FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Landgræðsluferð

by Dagur Bragason

Forsíða › Forums › Spjallið › Umhverfismál › Landgræðsluferð

This topic contains 25 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Skúli Haukur Skúlason Skúli Haukur Skúlason 18 years, 12 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 17.06.2006 at 07:56 #198106
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant

    Landgræðsluferð í Þórsmörk 24. júní
    Helgina 24. júní verður farin hin árlega landgræðsluferð Ferðklúbbsins 4×4 í Þórsmörk. Tjaldstæði hafa verið tekin frá í Strákagili í Básum á Goðalandi.
    Skipulögð dagskrá hefst klukkan eitt laugardaginn 24. júní, þegar safnast verður saman við Álfakirkjuna gegnt Langadal. Þaðan mun Guðjón Magnússon kynningarfulltrúi Landgræðslunnar leiða hópinn norður yfir Krossá á Merkurranann þar sem unnið hefur verið að uppgræðslu í samvinnu Ferðaklúbbsins og Landgræðslunnar í um það bil áratug.
    Í þetta sinn verður plantað birkiplöntum auk þess að dreifa áburði eftir þörfum. Starf klúbbsins hefur borið mikinn árangur og það er ánægjulegt að sjá hversu gróðri á Merkurrananum fer fram, ár frá ári. Myndir úr fyrri ferðum eru á vefsíðu Umhverfisnefndar http://um44.klaki.net.
    Markmiðið er að börn og fullorðnir eigi góða stund saman og um kvöldið verður sameiginleg máltíð í boði klúbbsins. Vegna undirbúnings og innkaupa þurfa menn að skrá sig í ferðina. Skráningar þurfa að berast ekki seinna en fimmtudaginn 22 júní

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 25 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 18.06.2006 at 11:18 #554756
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Minna menn á að skrá sig í Landgræðsluferðina, því fyrr því betra. Þið sem eru þegar búnir að taka þá skynsamlegu ákvörðun að mæta endilega sendið póst á Dag og þið hin sem ekki hafa þegar tekið ákvörðun þá vil ég benda á að þetta eru alltaf mjög góðar ferðir. Gaman að taka þátt í uppgræðslunni þarna á Merkurrananum og Guðjón frá Landgræðslunni gerir þetta mjög skemmtilega.
    Kv. – Skúli





    18.06.2006 at 11:21 #554758
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    og er ekki svo svakalegur varðeldur söngur og spil hjá Útivist um kvöldið. Sem við getur troðið okkur inn á eða hvað Skúli





    18.06.2006 at 11:36 #554760
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Já verður maður ekki að skella sér og pota niður nokkrum plöntum.
    Er búið að ákveða hvenær á að leggja af stað?





    18.06.2006 at 11:50 #554762
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Það er einfaldlega mæting við Álfakirkjuna kl. 13 á laugardag. Sumir fara á föstudagskvöldið og koma upp tjöldum (í Strákagili), aðrir laugardagsmorgun, en málið er að vera komin fyrir kl. 13. Svo býður klúbburinn upp á grillmáltíð um kvöldið. Að henni lokinni er hægt að skella sér á kvöldvöku og varðeldinn hjá Útivist.
    Kv – Skúli





    18.06.2006 at 22:14 #554764
    Profile photo of Örn Gunnarsson
    Örn Gunnarsson
    Member
    • Umræður: 9
    • Svör: 158

    Sælir

    Er ekki í lagi fyrir okkur að austan sem erum nú fyrir sunnan að koma með og leggja hönd á plóginn?

    Örn.G U192





    18.06.2006 at 22:25 #554766
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Það eru allir velkomnir, bara að skrá sig til að við vitum hvað margir ætla að mæta.





    19.06.2006 at 12:01 #554768
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Það væri frábært að fá að vera í samfloti við einhvern á laugardagsmorgninum þar sem ég er sennilega eini maðurinn í öllum heiminum sem hef aldrei komið í Þórsmörk. Það hlýtur að verða góð mæting fyrst svona fáir eru búnir að skrá sig í vinnu í torfærunni 😉





    19.06.2006 at 19:05 #554770
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Það er alltaf mikil traffík á Jónsmessu í þórsmörk.
    260 manns eru skráðir í göngu útivistar yfir fimmvörðuháls, síðan f4x4 og eftir eru austurleið og aðilar á vegum ferðafélags Íslands.
    Bara að fylgjast með öðrum yfir árnar og fara varlega, í Bása hjá Útivist.
    þú þarft ekki að fara yfir Krossá.
    Einnig er mjög líklegt að þú náir sambandi við f4x4 félaga með VHF.
    Kveðja Dagur





    19.06.2006 at 23:53 #554772
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Jú örugglega mikil traffík. Annars sýndist mér á fundinum áðan var orðin einhver samþjöppun um 18:00 á föstudeginum við hið fræga Select. Öruggar heimildir sögðu mér að það væri alveg óhætt að eyða meira en sólarhring þarna 😉
    Hvað tókst að skrá marga á fundinum áðan?

