FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Landgræðsluferð

by Jón G. Guðmundsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Landgræðsluferð

This topic contains 15 replies, has 8 voices, and was last updated by Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060 Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060 10 years, 11 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 27.05.2014 at 18:25 #768906
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant

    Hin árlega landgræðsluferð verður farin helgina 7-8 júní. (Hvítasunnuhelgina)
    Farið verður á svipaðar slóðir og undanfarin ár, Núpsstaðaskóg og Þórðarholt hjá Hekluskógum.
    Við náum áreiðanlega að kría út frítt tjaldstæði í Þjórsárdal eins og vanter.
    Skráning í ferðina verður komið á laggirnar von bráðar.

  • Creator
    Topic
Viewing 15 replies - 1 through 15 (of 15 total)
  • Author
    Replies
  • 30.05.2014 at 17:17 #769036
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Langtímaveðurspá segir að veðrið verði fínt, 10-14 stiga hiti yfir hádaginn, skýjað með köflum og þurrt.





    02.06.2014 at 12:09 #769108
    Profile photo of Bergur Pálsson
    Bergur Pálsson
    Participant
    • Umræður: 41
    • Svör: 307

    Skráning er hafin í ferðina. Sjá hér:
    https://old.f4x4.is/event/landgraedsluferd-umhverfisnefndar/

    Ferðartilhögun
    Farið er í Þjórsárdal, á sama svæði og í fyrra. Ferðin er 6. júní – 8. júní en fólki er í frjálst vald sett hvenær það kemur á svæðið en öll vinnan fer fram laugardaginn 7. júní. Þá er byrjað snemma dags og unnið vel fram að kaffileyti, eftir hádegi.

    Hvað þarf að hafa með, fyrir vinnuna?
    Það eina sem þarf að koma með með sér, vegna vinnunnar, er hanskar og góða skapið. Allt annað verður á staðnum í boði Hekluskóga og umhverfisnefndarinnar.

    Sund
    Eftir að vinnu lýkur fara þeir sem það vilja í sund í Árnesi. Sjá frekari upplýsingar um laugina hér:
    http://is.visiticeland.com/Leitarnidurstodur/Skodaferdathjonustu/arnes-swimming-pool

    Tjalsvæðið
    Þeir sem að taka þátt í ferðinni fá ókeypis tjaldstæði á tjaldstæðinu frábæra í Sandártungu (rétt norðan við brúna yfir Sandá, við Ásólfsstaði). Sjá frekari upplýsingar hér:
    http://www.tjalda.is/thjorsardalur/

    Grillveisla
    Um kvöldið, laugardag, er grillveisla í boði umhverfisnefndar.

    Það er mikilvægt að skrá sig þar sem við þurfum að áætla magn fyrir grillveisluna.

    Skráningarfrestur rennur út fimmtudagskvöld, 5. júní kl. 20:00.

    Landgræðslukveðja frá Umhverfisnefndinni





    02.06.2014 at 12:10 #769109
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Búið er að opna fyrir skráningu, Tjaldstæðið virðist vera klárt.
    Það er beygt til vinstri frá Þjórsárdalsvegi (nr 32) þegar ekið er norður eftir honum á 64°6,19’N og 19°57,07’W

    Viðhengi:
    1. Tjalda.jpg




    02.06.2014 at 12:18 #769111
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Þeir sem eru óklárir á GPS geta notað kílómetramælinn, aka 1,1Km áfram eftir að komið er framhjá afleggjaranum að Ásólfsstöðum, og beygja þá til vinstri.





    02.06.2014 at 13:49 #769124
    Profile photo of Bergur Pálsson
    Bergur Pálsson
    Participant
    • Umræður: 41
    • Svör: 307

    Krækjurnar hér fyrir ofan virka ekki í öllum vöfrum. Hér er útgáfa sem virkar betur:

    Sundlaugin í Árnesi:
    http://is.visiticeland.com/Leitarnidurstodur/Skodaferdathjonustu/arnes-swimming-pool

    Tjaldsvæðið í Þjórsárdal / Sandártungu:
    http://www.tjalda.is/thjorsardalur/





    03.06.2014 at 01:30 #769151
    Profile photo of Magnús Guðmundsson
    Magnús Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 141
    • Svör: 1565

    Af hverju er verið að flýta þessu svona mikið? Þetta hefur oftast verið í kringum Jónsmessuna.





