Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › Kvennaferðin-orðið fullt!
This topic contains 34 replies, has 1 voice, and was last updated by Inga Dröfn Jónsdóttir 19 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
07.02.2006 at 22:12 #197264
Þá er orðið fullt í kvennaferðina og nokkrar komnar á biðlista. Gott væri að þær sem eru ekki komnar með tvo farþega, en skráðu tvo, haldi sig við einn því með þvi móti geta allir bílar komið með. Við viljum jú að sem flestar konur fái reynslu í því að aka á fjöllum og eftir því sem fleiri bílar eru uppteknir í kvennaferð þeim mun minni líkur á að það séu einhverjir kallar að þvælast fyrir okkur á fjöllum 😉
Kær kveðja
Undirbúningshópurinn -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
07.02.2006 at 22:24 #541974
… Sem betur fer erum við ekki allir svo kúgaðir að við verðum að lána bílinn okkar í svona ferð…
Þannig eru yfirgnæfandi líkur á að ég verði á ferðinni um þessa helgi og þú veist símann minn ef ykkur vantar aðstoð……
Benni
07.02.2006 at 22:30 #541976In your wildest dream…..
07.02.2006 at 23:28 #541978STRÁKAR STRÁKAR !!!!!!
Nú er lag.. allar læsingarnar sem ykkur langar svo í, allir kastararnir, spilið sem er sem hannað framaná fjallabílinn þinn og véladópið sem þig hefur dreymt um að kaupa svo lengi,.,.,. en ekki fengið leyfi til að kaupa..
Sendið konuna ykkar í KVENNAFERÐIN og hún kemur til baka BYÐJANDI um læsingar, meiri power og allskonar auka dót.
08.02.2006 at 18:38 #541980Þær sem hafa skráð sig eru…
Aldís ford 49 t.
Agnes Patrol 38 t.
Nína Sif Trooper 38 t.
Ragga Discoveri 38 t.
Solla Toyota 44 t.
Lína Rance Rover 38 t.
Guðrún Rut Patrol 44 t.
Ella Patrol 44 t.
Magga Toyota Lc 38 t.
Linda Toyota 38 t.
Þóra Patrol 38 t.
Sigríður María Scout 38 t.
Tinna Toyota 38 t.
Halldóra Toyota Tacoma 38 t.
Soffía Toyota Tacoma 38 t.
Guðrún Toyota Tacoma 38 t.
Anna Toyota Tacoma 38t.
Stína Patrol 44 t.
Hrefna Cheroke 38 t.
Bryndís Toyota 38 t.
Sigurrós Toyota Lc 38 t. Hætt við
María Landcruser 39,5 t.
Á biðlista.
Kristín Bj Patrol 38 t. komin inn….
Nína Patrol 38 t. komin inn…
Bryndís Theod Toyota Lc 38 t.
Inga Dröfn Landcruser 44.
kv
Nefndin
Email hjá nefndini er kvennaferd(hjá)f4x4.is
08.02.2006 at 22:10 #541982Fundur í Mörkinni 6 uppi í risi. (Skrifstofa 4×4)
Allar að mæta.
kv
Nefndin.
Netfang kvennaferðarnefndar
kvennaferd(hjá)f4x4.is
14.02.2006 at 00:02 #541984Krístín Bj AIDA Og Nína eru ekki lengur á biðlista
eru komnar inn (eru að fara í kvennaferð) jibbíStelpur endilega verið duglear að tjá ykkur á spjallinu.
kv
Agnes, Ella, Aldís, Ragga, Linda og Þóra
14.02.2006 at 16:02 #541986…Pláss fyrir mig?

