This topic contains 15 replies, has 1 voice, and was last updated by Ásgeir Halldórsson 19 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
18.01.2006 at 00:09 #197093
Ég ætlaði nú bara að forvitnast hvenær kvennaferðin væri, mér var sagt að hún væri 6. mars en það er mánudagur!
kveðja Linda -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
18.01.2006 at 08:46 #539412
Áætluð dagsetning á Kvennaferðinni er 3-5 mars n.k. ATH! Þessi dagsetning er birt með fyrirvara, gæti breyst.
Kveðja
Ella
18.01.2006 at 11:29 #539414Ég ætla rétt að vona að Tacomu-breytingar gangi vel, annars verðum við þrjár í fýlu helgina 3. til 5. mars. Ekki gaman.
18.01.2006 at 13:03 #539416Þarf að vera í klúbbnum til að fara í þessa ferð?
Mömmu langar að fara á Scoutinum mínum.
Annars eru þessar konur workaholics þannig að þetta er ekki á kláru…bara pæling hjá henni.
kv, Ásgeir mömmustrákur
18.01.2006 at 18:32 #539418Er nóg að vera með sítt hár til að fara í kvennaferð?
18.01.2006 at 18:51 #539420Held að það dugi ekki, ætli að þú þyrftir ekki fórna vininum og fá þér silikon til að eiga séns. Hvað langar þig mikið?
18.01.2006 at 21:55 #539422Langar aðeins að forvitnast. Er ekki rétt skilið hjá mér að til að komast í þessa ferð verður maður að vera á a.m.k. 38"? Var því að spá í hvort það væri einhver áhugi hjá "litlum" konum að skipuleggja kvennaferð fyrir minni bíla t.d. 33" – 38"
Kveðja, Hrafnhildur
19.01.2006 at 00:03 #539424Það mátti reyna!
Ég er ekki alveg til í að fórna vininum.
Kveðja Fastur
19.01.2006 at 00:36 #539426Er ekki bara að vera í nágreninu, því þegar bilar hjá þessum elskum þá er maður auðfús gestur !!
kv. vals.
19.01.2006 at 13:51 #539428Sæl Hrafnhildur

Við eru allavega tvær Strumpastelpur sem langar rosa mikið í svona ferð fyrir "litlu"bílana
við erum á Trooper 35"
En er engin sem getur sagt okkur á hvernig bílum við þurfum að vera á til að komast í kvennaferðina sem er núna í mars?Kv Strumpastelpurnar

19.01.2006 at 21:41 #539430Takk fyrir síðast Strumpastelpur.
Flott er, við erum þá orðnar 5
því tvær kæmu með mér. En eru ekki einhverjar fleiri sem hafa áhuga?Kveðja,
Hrafnhildur
19.01.2006 at 22:03 #539432Sælar dömur.
Það var set sem skilirði í síðustu kvennaferð að vera á 38". Ég geri ráð fyrir að það verði líka þannig í ár en það hefur ekki verið rætt neitt sérstaklega og á eftir að koma betur í ljós fljótlega.
kveðja.
Hjördis
19.01.2006 at 22:10 #539434Sæl öll.
Það er kanski ekki úr vegi að seta hér inn reglur um dekkjastærðir í vetrarferðum sem hafa verið í gildi í ferðum klúbbsins í nokkur ár. þær eru:
Bíll undir 1500 kg þarf 35" dekk.
Bíl 1500 – 2200 kg þarf 36" dekk.
Bíll 2200 – 2600 kg þarf 38" dekk.
Bíll yfir 2600 kg þarf 44" dekk.Þetta eru þær dekkjastærðir sem áralöng reynsla sýnir að reynist best við flestar aðstæður. Fararstjórum er heimilt að víkja frá reglunum, en það er þeirra ákvörðun fyrir hverja ferð fyrir sig.
Kv.
Emil Borg
19.01.2006 at 23:44 #539436Komiði sælar. Þannig er að ég er skráður félagsmaður í klúbbinn en konan mín ekki. Þarf hún að skrá sig í klúbbinn til að komast með eða er nóg að ég og jeppinn séum skráðir í klúbbinn???
19.01.2006 at 23:48 #539438nóg að þú sér skráður í klúbbinn Steingrímur
20.01.2006 at 01:10 #539440Hvernig er það? Fær mamma að fara þótt hún sé ekki konan mín og við erum ekki í staðfestri sambúð? Eða er bíllinn kannski of ljótur til að fá að fara með…ég vissi það…hann er ekki nógu kvennlegur

kv, mömmustrákurinn
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
