Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › Landsfundur
This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Halldór Gunnlaugur Hauksson 17 years, 1 month ago.
-
CreatorTopic
-
22.10.2007 at 10:25 #201020
Ég veit ekki hvort ég á að þora að spyrja…
En hvernig var landsfundurinn?
Hvað var rætt?
Einhverjar tímamótahugmyndir sem komu þar fram? -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
22.10.2007 at 10:43 #600614
Jú heyrðu landsfundur fór bara alveg ágætlega fram að mínu mati. Ég bar víst ábyrgð á fundarritun og vélritaði einhverjar 10-11 bls sem ég á eftir að setjast yfir og reyna að vinna upp úr, taka saman og finna þessi "hot" atriði.
Dagskráin var kannski með óhefðbundnu sniði, rétt eins og staðurinn, enda ágætt að prófa nýja hluti og sjá hvort þeiri skili einhverju.
Það voru um það bil 55 þátttakendur, meirihlutinn frá deildunum um allt land og ég held að það hafi verið fulltrúar allra deilda nema Suðurnesja (forföll á síðustu mínútu) svo dekkunin var góð hvað landssvæði varðaði.
Uppsetningin var þannig að lögð voru inn tvö meginmálefni, annað fyrir hádegi og hitt eftir hádegi. Hópnum var skipt niður í 5 minni einingar og í hverjum var (fyrirframákveðinn) ritari sem svo kynnti niðurstöður umræðna í hópnum fyrir öllum.
Efnin voru annars vegar framtíð og stefna klúbbsins og hins vegar samskipti og hlutverk deilda. Náttúrulega mjög breið efni en gaman að sjá samt að efnistök hópanna voru svipuð og það var nokkuð mikill samhljómur í hugmyndunum sem fram komu.
Það er svo ábyrgð stjórnar að gera eitthvað með allt þetta góða input sem kom frá fundinum og náttúrulega fyrsta skrefið í því er auðvitað að setja þetta fram á skýran hátt.
Svo voru að hefð bilanir í bílum og þetta hefðbundna landsfundarbrölt en það telst nú varla fréttnæmt 😉
Ég vil þakka öllum sem komu og lögðu fram skoðanir sínar og afstöðu á málunum. Það er dýrmætt að geta fengið svona stóran og góðan hóp til að hjálpa til við hvernig eigi að taka á málum næstu misserin. Auðvitað voru ekki allir alveg sammála um allt en í stórum dráttum sýndust mér fundarmenn (og konur…) vera á einu um í hvaða átt ætti að fara. Nú er bara að stika út leiðina og komast svo af stað.
22.10.2007 at 11:27 #600616Það sem mér finnst standa upp úr eftir þennan fund er að ég held að við séum alltaf að færast nær því að líta á klúbbinn sem eina heild þó svo hann skiptist niður í deildir. Það voru þarna góðar pælingar um það hvernig við getum unnið betur saman og aukið samskiptin, ekki bara móðurfélagsins við deildirnar heldur líka deildir við móðurfélag og deildir sín á milli. Ekki svo að skilja að þetta sé eitthvað alveg nýtt, deildir á norð-austur horninu hafa t.d. átt gott samstarf og margt ágætt verið gert í þessu en ég held (vona) að þessi fundur hafi verið enn eitt lóð á þá vogarskál að minnka skil milli deilda og skil milli Rvk og landsbyggðar.
Fyrir utan þetta flugu ýmsar aðrar góðar hugmyndir þarna um ýmis málefni sem stjórnin getur metið og unnið úr, örugglega ekki allar sem verða að veruleika eða virka, en allavega hægt að spá í.
Mér fannst virka vel að vera annars staðar en í Setrinu, Setrið er staður sem maður er vanari að fara á sér til skemmtunar en að vinna. Ekki frá því að einbeitingin sé betri með því að fara í annað umhverfi.
Kv – Skúli
22.10.2007 at 11:51 #600618Ég vil þakka öllum sem mættu fyrir góðan fund.
Þarna komu margar góðar hugmyndir sem verður gott að nota.
kveðja.
Agnes Karen Sig
Formaður f4x4
22.10.2007 at 11:59 #600620þakka fyrir vel skipulagða helgi með fullt af meme og bleble og svo góðum mat, góðri skemtun og frábærum mannskap.
kveðja siggi
22.10.2007 at 12:31 #600622ég þakka fyrir góða helgi og þó að Setrið sé best þá var þetta ansi mikill munur á aðstöðu til fundarhalds og þið þarna sauðaþjófar og fyllibyttur í Skagafjarðardeild ég kom til að skúra og þá voru bara allir farnir, þannig að það þýðir ekkert að hruna því yfir mig að ég standi ekki við það sem ég segi.
Skál Lella
22.10.2007 at 13:41 #600624Þökkum fyrir góða helgi, þetta var mjög skemmtilegt, mun betri vinnuaðstaða fyrir þennan fjölda heldur en í Setrinu. Við mælum með Höfðabrekku næst.
kv. Óli og Sirrý
22.10.2007 at 16:24 #600626Halló og takk fyrir góða helgi.
Lella eins og ég sagði í húsi 31 kl 02:10 um skúringar, við eigum erfitt með að bíða eftir að sumir hunskist á lappir nefni enginn nöfn enda það trúnaðarmál sem fram fór í áðurnefndu húsi…Stjórn legg til að Lella verði ritskoðuð og þurkuð upp nei ég meina út….:-)
Ofsi (framsóknarmaður)
Þetta var nú bara helv skemmtileg helgi
kv Hilmar Formaður Skagafj.group
22.10.2007 at 16:46 #600628Svona til að taka af allan vafa þá eru þetta stjórnarmenn Skagafjarðar Group:
[img:laup8vuo]http://www.trigger.is/gallery2/d/177099-2/IMG_6338.jpg[/img:laup8vuo]
22.10.2007 at 18:18 #600630Þakkar fyrir góðan fund þrátt fyrir tímabundna fjarveru fundarstjórans sem kom ekki að sök.
22.10.2007 at 23:00 #600632Fínn fundur og að ég tel til mikils gagns. Gott mál að prufa annan fundarstað en vanalega. Agnes og stjórn 4×4 á hrós skilið fyrir að þora þessu. Nautalundirnar voru alveg fyrsta flokks.
Takk fyrir mig.
Halli Gulli
Eyjafjarðardeild
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.