This topic contains 93 replies, has 1 voice, and was last updated by Dagur Bragason 17 years, 5 months ago.
-
CreatorTopic
-
06.06.2007 at 10:13 #200397
Er ekki flott að skrá sig núna?
Dagur ég kem með
Kv. Dúkkan
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
15.06.2007 at 13:35 #592090
auðvita verður þetta notað næstu 12 mánuði og marg tuggið og smjattað á þessu, reyndar erum við þegar byrjaðir að taka forskot á montið. Þannig að þið verðið að búa við þetta í 12 mánuði og 1 viku.
Þetta gæti allt eins farið eins og þegar við Hynur ofl björguðum Lúther frá bráðum bana hérna um árið við kamarinn í Setrinu, og er það enn notað á hátíðarstundum eða þegar þarf að klóra fram gamlar frægðarsögur til þess að toppa einhverja aðra monthana og vindbelgi.
15.06.2007 at 13:48 #592092Rétt að það komi fram hérna að til þess að njóta sérkjara umhverfisnefndar 4×4 á tjaldgjöldum hjá Útivist um Jónsmessuhelgina þarf að framvísa gildu félagsskírteini hjá 4×4. Eitt skírteini gildir fyrir fjölskylduna.
Kv – Skúli
15.06.2007 at 13:58 #592094Úff, þetta verður sjö ára ógæfa ef Rottugengið fær að toppa mætinguna.
Hjálp!!
15.06.2007 at 15:02 #592096Mér sýnist nú skeiðin vera skarpari en annað í skúffunni, því ég skil ekki þetta miðakerfi. Ef ég skildi allt í einu snemma á laugardagsmorgun langa í landgræðsluferð og bruna austur og leggja mig allan fram, strá og strita og mæta svo í grill sveittur og klístraður eftir allt framlagið. “nei engin miði ulla bara á þig“.
Væri ekki nær til að gera þetta manneskjulegra og afhenda miða þeim sem taka þátt í framtakinu á staðnum ef menn vilja yfir höfuð vera með miða.
En hitt er aftur á skiljanlegt að menn vilja koma í veg fyrir að fólk mæti í matinn án þess að haf tekið þátt í framlagi Klúbbsins eins og mörg dæmi eru um. Má meðal annars nefna framkvæmdir við Setrið á síðasta ári þar sem vissir aðilar mættu rétt fyrir mat á laugardag og voru farnir fljótt eftir að þeir vöknuðu daginn eftir.
Ég var ekki að staðnum en þetta var umræðan eftir sumarið.
kv. vals.
15.06.2007 at 15:09 #592098Nú hefði verið sniðugt að lesa aðeins hægar yfir innleggið hans Magga. 😉
Hann er einmitt að segja það að miðarnir verði afhentir á staðnum.
Hins vegar er það skiljanlegt að skráningar sé krafist þar sem við þurfum að kaupa matinn og ekki er það góður bísness að kaupa bara einhvern helling til að vera örugglega með nóg…Vona að ég sjái þig í Mörkinni enda duglegur maður á ferð.
Kv. Barbara Ósk
15.06.2007 at 15:25 #592100Barbara, það er ekkert gaman að þessu nema maður misskilji hæfileg mikið, ef ég skildi allt sem sagt væri hérna á vefnum þá mundi ég haga skrifum mínum allt öðruvísi.
kv. vals.
15.06.2007 at 19:20 #592102Ég vil minna fólk á að vera með félagsskírteini með sér og sýna til að fá þetta fína gistiverð sem formaður og nefndarmaður (Dagur) Umhverfisnefndar náðu samningum um við framkvæmdastjóra Útivistar en það er 550 kr. fyrir nóttina.
Kv. Barbara Ósk
P.s Valur, já, fyrrverandi manninum mínum fannst þetta líka með kröfuhörkuna. Ég verð eitthvað að taka mig á.
15.06.2007 at 23:02 #592104Ég verð nú að segja að mér finnst þessi þráður alveg stórskemmtilegur og með því betra sem hefur komið í lengri tíma. Hann lofar góðu fyrir ferðina.
—
Nú langar mig að koma með smá tillögu handa Barb og Vals. Valur þú gætir kannski hjálpað Barb með það sem á vantar í reiknikúnst hennar og í staðin gæti hún hjálpað þér … að skilja… innleggin á þræðinum og þær kröfur sem lagðar eru á lesandann. Maður má spöglera…
kv. Stef. ekki sú skarpasta.