    03.06.2014 at 10:34 #769166
    Profile photo of Sæbjörg Richardsdóttir
    Sæbjörg Richardsdóttir
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 127

    Sæll Magnús, Undanfarin ár hefur landgræðsluferðin verið farin fyrstu eða aðra helgina í júní. Þetta hefur verið gert í samráði við Hrein hjá Hekluskógum, þar sem þessi tími hentar betur til sáningar og uppgræðslu á svæðinu en seinnipartur júní. Fyrir einhverjum árum bauð Umhverfisnefnd uppá tvær ferðir í júní þ.e. eina landgræðsluferð í Þjórsárdalinn í upphafi júni og aðra um Jónsmessuna í Þórsmörk, þar sem skoðaðar voru afleiðingar gosins frá Eyjafjallajökli á uppgræðslusvæði í Merkurrana. En síðast þegar farið var um Jónsmessu í Þjórsárdalinn minnir mig að einhverjir hafi verið illa flugnabitnir eftir helgina :)





    04.06.2014 at 15:37 #769173
    Profile photo of Bergur Pálsson
    Bergur Pálsson
    Participant
    • Umræður: 41
    • Svör: 307

    http://www.vedur.is/vedur/spar/stadaspar/sudurland/





    04.06.2014 at 17:39 #769177
    Profile photo of Hjörtur Sævar Steinason
    Hjörtur Sævar Steinason
    Participant
    • Umræður: 89
    • Svör: 1242

    Gódan daginn,
    ég daud ofunda ykkur ad vera ad fara í landgradslu í svona gódu vedri. Spáin er 15º til 18ºc fram á sunnudag en svo er mánudagurinn eitthvad kaldari, en tad er nú bara betra svo madur nenni ad taka saman tjaldid. Ad stunda landgradslu er svo gefandi, ad sjá landid breitast fuglalífid blómgast og allt mikid bjartara tad gefur lífinu gildi. Yndisleikinn og fegurdin, allt verdur svo adladandi og fallegt. Fyrir utan ad fá fría gistingu alla helgina í svona gódu vedri tad aetti naeg hvatning til ad byrja útilegu sumarid. Svo endilega forum í landgradslu og komum brosandi heim, tad er svo yndislegt. Ég hvet alla sem vetlingi geta valdid og drífa sig af stad.
    Kvedja langt ad Hjortur og JAKINN.is





    04.06.2014 at 23:03 #769188
    Profile photo of Árni Bergsson
    Árni Bergsson
    Participant
    • Umræður: 9
    • Svör: 308

    Já sællllllll
    bara ofstopaveðublíða, reyndar einsog við er að búast hjá okkur. Getum þá séð sandinn breytast í gras :-)
    Ætla síðan á Sunnudeginum að fara í mörkina og heilsa uppá hústrukkakarlana.





    05.06.2014 at 04:44 #769190
    Profile photo of Magnús Guðmundsson
    Magnús Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 141
    • Svör: 1565

    Það hefði verið flott að komast með ykkur en því miður skemmir vinnan áhugamálið sem svo oft áður. Að gefnu tilefni þá vil ég minna á flugnanetið og afterbite kremið fyrir ykkur sem eruð svona með svona gæðablóð eins og ég og nokkrir aðrir fyrrverandi og núverandi þátttakendur. :)





    06.06.2014 at 13:28 #769217
    Profile photo of Bergur Pálsson
    Bergur Pálsson
    Participant
    • Umræður: 41
    • Svör: 307

    Dagskráin er nokkurnveginn svona:

    Föstudagskvöld 6. jún
    – Tjaldsvæðið opið og frítt fyrir þá sem taka þátt.

    Laugardagur 7. jún
    – Vinna hefst kl. 11. Keyrt frá tjaldsvæðinu rétt fyrir 11, á afleggjarann að Þórðarhöfða og keyrt þar inn á svæðið.
    – Sund eftir að vinnu lýkur, í Árnesi.
    – Grillveisla um kvöldið. Miðað við að ketið sé steikt um kl. 18

    Sunnudagur 8. jún
    – Frjáls aðferð. Sumir stefna á mörkina.





    06.06.2014 at 15:02 #769218
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Ætla ekki örugglega allir að mæta í bongóblíðuna í Þjórsárdalnum? Amk í landgræðsluvinnuna á morgun, laugardag? Þetta verður frábær dagur :-)





    08.06.2014 at 22:50 #769311
    Profile photo of Bergur Pálsson
    Bergur Pálsson
    Participant
    • Umræður: 41
    • Svör: 307

    Landgræðsluferð ferðaklúbbsins 2014 var farin helgina 7-8. júní.

    14 skráðu sig í ferðina. Veðrið var sól og blíða. 20 stiga hiti. Einhverjir gistu á tjaldsvæðinu í Sandártungu en aðrir létu duga að mæta í vinnuna kl. 11 á laugardagsmorningum.

    670 birkiplöntum var plantað, um 4 kg af birkifræið dreift og 700 kg. af áburði dreift.

    Síðdegis var slegið upp í grillveislu. Þetta var mjög ánægjuleg ferð á svæði þar sem má sjá mikinn árangur uppgræðslu.

    Myndir úr ferðinni má sjá með að smella hér.
    https://old.f4x4.is/myndasvaedi/2014-uppgraedsluferd-ferdaklubbsins-4×4/





    09.06.2014 at 12:29 #769352
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sælir.
    Frábærar myndir úr landgræðsluferðinni komnar á safnið okkar.
    Takk kærlega fyrir þetta.
    Kv. SBS.





  • Author
    Replies
Viewing 15 replies - 1 through 15 (of 15 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.