This topic contains 0 replies, has 1 voice, and was last updated by Magnús Dan Bárðarson 17 years, 2 months ago.
-
Topic
-
Undirritaður og hans kona fóru inní Landmannalaugar um síðustu helgi í afbragðs ferðaveðri. Komum við inní laugar þegar nokkuð var liðið á föstudagskvöld .Snjór er all nokkur á leiðinni úr Hrauneyjum en mjög kaflaskipt hvar hann liggur og mis vindbarinn og er þó nokkur lausasnjór í jarðfallinu NA við Frostastaðaháls. Á laugardeginum löbbuðum við á skíðum upp í Hrafntinnusker og fengum við okkur kaffi þar og gengum síðan til baka niður í laugar á laugardeginum (hitaveitan í skálnanum í Hrafntinnuskeri virðist vera kominn á fullan damp).
Á laugardeginum bættust fleiri við og var allt til fyrirmyndar varðandi umgengni nema þeir sem gistu á loftinu fyrir ofan innganginn.Umgengni hjá þeim var ekki alveg nógu góð, ekki sópuð gólf eða þurrkað af borðum á svefnloftinu þar sem það fólk dvaldi hvað þá heldur að þrífa hluta af sameiginlegum hlutum hússins.Heil og sæl.
You must be logged in to reply to this topic.