FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Landgræðsluferð 2007

by Barbara Ósk Ólafsdóttir

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Landgræðsluferð 2007

This topic contains 93 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Dagur Bragason Dagur Bragason 17 years, 11 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 06.06.2007 at 10:13 #200397
    Profile photo of Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Participant

    Er ekki flott að skrá sig núna?

    Dagur ég kem með

    Kv. Dúkkan

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 93 total)
1 2 … 5 →
  • Author
    Replies
  • 06.06.2007 at 21:36 #592010
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Til hagræðis er gott að gefa upp nafn, fjölda fullorðinna og fjölda barna 12 ára og yngri.

    1. Barbara 1-2 fullorðnir 1-2 börn.
    2. Dagur 1-2 fullorðnir
    3. Gundur 2 fullorðnir 2 börn
    4. Guðni Jón Stef 2 fullorðnir
    5. Einar Sól 1 fullorðinn
    6. Ómar Wítt 1 fullorðinn 1 barn
    7. Björn Hansson 2 fullorðnir 2 börn
    8. Magnús Guðmundsson 2 fullorðnir 3 börn
    9. Árni Bergs 2 fullorðnir ? börn
    10. Jón Ebbi Halldórsson 6 Rottugengið
    11. Óskar Andri V.Eiriksson 3 fullorðnir
    12. Kjartan Gunnsteinsson 2 fullorðnir 1 barn Rottugengið
    13. Bjarki Clausen 2 fullorðnir 2 börn
    14. Ásgeir og Olga 2 fullorðnir
    15. Gísli R-3072 2 fullorðnir
    16. Ofsi 2 fullorðnir og 1 unglingur Rottugengið
    17. Sæmundur 2 fullornir og 3 unglingar Rottuviðhengi
    18. Ægir Sævarsson 2 fullorðnir 1 barn
    19. Magni R Þorvaldsson 3 fullorðnir Rottugengið
    20. Soffía Snæland 2 fullornir og eitt barn Rottuviðhengi
    21. Jenni 2 fullornir og einn unglingur Rottuviðhengi
    22. Bjarni Ingibergsson 2 fullorðnir 1 barn
    23. Gunnar Hróðmarsson 4 fullorðnir
    24. Danni 1 fullorðinn 1 barn
    25. Hermann Þór Jónsson 2 fullorðnir 1 barn
    26. Jóhann Björgvinsson 2 fullorðnir 2 börn
    27. Jóhannes Steinólfsson 3 fullorðnir
    28. Reynir 3 fullorðnir 1 barn Rottugengið
    29. Sigurður Egill 1 fullorðinn 1 barn
    30. Stefán Baldvinsson 2 fullorðnir
    31. Vilhjálmur Freyr Jónsson 1 fullorðinn 2 börn
    32. Sigurbjörn Hannsson 4 fullorðnir
    33. Þórarinn Guðmundsson 2 fullorðnir 1 barn.
    34. Karl Sigurjónsson 3 fullorðnir
    35. Þórður Antonsson 2 fullorðnir 1 barn
    36. Ágúst Sigurjónsson 2 fullorðnir 1 barn
    37. Gunnar & Mæja 2 fullorðnir
    38. Gunnar jones 226 2 fullorðnir
    39. Stefania og 1 fullorðin.
    40. Hjalti Eggertsson Selfossi 2 fullorðnir 2 börn
    41. Guðgeir Veigar Hreggviðsson 2 fullorðnir 1 barn





    06.06.2007 at 22:38 #592012
    Profile photo of Gísli Þór Þorkelsson
    Gísli Þór Þorkelsson
    Participant
    • Umræður: 103
    • Svör: 1363

    Gísli Þór,Sif og Baldur.
    2 fullorðnir 1 barn





    06.06.2007 at 22:57 #592014
    Profile photo of Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 775

    Afhverju ertu búinn að setja heila fjölskyldustærð á mitt nafn???
    Veist þú eitthvað sem ég veit ekki?
    Ef svo er ekki þá er ég sennilega bara ein.

    Kv.





    07.06.2007 at 08:39 #592016
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Við í umhverfisnefndinni lítum það mjög illu auga ef gögn frá nefndinni eru dregin í efa, þannig að Barbara, þú verður bara að græja þetta með fjölskyldustærðina til í snatri þannig að hún passi við tölurnar frá Degi. Þú hefur rúmar tvær vikur.
    Kv – Skúli





    07.06.2007 at 18:02 #592018
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 1091

    Sælir félagar

    Hér kemur skráning:

    Guðmundur Guðmundsson + 1 fullorðinn +2 börn

    Guðni Jón Stefánsson + 1 fullorðinn

    kv gundur I og III





    08.06.2007 at 00:25 #592020
    Profile photo of Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 775

    Auglýsi hér með eftir manni með 1 til 2 börn til að uppfylla skilyrði Umhverfisnefndar fyrir þáttöku minni í Landgræðsluferðinni í Þórsmörk.
    Umsækjendur sendi mér tölvupóst fyrir ferð.

