FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Kvennaferð 4×4

by Íris Mjöll Valdimarsdóttir

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Kvennaferð 4×4

This topic contains 105 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Sólveig Ásgeirsdóttir Sólveig Ásgeirsdóttir 16 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 30.01.2009 at 11:49 #203683
    Profile photo of Íris Mjöll Valdimarsdóttir
    Íris Mjöll Valdimarsdóttir
    Participant

    Hæ stelpur

    Við erum þónokkrar sem sáum okkur ekki fært á að mæta á fundinn í gær vegna óvenju mikilla anna.
    Við viljum gjarnan fá að vita hvað fór fram á honum, ásamt fleiri upplýsingum varðandi ferðina.
    Staðsetningu,þátttökulista,verð o.s.f.v.

    Væruð þið ekki til í að smella smá info á netið ?
    kv
    Íris Mjöll

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 105 total)
← 1 … 4 5 6 →
  • Author
    Replies
  • 26.02.2009 at 13:28 #639546
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sælar stúlkur í fararstjórn. Hvernig er þetta með rásir á talstöðunum, munið þið sjá um að útdeila þeim þ.e. rásunum þegar við komum saman á morgun þannig að við séum ekki allar að kjafta hver ofan í aðra.

    Kv. Ragga





    26.02.2009 at 15:03 #639548
    Profile photo of Sólveig Ásgeirsdóttir
    Sólveig Ásgeirsdóttir
    Member
    • Umræður: 2
    • Svör: 26

    Jæja nú hljótið þið að vera orðnar spenntar skvísur.
    Alla vega er ég orðin spennt og mikil tilhlökkun um að komast út úr bænum.

    Kv.
    Solla.





    26.02.2009 at 15:30 #639550
    Profile photo of Íris Mjöll Valdimarsdóttir
    Íris Mjöll Valdimarsdóttir
    Participant
    • Umræður: 30
    • Svör: 454

    Við verðum sennilega á rás 52 eða 54 á VHF
    A aðeins eftir að kanna hvort þær séu ekki örugglega allar með aðra hvora rásina.
    –
    Hey … gleymdi að kanna eitt í gær.
    Hver lætur okkur hafa punktana á morgun
    Við hvern eigum við að tala ???
    Er það kannski bara óvissa þangað til klukkan 15.59 ?
    Kveðja
    Íris Mjöll sem ætlar á fjöll en veit bara ekki alveg hvert eða hvenær eða hvort eða ??? ….
    –
    Annað…. hvað er málið með allar þessar uppskriftir í möppunni ef maður getur svo ekkert eldað ???





    26.02.2009 at 19:24 #639552
    Profile photo of Fjölnir Björgvinsson
    Fjölnir Björgvinsson
    Participant
    • Umræður: 0
    • Svör: 44

    Jæja, þá er kvennaferðin loksins að bresta á. Mig langaði bara að óska ykkur góðrar skemmtunar um helgina. Ég er með tæpra 4ra mánaða prinsessu sem á mestan minn tíma þessa dagana og mömmuhjartað vill ekki hleypa mér í kvennaferð þetta árið. En það er búið að vera gaman að taka þátt í undirbúninginum með stelpunum og ég skipti um skoðun mörgum sinnum á dag hvort ég myndi koma með eða ekki. Það verður gaman að sjá hver tekur við titlinum Sleðadrottningin þetta árið :o)

    Bestu kveðjur,
    Jóna – Sleðadrottning 2008





    27.02.2009 at 22:23 #639554
    Profile photo of is
    is
    Participant
    • Umræður: 71
    • Svör: 994

    Hvernig gengur hjá stelpunum :O)

    Kv: Kalli





    28.02.2009 at 11:52 #639556
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Er ekkert að frétta af þessari ferð ?

    Hvert fóru þær eiginlega…… Bermúdaþríhyrningin ? Það mætti allavega halda það miðað við þögnina hér.

    Benni





    28.02.2009 at 12:10 #639558
    Profile photo of Árni Bergsson
    Árni Bergsson
    Participant
    • Umræður: 9
    • Svör: 308

    af jeppum sást við Ölvusborgir, veit svo sem ekkert hvað er satt í því.
    kvennastrumpurinn





    28.02.2009 at 12:10 #639560
    Profile photo of Kjartan Rúnarsson
    Kjartan Rúnarsson
    Member
    • Umræður: 13
    • Svör: 248

    Það sást til jeppana á leið til Keflavíkur í gær, þær hafa örugglega skroppið til London að versla eða eitthvað ámóta.

    Kjartan





    28.02.2009 at 12:21 #639562
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Ég var að tala við Þorstein félaga minn sem er staddur ásamt Sæma og Helga uppi á Hrafntinnuskeri á leið í Strút.