    Sjáumst um helgina.





    20.06.2006 at 00:00 #554774
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Það voru 9 skráðir á fundinum bæði þeir sem voru mættir og aðrir sem voru fjarverandi, eða samtals um 20 skráðir í Jónsmessuferðina.





    20.06.2006 at 00:14 #554776
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Ég ætla að skella mér í ferðina en ætla ekki að tjalda inni í mörk. Reikna frekar með því að fara með Fellihýsið á föstudeginum og planta því á einhverju góðu tjaldsvæði í nágrenninu og keyra innúr á laugardegi og svo til baka eftir kvöldvöku.

    Ég fer á föstudegi þannig að ef einhver er í svipuðum hugleiðingum þá er bara að hafa samband.

    Benni





    20.06.2006 at 00:17 #554778
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Einhverjir ætluðu að hittast á Select kl 18 á föstudaginn og verða samferða þaðan í Mörkina





    20.06.2006 at 08:00 #554780
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það er mjög góð veðurspá fyrir helgina. Endilega að skella sér í Mörkina. Þórsmörk stendur alltaf fyrir sínu, og þegar við bætist frábær leiðsögn, skemmtilegur félagsskapur og góður matur, þá gerist það ekki betra. Því miður kemst ég ekki í þetta skipti en ég veit að þetta verður frábært.

    -Einar





    20.06.2006 at 13:49 #554782
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Nú eru 24 fullornir og 16 börn skráð í ferðina
    kveðja Dagur





    20.06.2006 at 22:23 #554784
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þetta er allt að koma og stefnir greinilega í góða ferð. Frábært að vera í veðurblíðu á Merkurrananum í uppgræðslustörfum og Guðjón Landgræðslumaður sér til þess að verkefni eru fyrir alla fjölskyldumeðlimi. Síðan er þessi líka fína grillsteik í boði klúbbsins laugardagskvöld. Útivist sér svo um hörkustemningu við varðeldinn um kvöldið og heyrist mér að það verði einir 7 eða 8 spilarar sem spili undir söng. Varðeldurinn hefst kl. 9.30 stundvíslega. Semsagt í boði eru Básar eins og þeir gerast bestir.
    Af því einhver spurði þá er alveg á hreinu að allir félagar klúbbsins eru velkomnir, hvaða deild sem þeir tilheyra. Vesturlandsdeildinn hefur oft verið drjúg í mætingu í þessa ferð, hvar eru Skagamenn núna?
    Kv – Skúli





    21.06.2006 at 22:38 #554786
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Eftir að hafa plantað nokkrum birkiplöntum er grill í boði klúbbsins og eftir það er kvöldvaka hjá Útivist.
    Það er alltaf varðeldur og er það mjög vinsælt hjá krökkunum
    [img:fxxwbuqi]http://www.f4x4.is/new/files/photo/?file=files/photoalbums/3929/32491.jpg[/img:fxxwbuqi]

    En sumir eru heldur nálægt.

    [img:fxxwbuqi]http://www.f4x4.is/new/files/photo/?file=files/photoalbums/3929/32490.jpg[/img:fxxwbuqi]

    Kveðja Dagur





    21.06.2006 at 23:00 #554788
    Profile photo of Albert Sigurðsson
    Albert Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 51
    • Svör: 257

    Ég verð á ferðinni, en fer eftir vinnu á Laugardag,
    er hópur með mér en þeir verða á undan mér,
    Er engin af suðurnesjum með eða hvar eru allir,..!

    kv. ö-1235 – Alli





    22.06.2006 at 16:47 #554790
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Nú eru 46 fullornir og 22 börn skráð í Landgræðsluferðina.

    Kveðja Dagur





    22.06.2006 at 18:10 #554792
    Profile photo of Sigurður Magnússon
    Sigurður Magnússon
    Member
    • Umræður: 48
    • Svör: 705

    Sæll Dagur,

    þér er velkomið að nota myndir úr myndasafni mínu – en mér þykir sjálfsagt að þú létir þess getið hvaðan myndirnar eru.

    Ég vonast til að komast – að lágmarki til að dreifa áburði – þetta var ljómandi góð skemmtun í fyrra.

    kv. Siggi





    22.06.2006 at 19:15 #554794
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Sæll Siggi, ef þú berð myndina frá mér og þína mynd saman þá er þor næstum alveg eins, enda sátu við nokkur saman við varðeldin í fyrra, og tóku myndir af krökkunum.
    kveðja Dagur





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 25 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.