    Kv. Dúkkan





    08.06.2007 at 00:50 #592022
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Heppin ertu, ég sá að vinnumiðlunin Estonia s/009456-3459876 eða meil kgb@sláturhús5.kreml. var einmitt að auglýsa til leigu, vísitölu fjölskyldur á afsláttarkjörum. Hægt var að velja um ýmsar útgáfur af fjölskyldum. T,d stórfjölskyldur og fylgdu þá með afi og amma og þeir sem eru extra heppnir fá langafa og langömmu með í pakkanum. Svo má fá fjölskyldur að íslenskum sið. Fráskilinn karl með stúlku 10 ára og dreng 12 ára. Með þeim fylgir Patrol í meirihluta eigu Glittnis og skuldahali í líki hjólhýsis. Karlinn er drykkfeldur þrátt fyrir 5 meðferðir og gefur aldrei stefnuljós og bullar í gemsan undir stýri. Og kemur alltaf of seint í vinnuna og tekur ávalt út veikindadaganna. Ef þú getur ekki fundið neitt sem henta, þá á ég lítið notaða fjölskyldu sem þú gætir fengið lánaða. Þessi fjölskylda er létt á fóðrum enda hefur ekki verið mulið undir hana í gegnum tíðina og nægir oft að láta þau hafa kalda steina að sjúga ef þau fara eitthvað að kveina
    Ofsi semleysirvandamálinnogersnögguraðþví





    08.06.2007 at 02:23 #592024
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Mér finnst síðasta innlegg eiga skilið Sófariddarakross fyrir að vera tær snilld.
    kv. stef. ;->





    08.06.2007 at 12:53 #592026
    Profile photo of Björn Hansson
    Björn Hansson
    Participant
    • Umræður: 68
    • Svör: 248

    Eldri maður, kona, tvö börn 6 og 7 ára, stelpa og strákur ásamt Trooper með hala. Mættum á staðinn eins og síðast.





    08.06.2007 at 19:29 #592028
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Samningur hefur náðst við Útivist um afslátt af tjaldgjöldum í Básum um Jónsmessuhelgina.
    Formaður og ritari umhverfisnefndar F4x4 lögðu hart að framkvæmdastjóra Útivistar í þessu máli.
    Mikil áhersla var lögð á að þetta er ferð sjálfboðaliða í landgræðslu að fegra ásýnd Merkurinnar.
    Framkvæmdastjóri Útivistar brást vel við þessari málaleitan og bauð verulegan afslátt af tjaldgjöldum.
    Félagar og sjálfboðaliðar í landgræðsluferð F4x4 þurfa því aðeins að greiða 550 kr fyrir nóttina, eða það sama og félagsmenn Útivistar.





    08.06.2007 at 20:20 #592030
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Það er ekkert að maka þetta hjá þér Dagur, ég heyrði því fleygt að framkvæmdarstjóri útivistar hefði verið kominn í deilur við formann Samút, sem var studdur af formanni umhverfisnefnda 4×4 og fulltrúa 4×4 í Vatnajökulsþjóðgarði suður. Á sama tíma lýsti fyrrverandi formaður 4×4 Skúli H Skúlason yfir hlutleysi í þessu máli, sem mér finnst nú aulalegt því hann á í fullu té við framkvæmdarstjóra Útivistar, sem er ekki einu sinni skugginn af formanninum frekar er formanni umhverfisnefndar, en flottastur er þó formaður Samút að öðrum gæðingum ólöstuðum.
    Þannig að ég myndir taka með mér auka pening, ef þetta skyldu vera svik og prettir





    08.06.2007 at 22:18 #592032
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Blessaður vertu Jón að messa yfir okkur, en ég sakna enn söfnuðar Rottugengisins í skráninguna, en sú var tíðin að Jónsmessufarar voru að stórum hluta Rottur, hvattar af Ofsa í ferðina og jafnvel skráðar og greitt fyrir af sama manni.
    Semsagt félagar og vinir þínir eru tilbúnir að mæta og taka þátt í starfinu á meðan sjálfur situr heima.
    Vertu velkominn með í starfið.
    Kveðja Dagur





    09.06.2007 at 17:06 #592034
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Við þetta má bæta að Vesturlandsdeildin kom löngum gríðarlega sterk hér inn. Skora á þá ágætu félaga sem þar eru að standa undir merkjum og væntingum.
    Kv – Skúli (almennur félagsmaður nr. R2407)





    09.06.2007 at 19:58 #592036
    Profile photo of Magnús Guðmundsson
    Magnús Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 141
    • Svör: 1565

    Á messunni skal mæta hér,
    í Mörkina að vana,
    sá og planta og skemmta sér,
    skal þó að engu flana.
    –
    Karl og kerling og þeirra lið,
    kjósa þar að vera,
    kannast kanski margir við,
    hvern þar er að bera.

