FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Landsfundur í Setrinu

by Bragi Þór Jónsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Landsfundur í Setrinu

This topic contains 18 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Bergur Pálsson Bergur Pálsson 12 years, 8 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 03.10.2012 at 21:30 #223159
    Profile photo of Bragi Þór Jónsson
    Bragi Þór Jónsson
    Participant

    Sælir, þetta er fyrirspurn til þeirra sem ætla á Landsfundinn úr Reykjavík.

    Við erum 2 vefnefndarmenn á einum jeppa og fýsir í að vita hvort menn ætli að hópa sig saman m.t.t. ferðatíma og leiðarvals?
    Okkur langar mjög svo að vera í samfloti með einhverjum sem færu seinnipartinn af stað (ca. á milli kl.15 og 17), annars erum við sveigjanlegir.

  • Creator
    Topic
Viewing 18 replies - 1 through 18 (of 18 total)
  • Author
    Replies
  • 03.10.2012 at 22:40 #758409
    Profile photo of Stefán Baldvinsson
    Stefán Baldvinsson
    Member
    • Umræður: 30
    • Svör: 490

    Sælir.
    Ef þið eruð eithvað mirkfælnir verð ég einhverstaðar á leiðinni eða kominn upp í Setur þannig að þið kallið bara og ég kem og sæki ykkur, fer í fyrra málið og ætla að vera lengi á leiðinni.
    Kv. Úlfurinn v/s Hjálparsveit.





    04.10.2012 at 10:41 #758411
    Profile photo of Bergur Pálsson
    Bergur Pálsson
    Participant
    • Umræður: 41
    • Svör: 307

    Hvort eru menn að fara Gljúfurleit eða Kerlingafjöll? Hef hug á að fara sömu leið og flestir fara.





    04.10.2012 at 11:17 #758413
    Profile photo of Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833
    Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833
    Keymaster
    • Umræður: 32
    • Svör: 604

    Við erum að stefna á að fara úr bænum um 17:30 og fara Kerlingarfjallaleið. Ég veit af fleirum sem ætla sömu leið, en starttíminn er eitthvað breytilegur.

    Kveðja,
    Hafliði





    04.10.2012 at 11:25 #758415
    Profile photo of Arnþór Þórðarson
    Arnþór Þórðarson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 83

    ég ætla að fara úr Reykjavík snemma á laugardagsmorgun. Get verið á bíl og tekið farþega. Eins væri ég til í far með öðrum. Áforma brottför kl. 0600 úr Reykjavík.
    kveðja,
    Arnþór s. 8201680.





    04.10.2012 at 20:58 #758417
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég hef hugsað mér að fara af stað á föstudeginum, líklegast seinnipartinn ef jeppinn leyfir. Það stefnir samt í augnablikinu í að mig gæti vantað far…

    Hefur einhver frétt af færðinni þarna innfrá?





    04.10.2012 at 23:44 #758419
    Profile photo of Matthías Sigbjörnsson
    Matthías Sigbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 99

    Verða menn ekki bara á rás 45. Sögur herma að það sé eitthver snjór á leiðinni svo eitthvað ætti að vera gaman hjá mönnum.





    05.10.2012 at 11:15 #758421
    Profile photo of Ragnar Magnússon
    Ragnar Magnússon
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 171

    [img:b7ljdfui]http://brunnur.vedur.is/athuganir/sjalfvirkar/setur/snd_1v.gif?[/img:b7ljdfui]





    05.10.2012 at 11:25 #758423
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Mér vitanlega er snjódýptarmælirinn í Setri bilaður þannig að þetta er kannski ekki alveg að marka. Höfum ætlað að reyna að fá hann í lag en ekki unnist tími til. L.





    05.10.2012 at 17:30 #758425
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Tja, mér þykja 3m af snjó hálf lygilegt…





    05.10.2012 at 20:41 #758427
    Profile photo of Kristján Hagalín Guðjónsson
    Kristján Hagalín Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 168
    • Svör: 1298

    Jæja, hvað er að frétta af svaðilförum á leið á Landsfund?