14.02.2006 at 17:20 #541988Ég er góður í eldhúsinu og flottur á riksugunni, og auk þess með mikið að kvennlegum genum og þokkafullar hreyfingar.
14.02.2006 at 17:42 #541990Ég er góður í eldhúsinu og flottur á riksugunni, og auk þess með mikið að kvennlegum genum og þokkafullar hreyfingar.
Þetta hefur alveg farið fram hjá okkur. (allavega stjórnini)….
Spurning að fá þig í næstu skipulagsnefnd.Vita rotturnar af þessu ;(
14.02.2006 at 19:06 #541992Þú ert nú með kvenlegri bekkjarfélögum mínum þannig að ég skal setja málið fyrir nefndina 😉 En hvernig væri að byrja á því að reyna að múta mér? Tek við bjór á kaffihúsinu í kvöld og alltaf til í matarboð he he he…..
14.02.2006 at 20:04 #541994Það er víst óhætt að segja að hálendið verði fullt af dömum með alvöru túttur…
14.02.2006 at 20:47 #541996það er sko alveg kristaltært…. það verða
túttur á ferð
Ég setti inn í gamni stelpur, örfáar myndir frá því í fyrra inn í ferðir, kvennaferð 2005 Bara til að hressa upp á minnið og sjá hvað er í vændum, var ekki annars löngu búið að panta sama veður?!?
14.02.2006 at 21:17 #541998En þó svo að ég þekki Ofsa ekki þá hef ég séð mynd af kauða og ég held að ég hljóti að vera kvenlegri en hann svo ekki sé talað um hve fágaðar og ofurkvenlegar hreifingar mínar eru þegar svo ber undir. Ef að þetta fer í hart skal ég fara í kvenleikakeppni við Ofsa þar sem málin verða kljáð

Kv. Davíð
14.02.2006 at 23:01 #542000Sæl Ella ekki er ég svo viss um að þessir kvennlegu ungu menn verða boðnir með eingöngu fyrir bjór!! Við gætum þurft smá aðstoð við að gera nokkra bíla ferðafæra væri til í að þú gætir mútað þeim til baka með bjór!!
Baráttukveðjur fyrir kvennaferð
Drottningin
17.02.2006 at 15:33 #542002Peysumátun.
Þær sem komast ekki á mánudag niður í mörk milli 11 og 14.00.
Geta komið til mín á sunnudag og mátað.
Endilega verið í sambandi mail.
Agnes Karen
S-8995222
andrealind@simnet.is
17.02.2006 at 22:27 #542004Hæ Tacomaskvisur
Eru kantarnir komnir?
kv. Linda Ó.
19.02.2006 at 23:24 #542006Aldís ford 49 t.
Agnes Patrol 38 t.
Nína Sif Trooper 38 t.
Ragga Discoveri 38 t.
Solla Toyota 44 t.
Lína Rance Rover 38 t.
Guðrún Rut Patrol 44 t.
Ella Patrol 44 t.
Magga Toyota Lc 38 t.
Linda Toyota 38 t.
Þóra Patrol 38 t.
Sigríður María Scout 38 t.
Tinna Toyota 38 t.
Halldóra Toyota Tacoma 38 t.
Soffía Toyota Tacoma 38 t.
Guðrún Toyota Tacoma 38 t.
Anna Toyota Tacoma 38t.
Stína Patrol 44 t.
Hrefna Cheroke 38 t.
Bryndís Toyota 38 t.
Sigurrós Toyota Lc 38 t. Hætt við
María Landcruser 39,5 t.
Kristín Bj Patrol 38 t. komin inn….
Nína Patrol 38 t. komin inn…
Bryndís Theod Toyota Lc 38 t.
Á biðlista.
Inga Dröfn Landcruser 44.
Stelpur þið sem eruð ekki komnar með farþegana á hreint endilega verið í sambandi svo hægt sé að ganga frá fullnaðar skráningu í ferðina.
kv
Nefndin
20.02.2006 at 11:57 #542008Er einhver hætta á að allar þessar Tacomur séu að fara á fjöll á næstunni ?
Síðast þegar ég frétti þá var brettakantasmiðurinn á leið í tveggja vikna frí…..
Benni

20.02.2006 at 22:47 #542010Hvernig væri að fá yfirlit af hópunum? Annað hvort hér á þráðinn eða í pósti. Hvernig er þetta verður farið á Hveravelli líka eins og var verið að pæla eða bara upp í Setur?
21.02.2006 at 01:19 #542012Stelpur muna eftir verkstæðisfundinum.
Svar til Tinnu (spotta)
Listinn verður afhentur á fimmtudag.
kv
Nefndin
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