    Þeir heira stöðugt skvaldur í kellingum sem eru fastar út um allt á Jökulheimaleið – en mér skilst að þær hafi ekki drifið lengra en í Hrauneyjar í gærkvöldi…..





    28.02.2009 at 16:06 #639564
    Profile photo of Kristján Finnur Sæmundsso
    Kristján Finnur Sæmundsso
    Participant
    • Umræður: 32
    • Svör: 131

    Ég heyrði í minni áðan þá voru þær á blussandi siglingu upp Vatnajökul, komnar i tæpa 1100 metra. Veðrið er víst alveg frábært.
    kv.
    Finnur





    28.02.2009 at 21:39 #639566
    Profile photo of Birkir Jónsson
    Birkir Jónsson
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 1596

    Það ku hafa verið hrikalega gott veður á jöklinum í dag.

    Frúin bjallaði og sagðist síðan ekki nenna að tala við mig því það var því að það var of gott veður til að hanga inni í bíl.

    Kveðja, Fastur





    01.03.2009 at 11:21 #639568
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Eitthvað hefur nú gengið á Vatnajökli hjá konunum…..

    [url=http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/03/01/vatnajokull_skelfur/:wmkijc02][b:wmkijc02]Jökullinn skelfur[/b:wmkijc02][/url:wmkijc02] enþá eftir að þær fóru á hann….

    Benni





    01.03.2009 at 13:17 #639570
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Hefur einhver heyrt í stelpunum til að athuga hvort þær urðu vara við skjálftann ?.
    kv. vals.





    01.03.2009 at 13:26 #639572
    Profile photo of Eyþór Guðnason
    Eyþór Guðnason
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 459

    Var að heyra í minni frú og eru þær í sleða keppni núna. fengu frábæran dag í gær og mikið keirt.
    Þær voru búnar að heyra um mikkkkil vandræði allt í kringum sig hásing rifinn undan einhverjum og framendi af öðrum björgunarsveit á leið inn í landmannalaugar. Sem sagt allt að gerast á hálendinu. Hefur einhver heyrt af þessum vandræðum ? en allt í góðu hjá konunum.

    Kv Eyþór.





    01.03.2009 at 16:52 #639574
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Var að þvælast á fjallabaki í gær og hitti fasta fólkið.

    Þarna var Astro á 44" sem fór niður um ís rétt fyrir innan Hnausaskarð en það var búið að ná honum upp en eitthvað voru stífur á afturhásingu í slæmu ásigkomulagi. Þeir voru að basla við Ford Econoliner sem var með nefið á kafi.

    Það er æskilegt að fara inn með Eskihlíðarhnausum og sleppa því að reyna við sléttuna.

    Góðar stundir





    01.03.2009 at 19:05 #639576
    Profile photo of Halldóra Ingvarsdóttir
    Halldóra Ingvarsdóttir
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 80

    Þetta var frábær ferð og heppnaðist vel í alla staði, Keyrt uppí Jökulheima og þaðan uppá Vatnajökull og skemmt sér konunglega að vanda.

    Bara skemmtilegt og svo húsmæðragisting eins og konum líkar best.

    Takk fyrir frábæra helgi og sjáumst svo á myndakvöldinu sem ég auglýsi síðar

    kveðja Drottningin





    01.03.2009 at 20:05 #639578
    Profile photo of Atli Eggertsson
    Atli Eggertsson
    Participant
    • Umræður: 220
    • Svör: 1627

    Þetta var æðisleg helgi, þið stóðuð ykkur rosalega vel undirbúningsnefnd, þetta hefur örugglega verið rosaleg vinna að gera svona ratleik :-)
    Takk kærlega fyrir mig og kóaran minn.

    kv.
    Linda Ósk og Bjarney





    01.03.2009 at 20:21 #639580
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Kærar þakkir fyrir FRÁBÆRA ferð þetta var BARA GAMAN.
    Kv. Systir María og Gurrý kóari.(",)





    01.03.2009 at 21:53 #639582
    Profile photo of Þórunn Lísa Guðnadóttir
    Þórunn Lísa Guðnadóttir
    Member
    • Umræður: 1
    • Svör: 64

    Já þessi ferð var æðisleg og vá veðrið í gær var special made for us :O)

    Sjáumst í næsta stríði

    Sleðadrottningar 2009
    Lóló og Gulla
    meeee…úa úa





    02.03.2009 at 10:41 #639584
    Profile photo of Hilux-pia
    Hilux-pia
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 38

    Segjum það sama, takk fyrir frábæra ferð, ekki hægt að hugsa sér það betra. Kv.Bryndís og Vigdís





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 105 total)
← 1 … 4 5 6 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.