This topic contains 1 reply, has 1 voice, and was last updated by Gísli Gíslason 20 years, 7 months ago.
-
Topic
-
Sælir félagar, ég er að fara ásamt félögum á Kverkfjallasvæðið seinni hluta vikunnar og vantar nýlegt trakk frá Kverkfjallahryggnum að skálanum, niður Bröttufön og að Sigurðarskála. Einnig vantar mér trakk frá Hveragili, yfir Kreppu og upp á Brúárjökul.
Þetta verður ekkert mál ef skyggnið verður gott en ef við verðum óheppnir með veður væri traustvekjandi að hafa trakk til að fara eftir. Við erum bæði með tölvur og GPS-tæki en vantar trakkið. Það er trakk að finna á heimasíðunni en það er frá 1995 eða þar um bil og ég veit ekki hvort hægt er að treysta því.
Ef einhver vildi aumka sér yfir mig þá væri það vel þegið ef sá hin sami sendi mér það á e-mail-ið mitt, sem er:
Með fyrir fram þökk ,
kv. vals.
R-3117
You must be logged in to reply to this topic.