    Bkv.
    Magnús G.





    09.06.2007 at 23:44 #592038
    Profile photo of Árni Bergsson
    Árni Bergsson
    Participant
    • Umræður: 9
    • Svör: 308

    Í Básum er mikið skjól
    eiginlega alltaf mikil sól
    drekk þar mikið alkahól
    haga mér einsog mikið fatlafól.
    —–

    Bregð ég útaf vananum
    sái vel á rananum.
    keyri þangað á Broncoinum
    uni vel hjá meyjunum.
    —–

    best að hætta áður en einhver sér þetta.
    —-

    1 fullur orðinn
    1 fullorðin
    eitthvað af krökkum
    bk.
    A.Bergs





    10.06.2007 at 15:03 #592040
    Profile photo of Jón Ebbi Halldórsson
    Jón Ebbi Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 10
    • Svör: 146

    Við Sólveig mætum með 4 unga sveina okkur til halds og trausts.

    Kv.

    Jón Ebbi.





    10.06.2007 at 15:22 #592042
    Profile photo of Jón Ebbi Halldórsson
    Jón Ebbi Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 10
    • Svör: 146

    Ég sé Dagur að þú notar orðið "söfnuður" um okkar heillum horfna gengi.

    En þér til fróðleiks, ertu ekki fyrstur til þess. Því fyrir mart löngu, á gullaldarárum gengisins, kallaði vert í niðurnýddum héraðsskóla vestur á fjörðum, okkur sértrúarsöfnuð.

    Rökstuðningur hans, fyrir þeirri nafngift, var helst sú árátta okkar að matast í hóp.

    Mætti því með sömu rökum halda því fram að landgræðsluhópurinn sé hálfgerður sértrúarsöfnuður.

    En talandi um dapra mætinu, trúi ég ekki öðru en félagarnir skili sér í einhverjum mæli, enda ekki gengnir af trúnni það ég best veit.

    Kv.

    Jón Ebbi.





    11.06.2007 at 11:52 #592044
    Profile photo of Óskar Andri Víðisson
    Óskar Andri Víðisson
    Participant
    • Umræður: 51
    • Svör: 778

    Dagur, ég sendi þér E-mail á föstudaginn en ég sé að ég er ekki kominn á listan, getur verið að E-mailið hafi ekki skilað sér??
    .
    Ég kem plús tveir fullorðinir….
    .
    Kv.
    Óskar Andri
    R-3237





    11.06.2007 at 16:05 #592046
    Profile photo of Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 775

    Þakka viðleitnina en verð að segja þér að því miður varð þetta ekki svona "þau lifðu hamingjusöm til æviloka" dæmi.
    Ég hringdi í þessa miðlun og tókst á endanum með miklu harðfylgi að fá mannandsk… sem svaraði til að skilja hvað mig vantaði að ég hélt. Því miður er enskukunnáttan þarna ekki til fyrirmyndar. Lengi vel hélt maðurinn að ég hefði eikki heiðarlegt mjöl í pokahorninu og reyndi að selja mér eistneskan gigolo á ofurprís.
    Loks skildi maðurinn að mig vantaði fjölskyldu á leigu til einnar helgi, þ.e. mann og eitt til tvö börn (ég gaf þó að minnsta kosti val). Loks gaf hann mér upp nafn á einhverjum manni sem ég ekki get borið fram nafnið á og símanúmer. Ég hringdi í manninn og komst að því að hann talaði ekki stakt orð í ensku. Þá voru góð ráð dýr en ég dó ekki ráðalaus og hringdi aftur í skrifstofuna og fékk manninn þar til að túlka fyrir mig.
    Til að gera mjög langa sögu stutta þá var mér allri lokið þegar niðurstaðan var orðin sú að ég ætti að borga morð fjár fyrir leigu á þessari fjölskyldu og í ofanálag vildi mannfýlan ekki samþykkja ferðina nema hann fengi að keyra Mikka ref.
    Ég bað mannin vel að lifa, Mikka keyrir enginn nema ég og hananú.
    Ég eyddi þarna meira en hálfum degi í símanum til Eistlands, kostnaðurinn fer að slaga upp í helgarferð til London og ekkert kom út úr þessu.
    Nei, svona aðstoð þiggur maður ekki að órannsökuðu máli aftur
    Kveðja, Dúkkan





    11.06.2007 at 16:20 #592048
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Barbara ertu ekkert búin að sofa síðan í nótt !!

    kv. vals.
    Es. fyrir þá sem ekki vita þá var hún að skríða heim rúmlega 5 í nótt eftir Hekluferð með 5tinda menn.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 93 total)
1 2 … 5 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.