This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Anonymous 23 years, 3 months ago.
-
CreatorTopic
-
11.07.2002 at 20:09 #191597
AnonymousSælir kappar
Hvernig er vatnsmagnið í Krossá þessa dagana? Hvenær er best að leggja í hana og hvernig? Er óhætt að fara yfir á Jeep Wrangler á 31″ dekkjum ef að einhver bíður eftir manni hinum meginn? Látið allt flakka.
kv
sven -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
11.07.2002 at 23:40 #462332
Það er nú þannig að vatnsmagn Krossár breytist mjög hratt, getur verið fær þér eina stundina en ófær öllum eftir nokkrar klst. Vatnsmagnið fer eftir hita, úrkomu og sólskini. Í venjulegu veðri ættir þú að komast yfir ánna án vandræða. Þú getur svo alltaf hringt inn í Langadal og spurt skálaverðina um vaðið, þeir eru mjög hjálpsamir. Áin hefur almennt verið auðveldari nú í sumar en síðustu sumur, rennur dreifðari og hægt er að þvera ánna jafnvel í allt að 8 álum (ég hef farið tvisvar í Langadal í sumar). Síðasti állinn (næst skálanum) var þó orðin nokkuð vatnsmikill um daginn. Þar er mikilvægt að fara ekki of ofarlega, Þar er djúpt og stórgrýtt (sá 35" X-tra cap setjast á kviðinn þar). Með því að fara nógu neðarlega er lítil hætta á vandræðum.
En er jeppinn þinn vel vatnsvarinn? Drepur hann á sér ef þú sprautar vatni ofan í húddið meðan hann er í gangi? Er loftinntakið neðst í stuðaranum?
Senndu annan póst ef þú villt frekari upplýsingar.
Freyr
11.07.2002 at 23:44 #462334
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Sæll Freyr og þakka þér fyrir upplýsingarnar.
Loftinntakið er alveg efst við húddið að framan og kveikjukerfið í svipaðri hæð. Einhver trix til að lifa þetta af?
kv
sven
12.07.2002 at 01:44 #462336Slepptu þessu!!! 35" lágmark.. það er allaf EF!!!!! og það er ekki þess virði að taka áhættu!!!!Þetta er óberyttur bíll….BETTER TO BE SAFE THAN SORRY!!!!!!!
12.07.2002 at 07:59 #462338Ekki vera alltaf svona neikvæður Elmar, bara hringja í skálaverðina og láta þá koma á móti sér no proplem.
P.S bara skella einni kaldri gusu í sig og fara yfir ef engin börn eru með.
12.07.2002 at 10:48 #462340"Slepptu þessu!!! 35" lágmark.. það er allaf EF!!!!! og það er ekki þess virði að taka áhættu!!!!Þetta er óberyttur bíll….BETTER TO BE SAFE THAN SORRY!!!!!!!"
Ég fór oft þarna á 33" súkku án mikilla vandræða. Hef meira að segja séð lödu station inní Langadal (ætli hann hafi farið yfir í spotta???).
Ef það er ekki mikið í ánum og þú ert með einhvern með þér (ekki fara einbíla) þá á þetta að vera í góðu lagi.
Jón H.
12.07.2002 at 12:35 #462342Það ætti að banna bílum sem eru á minni dekkjum en 44" að fara í Þórsmörk!!!
Það er eina vitið að stækka bílastæðin við gatnamótin þannig að allir jeppar á minni dekkjum geti lagt þar. Þeir sem aka um á þeim bifreiðum fá síðan far með stórdekkjabílum (44" eingöngu) inneftir gegn vægu gjaldi (10.000 kr. á kjaft).
Það væri líka hægt að hafa söluskála við gatnamótin þar sem boðið væri upp á stærri dekk, mjólk og svoleiðis. Það mætti jafnvel taka litlu dekkin upp í 44" dekk. Þau gætu seinna nýst sem viðgerðartappar til að laga 44" dekk.Er þetta ekki frábær hugmynd??
12.07.2002 at 12:36 #462344Við venjulega aðstæður ferðu yfir Krossá á hvaða jeppa sem er. Fylgsdu með hvað aðrir gera og reyndu að meta ánna. Farðu aldrei upp í strauminn. Yfirleitt er minnst í ám snemma dags og eykst eftir því sem líður á daginn. Ég hef ekki farið í Langadal í sumar en fór yfir Krossá á leið inn í Húsadal um Jónsmennuna án vandræða, á mínum óbreytta Pajeró. Og hef farið yfir krossá bæði við Langa og Húsadal gegnum tíðina á alls kyns jeppum, mörgum þeirra ekkert eða lítið breyttum án vandræða.
12.07.2002 at 12:39 #462346Síðan bönnum við 44" bílanna á þjóðvegunum og seljum þeim sem ætla með þeim farið úr bænum að Stóru Mörk fyrir ca. 30 til 40.000 þá eru allir ánægðir. Ekki satt Teddi.
Kveðja Helgi
12.07.2002 at 13:10 #462348
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Hæ hvað er eiginlega að ykkur
eigi Þórsmerkurferð að vera einhvað spennandi þarf að fara á óbreyttum "jeppa"
Þá fyrst reynir á hvort einhver kunnátta er fyrir hendi til að keyra í vatni.
Til að auka á spenningin þarf að hafa alvöru tengdamömmu í aftursætinu.Einsog einhver sagði : þegjuðu kona og lokaðu glugganum….
blautur strumpur
12.07.2002 at 13:29 #462350
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ég var þarna um síðustu helgi og þetta var bara smá spræna. náði upp undir stigbretti á 33" 90 cruiser
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