    05.10.2012 at 23:23 #758429
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Hėr í Setrinu eru menn að tínast inn. Gummi "steri" og Sveinbjörn voru að koma í hús og urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að geta fylgt förunum eftir okkur sem á undan voru komnir. Annars væru þeir sennilega rammvilltir einhversstaðar í Illahrauninu og sennilega fastir í einhverjum af þeim gríðarlegu sköflum sem þar eru. Ómar olíumálaráðherra er búinn að dæla olíunni af kálfinum og yfir í tankana hér í Setrinu og situr hér þessa stundina og kýlir vömbina af miklum móð og brosir allan hringinn, einhver var að tala um að binda mætti munnvikin á honum í slaufu fyrir aftan hnakka, svo sæll er hann. Stebbi, sem kom í gær og svaf hér einn í nótt kvartar stórum yfir því að engin hljóð séu hér í húsinu. Getur ekki einhver sem er á leið í Setrið komið með draugahljóð á spólu svo að kallinn geti sofið vært í nótt? Og vefnefndin situr yfir tölfunni,,,,, so what else is new????? Einar Sól kvartaði stórum yfir því að þurfa að vera á eftir skálanefndarMussoinum sem var með olíukálfinn í drætti. Sagði sem svo að hann hefði þurft að keyra í hægðum sínum á eftir andskotans Mussoinum og þyrfti að bóna Strumpinn á morgun. Og Rúnar var að opna sinn fræga lopasokk, sem eins og allir sem til þekkja vita að inniheldur mjöð nokkurn sem brennivín heitir. Hýrnar nokkuð yfir honum þessa stundina. Sögustund og hlátrasköll færast í aukana. L.





    06.10.2012 at 22:57 #758431
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Af landsfundi er það að frétta þessa stundina að fundurinn í dag gekk vel fyrir sig undir styrkri stjórn Björns Pálssonar úr Eyjafjarðardeild. Skipað var í umræðuhópa og hin ýmsu mál tekin fyrir í þeim hópum og skýrslur gefnar í lok fundar. Ýmsar athyglisverðar hugmyndir komu fram og voru færðar til bókar. Var fundi slitið um kl. hálf sex og tók þá við matargerð mikil og hófst borðhald um áttaleytið. Þessa stundina skála landsfundarfulltrúar, skiptast á sögum og syngja hástöfum undir taktföstum gítarleik Sveinbjarnar Halldórssonar sem lemur "saltfiskinn" af mikilli innlifun. Tónhæðir þátttakenda eru eitthvað á reiki en þó má greina einstaka lagstúf ef hlustað er grannt. Ekki er fyrirsèð þessa stundina hvenær menn ganga til náða en forsjálir skálanefndarmenn eru vel byrgir af magnyltöflum fyrir morgundaginn. L.





    07.10.2012 at 17:49 #758433
    Profile photo of Erlingur Harðarson
    Erlingur Harðarson
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 1668

    Þakka kærlega fyrir góðan fund, mat og aðrar veitingar.





    07.10.2012 at 18:32 #758435
    Profile photo of Björn Pálsson
    Björn Pálsson
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 527

    Við Eyfirðingar eru komnir heim til Akureyrar og þökkum fyrir góðan og gagnlegan fund.
    Fórum Sóleyjarhöfða og norður Kvíslaveituveg að Hallgrímsvörðu, þaðan í Laugarfell og ókum svo niður í Eyjafjarðardal.

    Bestu kveðjur að norðan
    Björn Pàlsson
    Gunnar Rúnarsson
    Elías Þorsteinsson
    Erlingur Harðarson
    Björn Jóhannsson





    08.10.2012 at 10:49 #758437
    Profile photo of Matthías Sigbjörnsson
    Matthías Sigbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 99

    Takk fyrir góðan fund, Mikið verk unnið og hlakkar mér til að sjá hvernig þessi vinna skilar sér í félgasstarfið. Skemmtilegur félagsskapur og gaman að kynnast aðeins nýjum félögum sem við hittum svo til fjalla.

    Besti kveðjur
    Matti





    08.10.2012 at 16:59 #758439
    Profile photo of Sveinbjörn Halldórsson
    Sveinbjörn Halldórsson
    Keymaster
    • Umræður: 87
    • Svör: 859

    Sælir og takk fyrir frábæran fund. Þetta ver virkilega vel heppnaður fundur og verður gaman að sjá niðurstöður af fundinum. Þetta var góður og vel samstilltur hópur sem sat sveittur allan laugardaginn í hópavinnu til að auka hróður og innra starf klúbbsins.

    Enn og aftur takk fyrir frábæra vinnuhelgi.

    Sveinbjörn
    R-043





    08.10.2012 at 23:41 #758441
    Profile photo of Þorleifur Olsen
    Þorleifur Olsen
    Member
    • Umræður: 7
    • Svör: 59

    Takk fyrir góða og gagnlegan fund og flottar veitingar , fóum Klakkinn og svo malbikið heim gekk bara vel.
    Kv Þorleifur Hornafjarðadeild





    09.10.2012 at 12:03 #758443
    Profile photo of Bergur Pálsson
    Bergur Pálsson
    Participant
    • Umræður: 41
    • Svör: 307

    Bergur og Bragi í vefnefnd þakka fyrir sig. Skálanefnd og stjórn brilleruðu þarna enn einusinni. Góð umræða, matur og allur viðgjörningur. Takk kærlega fyrir okkur, vonandi að við höfum lagt eitthvað í púkkið. Komum heim með margar góðar ábendingar f. vefinn.
    kv,
    Bergur og Bragi.





  • Author
    Replies
Viewing 18 replies - 1 through 18 (of 18 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.