15.06.2007 at 23:47 #592106En ætla samt inneftir vil bara ómögulega að klúbburinn borgi fyrir mig matinn ef ég slysast til að standa mig ekki
svo Gísli + 2 -3 = enginn en verð þar samt sjáumst í þórsmörk.
kv Lati Gísli
er kannski til í að styrkja klúbbinn um svipaða upphæð með bankamillifærslu "!!!!
16.06.2007 at 04:18 #592108Þarf maður núna að borga fyrir að fá að sá í Merkuranann,eða er þetta leiga á á grillinu sem þarf að borga,ég er að spögulera verður eitthver með rukkunarþjónustu við Lónið eða er hægt að fara inn í Þjóðlendurnar,Þórsmörk eða Goðaland á eignin vegum,hingað til hef ég ekki þurft að sýna nein skírteini í þessum ferðum,nema ökuskírteini ef sýsli hefur verið á flugi yfir svæðinu.
ég er ekki alls sáttur við þessar innheimtur á hinu og þessu,ég fæ ekki betur séð en að þetta sé til að fæla fólk frá mætingu,Ferðaklúbburinn 4×4 er ekki að stofna til ferða til gróða (eða hvað).
Þar fyrir utan held ég að Rotturnar séu bara í leit að eitthverju í staðin fyrir kamarinn sem skotinn var í eldivið í Árbúðum.
Hvað er í gangi í klúbbinum þegar rukkar þarf fyrir allt niður í rassþurkur,og samt er ársreikningurinn að skila um 16milj á síðasta rekstrarári.
En trúlega þá er hart á dalnum og ég legg til að hver og einn mæti með sinn mat og nesti,tjald og vindsængur góða skapið og sem sannir 4×4 félagar njótum lífsins og spörum klúbbnum útgjöldin af því að hafa okkur með.Klakinn sparsami
16.06.2007 at 05:47 #592110Hvað er í gangi?
Hingað til hafa einhverjar greiðslur verið algjört aukaatriði.
Ég var hvattur til að ná samningum við Útivist um tjaldgjöld og er það gjald Útivist innheimtir á staðnum fyrir að skaffa okkur aðstöðu.
Ekki er um aðrar gjaldtökur ræða, en okkar framlag til Landgræðslunar er okkar sjálfboða starf.
Þetta miðakerfi kom mér algjörlega á óvart og var ekki búið að fjalla um það í umhverfisnefndini, en sumir vilja hafa einhvern aga á hlutunum.
Vona að þetta skýri málið.
Kveðja Dagur
16.06.2007 at 17:56 #592112danni 1 fulordin 1 barn
16.06.2007 at 18:02 #592114Hermann Tor Jonsson 2 fullordnir og 1 barn.
17.06.2007 at 20:01 #592116Þar sem konan mín verður að sinna brauðstritinu og mætir ekki í Mörkina fyrr en eftir vinnu á laugardeginum, þarf ekki að gera ráð fyrir mér í mat, þar sem ég mun snæða með henni.
Kv. Kjartan
17.06.2007 at 21:29 #592118Hvaðan og hvenær veruð lagt af stað frá Reykjavík? Förum við öll sem hópur frá Reykjavík?
Ég og pabbi reynum að koma og reynum að vera búnir að borga félagskírtenið sem allra allra fyrst.
Kv.
Gunnar
17.06.2007 at 22:25 #592120Ég hafðu hugsað mér að fara af stað eftir vinnu á föstudag… svona um 7-8 leytið væri alveg til í að vera í samfloti með einhverjum.
.
Annars veit ég ekki hvort sé búið að plana að fara á einhverjum ákveðnum tíma?
.
Kv.
Óskar Andri
17.06.2007 at 23:58 #592122Reynir Rotta +3 fullorðnir og 1 barn.
Rottugengið
18.06.2007 at 21:46 #592124Skrá Stefán Baldvinsson og frú.
19.06.2007 at 00:59 #592126Gaman að sjá að Trúðarnir eru á lífi.. og eiga ennþá jeppa,
sem virka.
19.06.2007 at 11:29 #592128Þetta virðist ætla að vera hin fjölmennasta landgræðsluferð, sem er mjög gott. Núna eru komnir 78 fullorðnir og 22 börn. Ennþá sakna ég nokkurra en þið hafið tíma til að skrá ykkur fram á fimmtudqagskvöld.
Kveðjur Magnús G.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.