Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Landcruiser 70 2007
This topic contains 21 replies, has 1 voice, and was last updated by Brynjólfur Árni Gunnarsson 17 years, 6 months ago.
-
CreatorTopic
-
02.05.2007 at 13:36 #200246
Skyldi þessi koma til Íslands ? lc70 Landcruiser 76 Wagon
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
02.05.2007 at 13:38 #590162
Ég hef einmitt fylgst svolítið með þessum bílum…
þeir koma fljótlega með sömu vél og LandCruiser 200 held ég hann heiti, v8 disel, twinturbo..
það sem meira er, þeir uppfylla mengunarkröfur evrópu og er því ekkert því til fyristöðu skilst mér að flytja þá hingað.
02.05.2007 at 14:28 #590164En hvað með FJ Cruserinn, er eitthvað af honum kominn á klakann [url=http://www.toyota.com/fjcruiser/index.html:13izhfza][b:13izhfza]myndasafn af FJ Crusernum[/b:13izhfza][/url:13izhfza]
kv. vals.
02.05.2007 at 16:27 #590166Þetta ætti að geta verið sniðugur vagn en það sem mér finnst um hann svona við fyrstu sýn er að hann er allt of líkur Galloper
Kv, Óli
02.05.2007 at 16:44 #590168Alveg Sammála þér Ólafur… ég hélt þetta væri Galloper í Austurtjalds make over… Ekki mjög flott útgáfa. En það skemmir víst ekki fyrir sumum.
kv
gunnar
02.05.2007 at 17:31 #590170Er þessi bíll með hásingu að framan ?
kv
A
02.05.2007 at 17:32 #590172ég sá einn svona fj cruser á götunni um helgina. einlitur svartur með svartar rúður, það fór honum nokkuð vel.
02.05.2007 at 17:47 #590174Held þetta verði mjög verklegur jeppi þegar flottir 44" brettakanntar er komnir á hann! eða 46" ef hann er v8 twinturbo disel! "430Nm from 1200rpm to 3200rpm." Það er ekki slæmt að fá 430 í tog við 1200snúninga.
02.05.2007 at 18:32 #590176Gegnumgangandi í dómum bílablaða um FJ krúserin er að það er eins og að horfa út úr skriðdreka. Maður sér EKKERT!
Alltof þykkir gluggapóstar of of litlar afturrúður.
02.05.2007 at 19:17 #59017802.05.2007 at 19:23 #590180svo er bara að vona að þeir drullist til að gera hann með stýrið réttumegin 😛
02.05.2007 at 19:31 #590182Þeir höfðu allaveg vit á að setja á hann fjórar hurðir í þetta sinn en framendin er í besta falli litlaus og jafnvel ef menn vilja vera dómharðir, ljótur. Örugglega sterkur og endingargóður jálkur eins og þessir bílar hafa alltaf verið.
03.05.2007 at 08:58 #590184Koma væntanlega með sömu 8" hásingunni og allir krúserar hafa haft síðan 1989. Alltaf spurning hvort rétt sé að kalla það "heila" hásingu.
Verð nú að viðurkenna að framendinn venst alveg þokkalega. Vélin er hinsvegar eiginlega bara fyndið kraflaus á nútíma mælikvarða. 4.5 lítra v8 diesel með afli á við 3.0 litra vél…. Toyota menn hafa greinilega verið mjög hóværir í tjúnningunni þarna. Sennilega gert til að endast þessa venjulegu milljón kílómetra. Þýðir reyndar að það ætti að vera hægt að taka helling í viðbót út úr maskínunni. Verður gaman að sjá hvað þeir taka út úr henni í arftaka 100 línunnar, sem er víst að koma á markaðinn á næstu mánuðum.
Svo virðist sem þeir hafi með öllu gleymt að breikka afturhásinguna til móts við framhásinguna, og hún var allt, allt of mjó fyrir (enda bílinn frekar valtur, hár og mjór).
kv
R.
03.05.2007 at 09:02 #590186Mér sýnist þeir nota sama mælaborðið og var í þessum LCum 1986 (og það var hægt að fá þá með stýrið réttu megin) Toyota menn greinilega ekki mikið fyrir nýjungar í útliti og bíllinn hefur sáralítið breyst sýðan þá heldur nema kannski að hann hefur tekið tekið á sig útlit Galloper og Galloper skildur MMC og það er nú eðlilegt að menn sæki andan þangað
Kv, Óli
03.05.2007 at 13:10 #590188Ég talaði við Toyota og þessir bílar koma ekki hingað, ekki ætlaðir fyrir evrópumarkað er mér sagt.
þannig fór um sjóferð þá….
03.05.2007 at 13:36 #590190Það verður væntanlega sama með þessa og þá gömlu (og t.d. 105 bílinn), það verður hægt að fá þá gegnum fyrirtæki í t.d. Þýskalandi sem kaupa á, breita þeim til að þeir standis evrópskar kröfur og selja aftur í Evrópu. En þannig eru þeir væntanlega frekar dýrir. En verðlagning á cruser hefur nú svo sem aldrei staðið í heittrúuðum Toyota mönnum.
03.05.2007 at 22:23 #590192Rúnar:
Twin Turbo 200kW(268hp og 680Nm)
03.05.2007 at 23:33 #590194
06.05.2007 at 10:18 #590196Hásingarnar eru breiðari
"Other mechanical changes to the range include a wider track, revised suspension and improved steering feel."
06.05.2007 at 16:55 #590198Ég fer eins og fleiri stundum niður á Kanarí og þar sér maður þessa bíla. Nú eru eyjarnar hluti af ríki Spánarkonungs og því teljast þær til Evrópusambandsins þannig lagað séð. Dálítið magnað ef Brussell – regluverkið virkar síður þar en hér á skerinu. Varðandi sporvídd, ég hef nú ekki mikið vit á þessu, en gæti mismunandi sporvídd tengst eitthvað öðruvísi felgum?
07.05.2007 at 10:32 #590200Að segja ykkur þetta…
en það virðist sem það koma 2 útgáfur af þessari nýju v8 diesel vél frá Toy…
Twin turbo mun koma í kc 200 bílnum nýja… en í lc 70 týpunni verður bara ein túrbína og mun því skila eins og greinin hér fyrir ofan segir
Toyota’s first turbo-diesel V8 engine meets the Euro IV emissions standard and produces 151kW at 3400rpm and 430Nm from 1200rpm to 3200rpm
jæja strákar þá er bara fara að safna 10 millum fyrir þessum bíl… Það margborgar sig.
kv
gunnar
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.