendur til boða að halda landsfundinn að Illugastöðum í Fnjóskárdal.
    Nú er það spurning hvort við ættum ekki að breyta til og skella okkur norður. Og gera skemmtilega ferð úr þessu.

    kv
    Agnes Karen Sig.
    Formaður 4×4

  • Creator
    Topic
Viewing 10 replies - 21 through 30 (of 30 total)
← 1 2
  • Author
    Replies
  • 11.09.2007 at 22:53 #596536
    Profile photo of Hilmar Örn Smárason
    Hilmar Örn Smárason
    Participant
    • Umræður: 22
    • Svör: 493

    Var ekki einhver að minnast á að ..Afturhaldssekkir.. væru klúbbnum ekki til bóta, hér í öðrum þræði. Nú er kannski kjörið að rífa sig uppúr hjólfarinu sem liggur uppí Setur og prófa eitthvað nýtt.
    Það má alltaf prófa eitthvað nýtt og ef mönnum líkar það ekki má fara aftur ofaní sama gamla farið.

    kv. Hilmar Örn





    11.09.2007 at 23:17 #596538
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Í gær ritar formaður 4×4 hér á vefin að landsfundur verði haldin í Setrinu helgina 19-21 Oct eftir að spurning kom um það á vefnum . Núna er búið að breita þeim pistli, og taka út að fundurinn verði í Setrinu. Breitingar eru svosem ekki slæmar, en æskilegt að einhver aðdragandi sé að þeim, og ekki sé skipt um skoðun eins og vindhani skiptir um vindátt. Svona láglendisvæðing á starfi 4×4 er mér bara ekki að skapi.

    Hlynur





    11.09.2007 at 23:34 #596540
    Profile photo of Agnes Karen Sigurðardóttir
    Agnes Karen Sigurðardóttir
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 878

    I fyrri þræði var talað um að ekki væri alveg komið á hreint hvar fundurinn væri þannig að það er nú ekki alveg satt að setrið hafi verið komið inn 100%…..
    Illugastaðir eru búnir að vera inni ansi lengi hjá stjórn þar sem tekin var ákvörðun í júní að kanski væri tími til komin að gera eitthvað nýtt þar sem margir hafa kvartað yfir landsfundum í setrinu.
    Ég hélt að við ættum að horfa framávið og stefna áfram ekki sitja alltaf í sömu förum.
    Ef þetta floppar þá er bara að fara í gamla góða setrið að ári.

    kv
    Agnes Karen Sig
    Formaður





    12.09.2007 at 08:25 #596542
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    hver er munur á kostnði við að halda fundinn á Illugastöðum á móti Setrinu ?
    kveðja Lella





    12.09.2007 at 08:29 #596544
    Profile photo of Ólafur Hallgrímsson
    Ólafur Hallgrímsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 544

    Hlynur getur setið símafund úr Setrinu





    12.09.2007 at 12:18 #596546
    Profile photo of Víðir Lundi
    Víðir Lundi
    Participant
    • Umræður: 37
    • Svör: 325

    Illugastaðir er málið.Skil ekki að fólk geti verið svona mikið á móti því,það er alveg hægt að aka Norður í land það er engin einstefna á vegunum hingað sko:)En já í alvöru talað þá lítst mer mjög vel á þetta og held að fyrir vikið verði betri mæting allavega frá norðan og austan deildum á fundinn..

    Kv Víðir L
    Formaður Húsavíkurdeildar Ferðaklúbbsins 4×4





    12.09.2007 at 13:00 #596548
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Alveg ljóst hvað hér er að gerast, fyrst fer árshátíðin norður, svo landsfundur, deginum ljósara að Eyjafjarðardeild ætlar að gleypa móðurfélagið og flytja höfuðstöðvarnar norður! Ofsi og Grimmhildur verða flutt hreppaflutningum til Akureyrar.
    En að öllu gamni slepptu, hvaða væl er þetta. Dagskrá 4×4 er eins og gömul plata þar sem sami grautur er í sömu skál ár eftir ár. Mér hefði að vísu þótt meira spennandi að halda landsfundinn í Réttartorfu en líklega á mörkunum að sá frábæri skáli sé nægjanlega stór. Dreki væri rosalega flottur kostur, stór og glæsilegur skáli. En ég tek ofan fyrir hugrekki stjórnarinnar að reyna eitthvað nýtt. Þetta gefur góða afsökun til að taka sér frí á föstudeginum og renna norður Sprengisand eða jafnvel Kjöl og svo Eyfirðingaveg. Ef ekki verður kominn snjófylla í sneiðinginn í Hólafjalli er auðvitað upplagt að fara þar niður. Þetta verður ekkert nema flottur túr.
    Kv – Skúli
    P.s. Svo eiga auðvitað borgandi kúnnar að ganga fyrir í Setrinu ;o)





    12.09.2007 at 16:46 #596550
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Þar er Skúli búinn að afhjúpa leynilega plottið okkar í Eyjafjarðardeildinni 😉





    12.09.2007 at 17:34 #596552
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Helv… þetta var alveg að ganga upp hjá okkur Tryggvi, þú að stela stjórninni og ég árshátíðinni…
    En það er alveg ljóst að við hér í Eyjafjarðardeildinni erum stórhuga og ættlum okkur stóra hluti þar má nefna að til stendur að flytja m.a höfuðstöðvar 4×4 norður bara svo það komi fram kristal tært fram í eitt skipti fyriri öll. Það er komin góð reinsla núna á að sunnan menn valda þessu ekki og erum við hér að grípa í taumana áður en allt fer til fjandans.





    12.09.2007 at 22:00 #596554
    Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 553

    Ef ég gengi með hatt þá tæki ég ofan fyrir Agnesi að vilja, þora og breyta út af vananum. Ég tel bara gott mál að prufa þetta. Þá er allavega búið að reyna og þá verður bara farið með fundinn í Setrið að ári, eða eitthvað annað, ef þetta hentar ekki.
    kv,

    Halli Gulli
    Formaður Eyjafjarðardeildar

    ps. Við erum ekki að fara stela móðurfélaginu. Agnes heldur bara að það sé ekkert að gera í sveitinni. :-)





  • Author
    Replies
Viewing 10 replies - 21 through 30 (of 30 total)
← 1 2

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.